Maðurinn sem ber ábyrgð á skjálftanum á vinnumarkaði

Jónas Þór Guð­munds­son hæsta­rétt­ar­lög­maður hefur haft aðkomu að ákvörð­unum sem gætu haft þær afleið­ingar í dag að kjara­samn­ingum verði sagt upp. Gegnir for­mennsku bæði í kjara­ráði og stjórn Lands­virkj­unar.

Jónas Þór Guð­munds­son hæsta­rétt­ar­lög­maður er full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kjara­ráði og stjórn Lands­virkj­unar. Ákvarð­anir sem bæði ráðið og fyr­ir­tækið, undir hans stjórn, hafa tekið hefur sett stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði í algjört upp­nám og gætu jafn­vel orðið þess vald­andi að kjara­samn­ingum verði sagt upp í dag. For­manna­fundur ASÍ fundar nú á Hilton Nordica hót­el­inu þar sem kosið verður um upp­sögn kjara­samn­inga.

Hver er Jónas Þór?

Jónas hefur tekið virkan þátt í starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í fjölda ára. Hann var stjórn­ar­með­limur í Stefni, félagi ungra sjálf­stæð­is­manna í Hafn­ar­firði frá árunum 1994 til 1998 og þar af for­maður í eitt ár. Á árunum 1997 til 1999 var hann vara­for­maður Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna, en þá gegndi Ásdís Halla Braga­dóttir for­mennsku. Jónas bauð sig fram í það emb­ætti en laut í lægra haldi fyrir Sigurði Kára Krist­jáns­syni í kosn­ingu árið 1999, sem síðar varð þing­maður flokks­ins.

Jónas hefur í gegnum tíð­ina gegnt mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Þar meðal setið í emb­ætti for­manns kjör­stjórnar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi sem og gegnt for­mennsku í kjör­dæm­is­ráði Sjálf­stæð­is­flokks­ins í sama kjör­dæmi. Hann hefur setið í mið­stjórn flokks­ins sem og flokks­ráði þess. Fram­kvæmda­stjórn flokks­ins er í höndum mið­stjórnar sem ber ábyrgð á öllu innra starfi flokks­ins, hefur eft­ir­lits- og úrskurð­ar­vald um allar fram­kvæmdir á vegum hans, hefur umráð yfir eignum og gætir þess að skipu­lags­reglum sé fylgt. Flokks­ráð Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur það hlut­verk að marka stjórn­mála­stefnu flokks­ins ef ekki liggja fyrir ákvarð­anir lands­fundar. Ekki má taka ákvörðun um afstöðu flokks­ins til ann­arra stjórn­mála­flokka nema með sam­þykki flokks­ráðs og kemur ráðið því til dæmis saman þegar ný rík­is­stjórn er mynduð með aðild Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Jónas var einnig um tíma for­maður stjórnar Lög­manna­fé­lags Íslands en hann starfar alla jafna sem sjálf­stætt starf­andi lög­maður og rekur eigin lög­manns­stofu í Hafn­ar­firði. Áður en hann varð lög­maður starf­aði Jónas á laga­skrif­stofu dóms- og kirkju­mála­ráðu­neyt­is­ins en fyrir þann tíma sem kennslu­stjóri við laga­deild Háskóla Íslands.

Afleiðingar ákvarðana kjararáðs

Málefni kjara­ráðs gætu mögu­lega verið í þann mund að leiða til þess að verka­lýðs­for­ystan slíti kjara­samn­ingum vegna for­sendu­brests. Þar gegnir Jónas Þór for­mennsku en skipað var í kjara­ráð í júlí 2014 og sú skipun rennur út í júní á þessu ári. Þrír eru kosnir af Alþingi í ráð­inu, tveir af Hæsta­rétti og einn af fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

[links]Starfs­hópur sem skip­aður var af for­sæt­is­ráð­herra til að fjalla um mál­efni kjara­ráðs í lok jan­úar á þessu ári var sam­mála um að kjara­ráð hafi í ákvörð­unum sínum um kjör æðstu stjórn­enda rík­is­ins farið langt umfram við­mið ramma­sam­komu­lags aðila vinnu­mark­að­ar­ins og stjórn­valda frá árinu 2015, ákvarð­anir þess verið óskýrar, ógagn­sæjar og ekki sam­ræmst fyr­ir­mælum í lögum um störf ráðs­ins. Lagði starfs­hóp­ur­inn til að kjara­ráð yrði lagt niður og útaf­keyrsla þess yrði leið­rétt. Stirrinn núna stendur um með hvaða hætti útaf­keyrslan verður leið­rétt, en ASÍ vill að það verði gert strax, með lækkun þess­ara launa. Sem dæmi má nefna að laun ráð­herra hafa hækkað um 64 pró­sent eða um 800 þús­und á mán­uði, laun skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum um 52 pró­sent eða um 570 þús­und krónur á mán­uði og laun þing­manna um 48 pró­sent eða um 377 þús­und krónur á mán­uði. Meiri­hluti starfs­hóps­ins vill ekki fram­kalla lækk­un­ina strax heldur „frysta“ laun þeirra þar til þau nái við­miðum ramma­sam­komu­lags­ins. Ef farið yrði að til­lögu ASÍ myndu laun ráð­herra lækka um um það bil 300 þús­und á mán­uði, ráðu­neyt­is­stjóra um 107 þús­und, laun skrif­stofu­stjóra um rúm­lega 100 þús­und og laun þing­manna um 65 þús­und krónur á mán­uði.

ASÍ heldur því fram að fryst­ing launa æðstu stjórn­enda rík­is­ins gæti varað út árið 2018 fyrir suma en nokkur ár fyrir þá sem fengu mesta hækkun með úrskurðum kjara­ráðs. ASÍ telur að með því að „frysta“ haldi þessi hópur ekki ein­asta ofgreiddum launum upp á 671 milljón króna heldur fái áfram­hald­andi ofgreiðslur upp á 378 milj­ónir til við­bótar þar til fryst­ing­unni líkur. Þegar upp verður staðið mun útaf­keyrsla kjara­ráðs kosta rík­is­sjóð um 1.3 millj­arða. Þannig myndu 473 millj­ónir króna spar­ast ef farið væri að til­lögu ASÍ.

Úrskurðir um launa­hækk­anir kjara­ráðs hafa ítrekað ratað í fréttir á und­an­förnum árum. Kjararáð úrskurðar um launa­hækk­anir þjóð­kjör­inna full­trúa og ráð­herra, um laun dóm­ara og emb­ætt­is­manna, for­stöðu­manna rík­is­stofn­ana og fram­kvæmda­stjóra hluta­fé­laga í meiri hluta eigu rík­is­ins.

Launahækkanir í Landsvirkjun sprengja inn í viðkvæmar viðræður

Jónas var gerður að stjórn­ar­for­manni Lands­virkj­unar sama ár, 2014. Auk hans sitja í stjórn­inni Haraldur Flosi Tryggva­son hér­aðs­dóms­lög­maður, fyrr­ver­andi ráð­herr­arnir og þing­menn­irnir Álf­heiður Inga­dóttir og Ragn­heiður Elín Árna­dóttir og Kristín Vala Ragn­ars­dóttir pró­fessor.

Samkvæmt fréttum RÚV frá því í gær hækk­uðu sam­an­lögð laun stjórnar Lands­virkj­unar úr 12,7 millj­ónum króna í 19 millj­ónir milli áranna 2016 og 2017 sem er tæp­lega 50 pró­senta hækkun. Í athuga­semdum Lands­virkj­unar kemur fram að fyr­ir­tækið segi launin ekki hafa hækkað eins mikið og haldið er fram, 13 pró­sent hækk­un­ar­innar megi rekja til geng­is­þró­unar þar sem laun séu greidd í krónum en fyr­ir­tækið gerir upp í Banda­ríkja­dölum. Hækkun launa til stjórn­ar­manna sé um 5 pró­sent en sam­an­lagðar greiðslur til þeirra hafi hækkað meira þar sem und­ir­nefndum stjórnar sem þeir sitja í hafi fjölgað milli ára.

Í sam­tali við Kjarnann í gær sagð­ist Gylfi Arn­björns­son for­seti ASÍ orð­laus yfir fréttum af þessum hækk­unum og velti því upp hvort þær væri ekki fram­kvæmdar með sam­þykki rík­is­stjórnar og þess ráð­herra sem fer með mál­efni Lands­virkj­unar.

Gylfi sagði þau hjá verka­lýðs­hreyf­ing­unni búin að vera í deilum við stjórn­völd um með hvaða hætti grípa eigi inn í ákvarð­anir kjara­ráðs og á sama tíma sé verið að taka svona ákvarð­anir hjá Lands­virkjun. „Maður er bara alveg í for­undran að ráð­herra hafi sam­þykkt þessa nið­ur­stöð­u,“ sagði Gylfi. Nú er ljóst að sami mað­ur­inn á aðkomu að báðum þessum deilu­málum sem hafa sett vinnu­mark­að­inn í heild sinni í upp­nám - Jónas Þór Guð­munds­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár