Norrænt samstarf til að sporna gegn loftslagsbreytingum

For­sæt­is­ráð­herrar Norð­ur­landa ásamt leið­togum Álandseyja og Græn­lands og for­stjórum fjórtán nor­rænna fyr­ir­tækja und­ir­rit­uðu yfir­lýs­ingu um sam­starf um loft­lags­mál í Hörpu í dag.

Forsætisráðherrar Norðurlandanna og hópur norænna forstjóra.
For­sæt­is­ráð­herrar Norð­ur­land­anna og hópur norænna for­stjóra. Mynd: Stjórnarráðið

For­sæt­is­ráð­herrar Norð­ur­land­anna og hópur nor­rænna for­stjóra skrif­uðu undir yfir­lýs­ingu um sam­starf með það að mark­miði að sporna gegn lofts­lags­breyt­ingum af manna­völdum í Hörpu í dag. Í yfir­lýs­ing­unni kemur meðal ann­ars fram að mest aðkallandi séu sam­vinna og sam­eig­in­legar aðgerðir sem beint er að lofts­lags­breyt­ingum, betri neyslu­hegðun og fram­leiðsla og um leið verði að tryggja jafn­ara og sann­gjarn­ara sam­fé­lag.

Fjórtán fyrirtæki skrifuðu undir yfirlýsinguna

Sum­ar­fundur for­sæt­is­ráð­herra Norð­ur­land­anna stendur nú yfir hér á landi. Samkvæmt Stjórn­ar­ráð­inu verður á fund­inum fjallað um lofts­lags­mál, nýja fram­tíð­ar­sýn Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar til næstu 10 ára, mál­efni Norð­ur­slóða og stöðu mann­rétt­inda­mála. Þá verður sér­stak­lega horft til tæki­færa til þess að auka sam­starf Norð­ur­land­anna og Þýska­lands til að takast á við áskor­anir á alþjóða­vett­vangi, ekki hvað síst afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga og stuðn­ing við sjálf­bæra þróun.

Norrænu for­sæt­is­ráð­herr­arnir fund­uðu með for­stjórum fjórtán fyr­ir­tæki á Norð­ur­lönd­unum sem eru í sam­starfi um Heims­mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna undir yfir­skrift­inni Samtök nor­rænna for­stjóra um sjálf­bæra fram­tíð í Hörpu í dag. Þau fyr­ir­tæki sem mynda sam­tökin eru Íslands­banki, Marel, Equinor, GSMA, Hydro, Nokia, Posten Norge, SAS, Stor­ebr­and, Swedbank, Telenor, Telia, Vestas og Yara.

Öflugt samstarf stjórnvalda og atvinnulífsins lykill að árangri

Á fund­inum kynntu for­stjór­arnir áherslu sam­tak­anna á mik­il­vægi þess að upp­fylla Heims­mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna með bættum við­skipta­háttum og auknu sam­starfi einka­geirans og hins opin­bera. Í til­kynn­ingu frá sam­tök­unum segir að ljóst sé að skammur tími sé til stefnu en stefnt er að því að upp­fylla Heims­mark­miðin árið 2030.

Helstu áherslur for­stjór­anna eru tvenns konar; ann­ars vegar að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í starf­semi fyr­ir­tækj­anna og hins vegar að vinna sam­eig­in­lega að því að auka upp­lýs­inga­gjöf um fjöl­breytni í atvinnu­líf­inu í þeim til­gangi að ná fram sem bestum starfs­háttum í starf­semi fyr­ir­tækj­anna. Í yfir­lýs­ingu ráð­herr­anna og for­stjór­anna segir að ein mest aðkallandi sam­eig­in­legra aðgerðin sé betri neyslu­hegðun og fram­leiðsla.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, segir að öfl­ugt sam­starf og sam­stilltar aðgerðir atvinnu­lífs og stjórn­valda séu lyk­ill­inn að árangri í loft­lags­málum.

„Það er ánægju­legt að finna sterkan vilja atvinnu­lífs­ins til að gera betur og stjórn­völd vænta mik­ils af því sam­starfi. Við verðum að gera meira og hraðar til að ná okkar mark­miðum fyrir árið 2030. Lofts­lags­breyt­ingar koma verr niður á fátækum en ríkum og snerta konur á annan hátt en karla. Mann­rétt­indi, félags­legt rétt­læti og jafn­rétti kynj­anna eru því sam­tengd lofts­lags­málum og allar aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum verða að taka mið af því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

norðurlönd

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár