Tollastríð veikir afkomu Alcoa

Alcoa breytti árlegu afkomu­spá sína í gær og lækk­aði hana um 14% vegna nei­kvæðra áhrifa banda­rískra áltolla. Í kjöl­far til­kynn­ing­ar­innar féll hluta­bréfa­verð fyr­ir­tæk­is­ins um 4%.

Álver Alcoa Fjarðaráls á Reyðarfirði.
Álver Alcoa Fjarð­ar­áls á Reyð­ar­firði. Mynd: Úr safni.

Hluta­bréf álfyr­ir­tæk­is­ins Alcoa féllu í verði eftir að hafa lækkað árlegu afkomu­spá sína um 14% í gær. Í til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins nefnir það sér­stak­lega banda­ríska inn­flutn­ings­tolla á áli og fram­boðs­skort á Vest­ur­löndum.

Vænt tap á áli og súráli

Alcoa birti í gær rekstr­ar­nið­ur­stöður sínar úr öðrum árs­fjórð­ungi þar sem félagið náði að skila 75 milljón Banda­ríkja­dala hagn­aði, eða um 0,39 dala hagn­aði á hlut. Í með­fylgj­andi til­kynn­ingu breytti fyr­ir­tækið einnig rekstr­ar­spá fyrir 2018, en vænt afkoma Alcoa fyrir skatta og fjár­magns­kostnað (EBITDA) var lækkuð úr 3,5-3,7 millj­örðum Banda­ríkja­dala niður í 3,0-3,2 millj­arða dala. Einnig er búist við tapi á fram­leiðslu áls og súráls, en hagn­aði í báxít­fram­leiðslu.

Óttast frekari tolla

Í til­kynn­ingu félags­ins var sér­stak­lega vikið að nýtil­komnum tollum Banda­ríkj­anna á áli, en Donald Trump Banda­ríkja­for­seti inn­leiddi 10% tolla á álinn­flutn­ing frá Kanada, Evr­ópu­sam­bandið og Mexíkó fyrir tæpum tveimur mán­uðum síðan. Í kjöl­farið setti Evr­ópu­sam­bandið og Kína á tolla á ýmsar útflutn­ings­vörur Banda­ríkj­anna og sam­kvæmt frétt CNBC er ótt­ast að frek­ari tolla­lagn­ing muni eiga sér stað á næst­unni. Samkvæmt Alcoa munu toll­arnir kosta fyr­ir­tækið 15 millj­ónir Banda­ríkja­dala.

Til­kynn­ingin kom út rúm­lega fjögur um síð­degið á aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna, en sam­kvæmt frétt Reuters lækk­aði hluta­bréfa­verð um fjögur pró­sent eftir lokun mark­aða í gær.

544 starfsmenn á Íslandi

Alcoa rekur stærsta álver Íslands, en það er stað­sett á Reyð­ar­firði og hefur verið starf­rækt frá árinu 2007. Útflutn­ings­verð­mæti álvers­ins á árinu 2017 voru um 81 millj­arður króna, en það jafn­gildir um 10% pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu. Starfs­menn álvers­ins í fyrra voru um 544.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár