Ráðherra braut lög við skipan dómara í Landsrétt

Hér­aðs­dómur komst að nið­ur­stöðu um að dóms­mála­ráð­herra hefði brotið lög.

Sigríður Andersen
Sigríður Andersen Mynd: xd.is

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra braut lög við skipun Land­rétt­ar­dóm­ara. Þetta er nið­ur­staða hér­aðs­dóms sem kveðin var upp í dag. Dómurinn komst að þeirri nið­ur­stöðu að dóms­mála­ráð­herra hefði átt að óska eftir nýju áliti dóm­nefndar um hæfi umsækj­enda um dóm­ara­stöðu, ef hún taldi ann­marka á áliti dóm­nefnd­ar­innar.

Uppfært klukkan 14:44: Áréttað er að íslenska ríkið var sýknað af kröfum stefn­enda og máls­kostn­aður fellur niður. Ljóst er að ráð­herra var heim­ilt að leggja til skipun ann­arra umsækj­enda en þeirra sem dóm­nefnd taldi hæf­asta. „Það breytir hins vegar ekki því að ráð­herra bara eftir sem áður stjórn­skipu­lega ábyrgð á skipun dóm­ara við Lands­rétt [...] og var við hana bund­inn af almennum reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins, bæði hvað varðar með­ferð máls­ins sem og þá efn­is­legu ákvörðun sem ráð­herra tók þegar hún lagði til við Alþingi að til­teknir ein­stak­lingar yrðu skip­aðir í emb­ætti dóm­ara,“ segir í dómnum.

Dóminn má lesa í heild sinni hér.

Það er talið vera brot gegn dóm­stóla­lögum og reglum stjórn­sýslu­réttar að ekki hafi verið borin saman hæfni og reynsla dóm­ara­efna. Rök­stuðn­ing­ur­inn hafi verið óljós og heild­stæður sam­an­burður á umsækj­endum hafi ekki farið fram. „Ekki verður því full­yrt að ráð­herra hafi valið 15 hæf­ustu ein­stak­ling­ana í Lands­rétt.“

Í nið­ur­stöðukafla dóms­ins er tekið fram að „stjórn­sýslu­með­ferð ráð­herra hafi ekki verið í sam­ræmi við ákvæði laga nr. 50/2016 sem og skráðar og óskráðar reglur stjórn­sýslu­rétt­ar­ins um rann­sókn máls, mat á hæfni umsækj­enda og inn­byrðis sam­an­burð þeirra.“

Ríkið var sýknað af bóta­kröfum Ástráðs Har­alds­sonar sem höfð­aði mál gegn rík­inu vegna þess að hann fékk ekki dóm­ar­stöðu við Lands­rétt. Hann hefur ákveðið að áfrýja þeim þætti máls­ins til Hæsta­réttar sem lýtur að bóta­kröfu, að því er kemur fram í til­kynn­ingu frá lög­manni Ástráðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár