Kreppan dýpri og sneggri en á öðrum Norðurlöndum

Ísland mun finna mest allra Norð­ur­landa fyrir efna­hags­legum afleið­ingum núver­andi kreppu þótt að búist sé við því að við­spyrnan verði hrað­ari hér, sam­kvæmt nýrri spá AGS.

Gita Gopinath, aðalhagfræðingur AGS
Gita Gopinath, aðal­hag­fræð­ingur AGS Mynd: EPA

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn (AGS) spáir meiri efna­hags­sam­drætti hér á landi en á öðrum Norð­ur­löndum þetta árið, en gerir þó ráð fyrir að hag­vöxtur og lækkun atvinnu­leysis verði hrað­ari hér­lendis í nýj­ustu efna­hags­spánni sinni.

Djúp spor til lengri tíma

Efna­hags­spáin kom út síð­asta þriðju­dag, en í henni er dregin upp dökk mynd af heims­hag­kerf­inu vegna núver­andi kreppu. Búist er við 4,4 pró­senta sam­drætti í heims­fram­leiðslu, en sjóð­ur­inn telur að lands­fram­leiðsla iðn­ríkja geti dreg­ist saman um 5,8 pró­sent að með­al­tali þetta árið.

Í kynn­ingu á nýju efna­hags­spánni sagði Gita Gopinath aðal­hag­fræð­ingur AGS að kreppan muni skilja eftir sig djúp spor til lengri tíma í efna­hags­lífi heims­ins. Því til stuðn­ings nefnir hún hægar breyt­ingar á atvinnu­leysi, auk þess sem búist er við minni fjár­fest­ingu í mannauði sökum þeirrar miklu óvissu sem ríkir núna.

Einnig bætti Gopinath við að kreppan komi til með að auka ójöfnuð í heim­inum, bæði á milli landa, þar sem þró­un­ar­ríki eiga erf­ið­ara með að fjár­magna efna­hags­legar björg­un­ar­að­gerðir á næst­unni, og innan hvers lands, þar sem tekju­lágar stéttir finna meiri fyrir afleið­ingum hertra sótt­varn­ar­að­gerða heldur en aðrir. Samkvæmt henni mun vax­andi ójöfn­uður hafa áhrif sem næstu kyn­slóðir munu finna fyrir.

Djúp kreppa en snöggur viðsnúningur

Í hag­spá AGS má finna væntar hag­vaxt­ar­tölur fyrir öll lönd heims­ins næstu fimm árin. Sjóð­ur­inn býst við að lands­fram­leiðsla Íslands drag­ist saman um 7,2 pró­sent að raun­gildi í ár, sem er tölu­vert meira en búist er við hjá öðrum Norð­ur­löndum. Í Danmörku og Finn­landi er búist við 4 pró­senta sam­drætti, en gert er ráð fyrir að hann nemi 5 pró­sentum í Svíþjóð og 3 pró­sentum í Noregi.

Sam­an­burður á hag­vexti milli Norð­ur­land­anna má sjá á mynd hér að ofan. Á næsta ári er búist við 3-4 pró­senta hag­vexti miðað við árið á undan, en AGS væntir þess að vöxt­ur­inn verði mestur hér á landi.

Sjóð­ur­inn er einnig til­tölu­lega bjart­sýnn á að við­snún­ing­ur­inn á vinn­nu­mark­aðnum verði snöggur hér á landi, ef miðað er við önnur Norð­ur­lönd. Líkt og sést á mynd hér að neðan er búist við að með­al­at­vinnu­leysi á Íslandi nái 7,2 pró­sentum í ár og verði 7 pró­sent á næsta ári. Það er tölu­vert meira en í Noregi og Danmörku, en minna en í Svíþjóð og Finn­landi.

Á næstu þremur árum er svo búist við að atvinnu­leysi hér­lendis nær helm­ing­ist og verði jafn­hátt og í Noregi. Hins vegar er búist við mun minni hreyf­ingu á atvinnu­leysis­tölum í öllum hinum Norð­ur­lönd­unum.

AGS leggur áherslu á alþjóða­sam­vinnu í skýrslu sinni. Samkvæmt sjóðnum er mik­il­vægt að styðja við lönd sem hafa ekki greiðslu­getu til að ráð­ast í nauð­syn­legar efna­hags­að­gerðir gegn krepp­unni, þar sem það sé hagur allra að eft­ir­spurn taki við sér á heims­vísu.

Einnig bætir sjóð­ur­inn við að stór­tækar aðgerðir hins opin­bera víða um heim hafi komið í veg fyrir frek­ari efna­hags­skaða og leitt til betri stöðu á vinnu­mark­aðnum. Hins vegar ættu rík­is­stjórnir að beina sjónum sínum að því að styðja frekar við vax­andi atvinnu­greinar, líkt og staf­ræna verslun, frekar en þær sem eiga sér óvissa fram­tíð, líkt og ferða­manna­iðn­að­inn, á næstu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

norðurlönd

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár