Launahækkanir kjararáðs verða ekki teknar til baka

Tug­pró­senta launa­hækk­anir þing­manna, ráð­herra og ann­arra hátt­settra emb­ætt­is­manna verða ekki teknar til baka með lögum. Engar efn­is­legar for­sendur eru fyrir því að lækka almennt laun þeirra sem heyra undir kjara­ráð til fram­tíðar.

Starfshópurinn telur ekki fært, né að efnislegar forsendur séu fyrir því, að lækka laun þingmanna og ráðherra til framtíðar.
Starfs­hóp­ur­inn telur ekki fært, né að efn­is­legar for­sendur séu fyrir því, að lækka laun þing­manna og ráð­herra til fram­tíðar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Starfs­hópur um mál­efni kjara­ráðs telur það ekki færa leið að setja lög um aft­ur­virka end­ur­skoðun ákvarð­ana kjara­ráðs sem hefðu í för með sér end­ur­greiðslu­kröfu. Þá telur meiri­hluti hóps­ins heldur ekki fært né efn­is­legar for­sendur fyrir því að lækka almennt laun þeirra sem eiga undir kjara­ráð til fram­tíðar. „Meiri­hlut­inn bendir á að ef laun þeirra verða óbreytt til árs­loka 2018 myndi kjara­ráðs­hóp­ur­inn að með­al­tali taka hækk­unum sem ekki eru í ósam­ræmi við almenna launa­þróun. Fulltrúi ASÍ í starfs­hópnum telur það færa leið að lækka með lögum laun emb­ætt­is­manna og kjör­inna full­trúa.“

Þetta kemur fram í til­lögum sem fylgja skýrslu hóps­ins sem birt var í dag.

Það þýðir til að mynda að laun þing­manna og ráð­herra, sem voru hækkuð um tugi pró­senta með ákvörðun kjara­ráðs haustið 2016, verða ekki lækkuð með laga­setn­ingu.

Hópurinn starfaði í tæpan mánuð

Hópurinn var skip­aður 19. jan­úar síð­ast­lið­inn. Hlutverk hans var að bera saman fyr­ir­komu­lag um ákvörðun launa hjá kjörnum full­trú­um, dóm­urum og emb­ætt­is­mönnum í nágranna­löndum og leggja fram til­lögur að breyttu fyr­ir­komu­lagi launa­á­kvarð­ana kjara­ráðs, sé annað fyr­ir­komu­lag talið lík­legra til betri sáttar í þjóð­fé­lag­inu til fram­tíðar um ákvörðun launa þeirra sem stöðu sinnar vegna njóta ekki samn­ings­rétt­ar.

Auk þess á starfs­hóp­ur­inn að taka til skoð­unar úrskurði kjara­ráðs, meta með hlið­sjón af launa­setn­ingu og launa­breyt­ingum þeirra stétta sem samn­ings­frelsis njóta og þeirri launa­stefnu sem samið var um við meg­in­þorra launa­fólks og eftir atvikum leggja fram til­lögur um úrbæt­ur.

Ástæðan var það mikla launa­skrif sem verið hefur hjá hópum sem heyra undir kjara­ráð, sem eru æðstu stjórn­endur hjá rík­inu og dótt­ur­fyr­ir­tækjum þess.

Æðstu embættismenn þjóðarinnar hækkað um tugi prósenta

Mesta athygli vakti ákvörðun kjara­ráðs frá því í októ­ber 2016, þegar ráðið ákvað að hækka laun for­­seta Íslands, þing­far­­ar­­kaup alþing­is­­manna og laun ráð­herra.

Sam­­kvæmt úrskurði kjara­ráðs urðu laun for­­seta Íslands 2.985.000 krónur á mán­uði, þing­far­­ar­­kaup alþing­is­­manna 1.101.194 krónur á mán­uði, laun for­­sæt­is­ráð­herra að með­­­töldu þing­far­­ar­­kaupi varð 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­­arra ráð­herra að með­­­töldu þing­far­­ar­­kaupi urðu 1.826.273 krónur á mán­uði. Laun for­­sæt­is­ráð­herra voru áður tæp­­lega 1,5 millj­­ónir en laun for­­seta voru tæpar 2,5 millj­­ón­­ir. Laun þing­­­manna hækk­­­uðu hlut­­­falls­­­lega mest við ákvörðun Kjara­ráðs, eða um 44,3 pró­­­sent.

Aðstoð­ar­menn ráð­herra hafa líka fengið dug­lega launa­hækkun á und­an­förnum árum. Sumarið 2016 voru laun skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum hækkuð um allt að 35 pró­sent. Eftir þá hækkun eru laun aðstoð­ar­manna, sem miða við þau laun, um 1,2 millj­ónir króna á mán­uði.

Í des­em­ber hækk­aði kjara­ráð svo laun bisk­­ups, Agn­­esar Sig­­urð­­ar­dótt­­ur, um tugi pró­­senta. Í úrskurð­i vegna þessa kom fram að biskup skuli hafa tæp­­lega 1,2 millj­­ónir í mán­að­­ar­­laun auk 40 fastra yfir­­vinn­u­ein­inga. Ein ein­ing er 9.572 krónur og laun bisk­­ups því eftir hækkun alls 1.553.359 krónur á mán­uði.

Hækk­­unin var aft­­ur­­virk til 1. jan­úar 2017, sam­­kvæmt úrskurð­in­­um. Um ára­mót fékk biskup því ein­greiðslu fyrir síð­­asta árið en sú upp­­hæð nemur 3,3 millj­­ónir króna.

Launaþróun víkur ekki merkjanlega frá almennri þróun

Helstu nið­ur­stöður starfs­hóps­ins eru þær að launa­á­kvarð­anir kjara­ráðs hafi ítrekað skapað ósætti og leitt til óróa á vinnu­mark­aði. Lög­bundið við­mið Kjara­dóms og síðar kjara­ráðs hafi verið óskýr og ósam­rým­an­leg. Alþingi hefur ítrekað hlut­ast til um end­ur­skoðun úrskurða. Starfs­hóp­ur­inn telur því margt mæla með því að gjör­breyta núgild­andi fyr­ir­komu­lagi.

Hópurinn telur að gagn­sæi og fyr­ir­sjá­an­leika skorta um launa­á­kvarð­anir og raun­veru­leg laun. Hann bendir á að í nágranna­lönd­unum séu ákvarð­anir um laun kjör­inna full­trúa nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust teknar einu sinni á ári. End­ur­skoðun fylgir skil­greindri launa­þróun næsta ár á undan og að sam­an­burður á launum æðstu emb­ætt­is­manna, dóm­ara og kjör­inna full­trúa bendi ekki til þess að þau víki veru­lega frá því sem er í sam­an­burð­ar­lönd­unum.

Þá segir í nið­ur­stöðum hóps­ins að launa­þróun þeirra sem eigi undir kjara­ráð víki ekki merkj­an­lega frá almennri þróun launa á tíma­bil­inu 2006-2018. Á því tíma­bili sem kveðið er um í ramma­sam­komu­lagi aðila vinnu­mark­að­ar­ins og rík­is­ins hafi laun þeirra hækkað um 35-64 pró­sent en almenn þróun launa virð­ist liggja á bil­inu 43-48 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár