Hvers vegna gengur svona vel í Kína?

Nýjustu efna­hags­tölur sýna fram á mik­inn hag­vöxt í Kína og búist er við að hann muni aukast á næst­unni. Hvernig má það vera að svona vel gangi í upp­runa­landi kór­ónu­veirunnar á meðan flest önnur ríki heims­ins eru í djúpri kreppu vegna hennar?

Forseti Kína, Xi Jinping.
Forseti Kína, Xi Jinping. Mynd: EPA

Undir lok jan­ú­ar­mán­aðar þegar kór­ónu­veiran var farin að valda tölu­verðum usla í Kína vör­uðu sér­fræð­ingar við því að hún gæti haft alvar­legar afleið­ingar á efna­hags­lífið þar í landi. Hluta­bréfa­mark­aðir í Austur-Asíu hrundu þar sem fjár­festar bjugg­ust við miklum sam­drætti í efna­hagi Kínverja ef ekki væri hægt að stöðva útbreiðslu veirunnar.

Nú er mál­unum öfugt háttað. Á meðan efna­hag­skreppa ríkir á heims­vísu vegna far­ald­urs­ins er spáð öruggum hag­vexti í Kína í ár. Þökk sé harka­legum sótt­varn­ar­að­gerðum, sveigj­an­leika í fram­leiðslu og auk­inni fjár­fest­ingu hins opin­bera hefur landið náð að snúa útbreiðslu kór­ónu­veirunnar sér í hag, þvert á vænt­ingar í byrjun árs.

Sér á báti

Í hag­spá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS), sem kom út í síð­ustu viku, kemur sér­staða Kína glögg­lega fram, en þar er spáð því að lands­fram­leiðslan muni aukast um tvö pró­sent á þessu ári, eftir að tekið er til­lit til verð­bólgu. Þetta eru mun jákvæð­ari tölur en mæl­ast í flestum löndum heims­ins, en AGS spáir því að heims­fram­leiðsla drag­ist saman um rúm fjögur pró­sent í ár.

Á mynd hér að neðan sést hvernig kín­verskar hag­tölur stinga í stúf við önnur af helstu hag­kerfum heims­ins, þar sem búist er við fjög­urra til ell­efu pró­senta sam­drætti á árinu. Á næsta ári er svo búist við að lands­fram­leiðsla í Kína muni aukast um rúm átta pró­sent, sem er einnig tölu­vert meiri hag­vöxtur en spáð er ann­ars staðar.

Fyrr í dag birt­ust svo hag­vaxt­ar­tölur fyrir nýlið­inn árs­fjórð­ung í Kína, þar sem hag­vöxtur nam tæpum fimm pró­sentum á árs­grund­velli. Það eru svip­aðar hag­vaxt­ar­tölur og mæld­ust í fyrra, áður en veiran náði að breiða sér út um allan heim.

Harkalegar aðgerðir

Í skýrslu AGS sem og umfjöllun New York Times um málið eru nefndar margar ástæður á bak við vel­gengni Kínverja. Á meðal þeirra eru harka­legar og umdeildar sótt­varn­ar­að­gerðir sem gerðu þeim kleift að ná tökum á útbreiðslu veirunnar til­tölu­lega fljótt. Á meðal þess­ara aðgerða voru ströng útgöngu­bönn sem sett voru á í ýmsum borgum, auk smitrakn­ingar í gegnum far­síma­notkun og fjölda­skimanir í kjöl­far lít­illa hópsmita.

Forskot á hin löndin

Með því að koma böndum á kór­ónu­veiruna til­tölu­lega snemma var kín­verskt efna­hags­líf komið aftur í til­tölu­lega eðli­legt horf mun fyrr en í Evrópu eða Banda­ríkj­unum, þar sem fyrsta bylgja far­ald­urs­ins skall á á vor­mán­uðum. Með þessu gátu Kín­verjar brugð­ist við stór­auk­inni eft­ir­spurn eftir ýmsum vörum, til dæmis heil­brigð­is­bún­aði og raf­tækjum fyrir heima­vinnu, með mun skjót­ari hætti en önnur iðn­ríki sem sættu mörg hver fram­leiðslu­tak­mörk­unum sökum harðra sótt­varn­ar­að­gerða. [adspot]

Með sveigj­an­legri fram­leiðslu náðu Kín­verjar því að koma í veg fyrir mikið fall í útflutn­ingi, sem nemur um það bil 17 pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu þeirra. Á sama tíma hefur við­skipta­af­gangur lands­ins auk­ist, þar sem inn­flutn­ingur hefur ekki auk­ist jafn­hratt og útflutn­ingur.

Grettistak í fjárfestingu

Kínversk yfir­völd voru með­vituð um for­skotið sem útbreiðsla veirunnar gaf þeim og ákváðu í mars að nýta það til að greiða fyrir erlendri fjár­fest­ingu í land­inu, sam­kvæmt skýrslu frá ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu Horizon. Einnig réð­ust þar­lend stjórn­völd í miklar inn­viða­fram­kvæmdir í land­inu í sumar, sem voru fjár­magn­aðar með lánum. Að mati AGS er aukn­ingin í fjár­fest­ingum aðal­á­stæða þess hversu fljótt kín­verskt efna­hags­líf komst á fullt skrið aftur.

[links]Til við­bótar við aukna fjár­fest­ingu hafa kín­versk stjórn­völd ráð­ist í ýmsar aðrar efna­hags­að­gerðir til þess að koma hjólum efna­hags­lífs­ins aftur í gang, til að mynda með skatta­af­sláttum, lánum með rík­is­á­byrgð og lágum vöxtum.

Einkaneyslan eykst

Hröðum við­snún­ingi í Kína má því að mestu leyti þakka miklum útflutn­ingi og efna­hags­að­gerðum hins opin­bera. Framan af hafði einka­neyslan þó staðið á sér þar í landi, en sam­kvæmt frétt New York Times hefur hún einnig verið að sækja í sig veðrið á síð­ustu vikum. Hins vegar hefur aukn­ingin verið meðal efn­aðra, á meðan neysla kín­versku milli­stétt­ar­innar hefur verið seinni að taka við sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár