AGS hvetur til fjárfestingar hins opinbera

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn, sem hefur verið þekktur fyrir að boða aga í opin­berum fjár­málum, hvetur nú tekjuhá lönd til að hugsa minna um skulda­söfnun og auka fjár­fest­ingar hins opin­bera.

Þróuð ríki ættu að stór­auka opin­berar fjár­fest­ingar til að kom­ast fljótar upp úr þess­ari kreppu, sam­kvæmt nýj­ustu útgáfu Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS) um rík­is­fjár­mál. Í útgáf­unni stendur að hag­kvæmt sé að taka lán fyrir slíkri fjár­fest­ingu þessa stund­ina út af lágum vöxtum og upp­safn­aðri þörf. Enn fremur gætu þær haft jákvæð áhrif á fjár­fest­ingar í einka­geir­anum.

Í við­tali við blaða­mann Wall Street Journal segir Paolo Mauro, aðstoð­ar­for­stjóri deildar AGS um opin­ber fjár­mál, að opin­ber fjár­fest­ing sé mjög áhrifa­rík leið til að auka efna­hags­um­svif og skapa störf hratt og örugg­lega. Með fjár­fest­ingum væri einnig hægt að greiða fyrir lang­tíma­breyt­ingum á heims­hag­kerf­inu eftir far­ald­ur­inn og minn­ist Mauro á mik­il­vægi grænna og staf­rænnar fjár­fest­ingar í því til­liti.

Ofgnótt af sparnaði

Samkvæmt AGS benda sögu­legir lágir vextir á Vest­ur­löndum til þess að ofgnótt sé af sparn­aði sem nýta mætti í fjár­fest­ingar hins opin­bera. Því er fjár­mögn­un­ar­kostn­aður hins opin­bera lægri en áður, sem þýðir að hag­kvæmara sé að taka lán heldur en áður.

Styrkir einkafjárfestingu

Einnig bendir Mauro á að núver­andi óvissa í efna­hags­málum leiði til þess að einka­fjár­festar haldi jafnan að sér höndum, en að AGS sýni í skýrslu sinni að opin­berar fjár­fest­ingar gætu spornað við þess­ari þróun.

Í skýrsl­unni voru áhrif opin­berra fjár­fest­inga á fjár­fest­ingu í einka­geir­anum skoðuð hjá 400 þús­und fyr­ir­tækjum í 49 löndum. Samkvæmt rann­sókn­inni hefur aukn­ing í opin­berri fjár­fest­ingu jafnan jákvæð áhrif á einka­geir­ann, sér­stak­lega ef skuld­setn­ing meðal fyr­ir­tækja var hóf­leg. Samkvæmt Mauro myndi opin­ber fjár­fest­ing því skila meiri árangri í hag­kerf­inu ef skuld­settum fyr­ir­tækjum er auð­veldað að fara í gjald­þrot.

Viðhald auk grænnar og stafrænnar fjárfestingar

Skýrslan bendir á að mörg rök hnígi að því að skyn­sam­legt sé að ráð­ast í við­hald á innviðum fyrst, þar sem slík fjár­fest­ing sé jafnan mann­afls­frek og myndi því skapa mörg störf. Einnig minn­ist Mauro á að við­halds­þörf hafi safn­ast upp í innviðum víðs vegar á Vest­ur­löndum og nefnir þar sem dæmi að skipta þurfi út fjórð­ungi allra vatns­lagna í Frakk­landi.

Einnig er hvatt til grænnar fjár­fest­ingar, en sam­kvæmt skýrslu AGS hafa fleiri störf skap­ast af henni heldur en venju­legum fjár­fest­ingum, að minnsta kosti til skamms tíma. Til langs tíma geti slík fjár­fest­ing, auk fjár­fest­ingar í staf­rænum innviðum gert hag­kerfum heims­ins meira kleift að takast á við áskor­anir fram­tíð­ar­innar.

Viðbrögð AGS við þess­ari kreppu eru önnur en í kjöl­far síð­ustu fjár­málakreppu, þegar sjóð­ur­inn hvatti til aðhaldi í rík­is­fjár­málum og lægra skulda­hlut­falli hins opin­bera. Sjóð­ur­inn virð­ist einnig hafa verið á öðru máli í byrjun árs­ins, en hann var­aði við of háu skulda­hlut­falli á Vest­ur­löndum í vinnu­pappír sem birt­ist í jan­úar á þessu ári, tveimur mán­uðum fyrir efna­hags­á­fallið vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár