Minnsti álútflutningur í átta ár

Þrátt fyrir hækk­andi álverð á heims­vísu hefur magn útflutts áls minnkað á síð­ustu mán­uðum. Heild­ar­út­flutn­ingur á síð­asta árs­helm­ingi hefur ekki verið minni síðan árið 2013.

Heild­ar­út­flutn­ingur áls nam tæpum 395 þús­und tonnum á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Þetta er minnsti útflutn­ingur áls í árs­helm­ingum talið í átta ár. Þetta kemur fram þegar nýbirtar tölur Hagstofu um vöru­við­skipti eru skoð­aðar.

Samkvæmt töl­unum fór nær allt álið sem flutt var út til fimm Evr­ópu­landa: Hollands, Spánar, Bret­lands, Frakk­lands og Þýska­lands. Tæpur helm­ingur útflutn­ings­ins fór til Hollands, á meðan tæpur þriðj­ungur fór til Spánar. [adspot]

Þótt miklar sveiflur séu á útfluttu magni á milli mán­aða hefur heild­ar­út­flutn­ingur áls á milli árs­helm­inga verið nokkuð stöð­ugur síð­ustu árin, líkt og sést á mynd hér að neðan. Útflutn­ing­ur­inn lækk­aði þó nokkuð á milli 2018 og 2020, sam­hliða því sem heims­mark­aðs­verð á áli tók nokkuð skarpa dýfu.

Á síð­ustu tólf mán­uðum hefur álverð hins vegar auk­ist tölu­vert og hefur það ekki verið hærra í tíu ár. Útflutn­ingur áls tók nokkurn kipp sam­hliða hækk­un­inni á síð­ari hluta árs í fyrra, en minnk­aði svo tölu­vert á fyrri helm­ingi þessa árs, þrátt fyrir að álverðið hafi haldið áfram að hækka á heims­vísu.

Álrisarnir Alcoa og Rio Tinto hafa notið góðs af nýlegu verð­hækk­un­inni, en fyr­ir­tækin skil­uðu bæði met­hagn­aði í síð­ustu árs­fjórð­ungs­upp­gjör­unum sínum. Samkvæmt fyr­ir­tækj­unum má rekja hækk­un­ina til auk­innar eft­ir­spurnar eftir hrá­vörum sem og hökti í fram­leiðslu­keðj­unni á síð­ustu mán­uðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár