Álútflutningur hefur aldrei verið verðmætari

Nýtt met var slegið í útflutn­ings­verð­mætum áls og álaf­urða í síð­asta mán­uði, en þau hafa ekki verið meiri frá upp­hafi mæl­inga.

Verðmæti útflutn­ings á áli og álaf­urðum nam alls tæpum 34 millj­örðum króna des­em­ber, sam­kvæmt nýjum tölum um útflutn­ings­verð­mæti frá Hag­stof­unni. Þetta eru hæstu fjár­hæð­irnar sem feng­ist hafa fyrir útflutn­ingi á vör­unni frá byrjun mæl­inga Hag­stof­unnar, þrátt fyrir að litlar breyt­ingar hafi verið á fram­leiðslu hennar á síð­ustu tíu árum.

37 prósenta aukning á milli ára

Líkt og sést á mynd hér að neðan hefur mán­að­ar­legt útflutn­ings­verð­mæti áls hækkað stöðugt frá haust­mán­uðum 2020, eftir að hafa hald­ist nokkuð stöðugt í um 18 millj­örðum króna frá árinu 2009. Á síð­ustu þremur mán­uðum hafa með­al­verð­mætin þó verið 64 pró­sentum meiri, eða í kringum 30 millj­arða króna. [adspot]

Ef litið er til síð­asta árs í heild sinni voru útflutn­ings­verð­mætin þar 37 pró­sentum meiri þá en á árinu 2020. Þetta er lang­mesta aukn­ingin í útflutn­ings­verð­mætum á milli ára frá árinu 2010.

Þessa aukn­ingu má rekja til mik­illa hækk­ana á heims­mark­aðs­verði áls. Eitt tonn af málm­inum kostar nú tæpa þrjú þús­und Banda­ríkja­dali, en til sam­an­burðar hefur tonnið venju­lega kostað í kringum tvö þús­und Banda­ríkja­dali á síð­ustu árum.

Þrátt fyrir þessar verð­hækk­anir hefur magn álút­flutn­ings ekki auk­ist á síð­ustu mán­uðum. Þar sem slík fram­leiðsla er treg­breyt­an­leg hér­lendis hefur útflutn­ing­ur­inn verið mjög stöð­ugur síð­ustu tíu árin, þar sem að með­al­tali eru flutt út um 70 þús­und tonn af áli og álaf­urðum í hverjum mán­uði.

Seðlabankinn spáir meiri vexti

Í síð­asta hefti Pen­inga­mála spáði Seðla­bank­inn að útflutn­ings­verð áls myndi hækka um 43 pró­sent. Ólíklegt er þó að sú spá hafi gengið upp, þar sem aukn­ingin í útflutn­ings­verð­mætum á milli ára var tölu­vert minni og fram­leiðslan stöðug.

Bankinn spáði því einnig að álverð myndi halda áfram að hækka á þessu ári og bjóst við því að hækk­unin myndi nema 16 pró­sentum. Gangi sú spá upp má gera ráð fyrir því að útflutn­ings­tekjur af áli og álaf­urðum auk­ist um 40 millj­arða króna í ár og auka hag­vöxt um 1,3 pró­sentu­stig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár