Að ráðherra eigi hönk upp í bakið á dómara veikir dómskerfið

Lögmaður veltir því upp í grein­ar­gerð af hverju Brynjar Níelsson hafi skipt um skoðun og hleypt Sigríði Andersen dóms­mála­ráð­herra í odd­vita­sæti eftir að hún gerði kon­una hans að dóm­ara við Lands­rétt. Brynjar hafi þar með misst færi á ráð­herra­emb­ætti.

„Það að stjórn­mála­menn, stjórn­mála­flokkar, til­tek­inn þing­meiri­hluti, sitj­andi rík­is­stjórn eða ein­stakur ráð­herra eigi hönk upp í bakið á ákveðnum dóm­urum grefur undan sjálf­stæði þeirra og getur með réttu veikt til­trú almenn­ings á dóms­kerf­inu.“ Þetta kemur fram í grein­ar­gerð Vil­hjálms H. Vil­hjálms­sonar lög­manns, sem Kjarninn hefur undir höndum, í máli þar sem þess er kraf­ist að Arn­fríður Ein­ars­dóttir, nýskip­aður Lands­rétt­ar­dóm­ari, víki sæti í dóms­máli, á þeim grund­velli að hún hafi ekki verið skipuð í emb­ættið með réttum hætti. Kjarninn fékk grein­ar­gerð­ina afhenda frá Hæsta­rétti.

Vil­hjálmur krafð­ist þess fyrir hönd skjól­stæð­ings síns að Arn­fríður viki sæti þegar málið var flutt fyrir Lands­rétti. Í þar­síð­ustu viku úrskurð­aði dóm­ur­inn, og þannig Arn­fríður sjálf, að hún væri hreint ekk­ert van­hæf. Vil­hjálmur kærði þá nið­ur­stöðu til Hæsta­réttar sem á eftir að úrskurða í mál­inu.

Lestu um gang mál­ins fyrir Lands­rétti hér.

Í grein­ar­gerð Vil­hjálms segir meðal ann­ars að það sé lyk­il­at­riði að fag­leg hæfni þeirra sem sækja um dóm­ara­emb­ætti ráði því hverjir velj­ast til dóm­ara­starfa, en ekki stjórn­mála­skoð­anir og póli­tísk tengsl við­kom­andi umsækj­anda eða geð­þótti dóms­mála­ráð­herra. Að öðrum kosti sé vegið að sjálf­stæði dóms­stóla, trausti almenn­ings á dóm­stólum og rétti sak­aðra manna til þess að fá úrlausn um ákæru á hendur sér fyrir sjálf­stæðum og óhlut­drægum dóm­stóli sem skip­aður sé með lögum sam­kvæmt stjórn­ar­skrá og mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu.

Brynjar gaf oddvitann til Sigríðar - sem skipaði konuna hans dómara

Þess ber að geta að Arn­fríður er eig­in­kona Brynjars Níels­sonar þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og nefnd­ar­manns í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis. Brynjar hefur þó sagt sig frá störfum nefnd­ar­innar þegar kemur að mál­efnum Lands­réttar.

[links]Í grein­ar­gerð­inni segir um Brynjar að hann sé flokks­bróðir dóms­mála­ráð­herra og hafi í aðdrag­anda síð­ustu Alþing­is­kosn­inga vikið úr fyrsta sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík suður fyrir dóms­mála­ráð­herra. „Aðspurður um ástæður þess að hann gæfi eftir odd­vita­sæti í Reykja­vík sagði Brynjar meðal ann­ars að hann hafi talið rétt að kona leiddi list­ann og dóms­mála­ráð­herra væri svo öflug kona,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

„Nokkrum mán­uðum áður, í jan­úar 2017, þegar verið var að mynda nýja rík­is­stjórn og ráð­herra­val Sjálf­stæð­is­flokks­ins lá fyrir hafði Brynjar lýst því yfir að hann væri ekki sér­stak­lega sáttur við að vera ekki ráð­herra,“ segir Vil­hjálmur og bætir því við að við sama tæki­færi hafi Brynjar sagst vilja horfa til nið­ur­stöðu kosn­inga þegar komi að ráð­herra­emb­ættum og lýð­ræðið væri bara þannig að það hefði verið haldið próf­kjör og úr því hafi komið sú nið­ur­staða að það væru fimm karlar og ein kona og bætti við að hann vildi bara horfa til þess að menn virði nið­ur­stöðu kosn­inga.

Vil­hjálmur segir það vekja furðu, þegar þessi ummæli Brynjars eru höfð í huga, að hann hafi ákveðið að víkja úr odd­vita­sæti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, sem hann hafði verið kos­inn til að skipa og gefa sætið eftir til dóms­mála­ráð­herra vegna þess að hann teldi rétt að kona skip­aði fyrsta sæti list­ans. „Með því varð ljóst að Brynjar yrði ekki ráð­herra kæmi til þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn kæmi að myndun nýrrar rík­is­stjórnar sem síðar varð raunin.“

Kúvending á afstöðu

Vil­hjálmur veltir því upp hvað hafi gerst á þessum nokkrum mán­uðum, frá jan­úar til sept­em­ber 2017, sem varð til þess að Brynjar kúventi afstöðu sinni að ein­göngu ætti að horfa til nið­ur­stöðu kosn­inga við nið­ur­röðun á fram­boðs­lista.

„Um það verður vita­skuld ekk­ert full­yrt en eitt af því sem sann­ar­lega átti sér stað á þessu tíma­bili var að 29. maí 2017 gerði dóms­mála­ráð­herra það að til­lögu sinni við Alþingi að Arn­fríður, eig­in­kona Brynjars, yrði skipuð dóm­ari við Lands­rétt, ekki ein­ungis þvert á álit dóm­nefndar heldur einnig án þess að sér­stakt mat færi fram á hæfni Arn­fríðar til þess að gegna emb­ætt­inu,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Vil­hjálmur segir enn, líkt og þegar málið var flutt fyrir Lands­rétti, að umbjóð­andi hans hljóti að spyrja sig að því hvers vegna dóms­mála­ráð­herra var svo mikið í mun að skipa Arnfríði í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt, hvers vegna hæf­ustu umsækj­end­urnir sam­kvæmt ítar­legu og rök­studdu áliti dóm­nefndar voru ekki skip­aðir og hvers veg­ana dóms­mála­ráð­herra hafi kosið að brjóta lög til þess að Arn­fríður gæti orðið lands­rétt­ar­dóm­ari.

„Þessum spurn­ingum getur varn­ar­að­ili vita­skuld ekki svarað með vissu að svo vöxnu máli en sú stað­reynd að varn­ar­að­ili má með réttu leiða hug­ann að þeim gerir það að verkum að ásýnd dóms­ins, hlut­rænt séð, er ekki sú að hann sé sjálf­stæður.“

Gert er ráð fyrir að Hæsti­réttur skili nið­ur­stöðu sinni í þess­ari viku, en það er skrif­lega flutt. Dóm­ar­arnir Markús Sig­ur­björs­son, Viðar Már Matth­í­as­son, Ólafur Börkur Þor­valds­son og Þorgeir Örlygs­son sitja í dómnum í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár