Mikil og almenn óánægja með kjararáð

Verka­lýðs­hreyf­ingin og atvinnu­rek­endur eru veru­lega ósáttir við þá stöðu sem úrskurðir kjara­ráðs hafa skapað á vinnu­mark­aði. Hið opin­bera er nú sagt orðið leið­andi í launa­þróun, með tug­pró­senta hækk­unum hjá stjórn­endum rík­is­ins.

Mikil óánægja er innan Alþýðu­sam­bands Íslands og Samtaka atvinnu­lífs­ins með ákvarð­anir kjara­ráðs að und­an­förnu, og miklar hækk­anir stjórn­enda hjá hinu opin­bera, í sumum til­fellum um tæp­lega 30 pró­sent, sem ráðið hefur ákvarðað.

Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, segir í við­tali við Við­skipta­blaðið að kjara­ráð sé núna komið í þá stöðu að leiða launa­þróun í land­inu með þeim ákvörð­unum sem ráðið hefur koma fram með að und­an­förnu. Þetta segir Gylfi að ráðið eigi ekki að gera. „Þetta er eitt­hvað sem eng­inn skilur og eng­inn sættir sig við. Kjararáð er nú mót­andi um launa­þróun í land­inu. Bæði upp­hæð launa, því þetta eru miklu hærri upp­hæðir en við þekkjum á almennum mark­aði svo ég tali nú ekki í samn­ingum hjá rík­inu, og líka í breyt­ingum. Það segir reyndar í lögum að kjara­ráð megi ekki vera launa­leið­andi en það gerir það samt. Það er ljóst að þing­menn og ráð­herrar hafa verið mjög sáttir við ákvarð­anir kjara­ráðs því þeir hafa ekk­ert aðhafst,“ segir Gylfi í við­tal­inu.

Halldór Benjamín Þor­g­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA), segir í sam­tali við Kjarnann að mikil and­staða sé innan SA með þá þróun sem hefur verið í úrskurðum kjara­ráðs að und­an­förnu. Hún sé skað­leg fyrir kom­andi kjara­við­ræður og algjör­lega úr takti við hlut­verk ráðs­ins.

Allt frá því kjara­ráð birti úrskurð um laun ráða­manna þjóð­ar­innar, á kjör­dag 29. októ­ber í fyrra, hefur verið mik­ill titr­ingur á vinnu­mark­aði. Strax í kjöl­far þess að úrskurð­ur­inn lá fyrir afsal­aði Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands sér hækk­un­inni, en þing­menn eða ráð­herrar gerðu það ekki.

Í sam­eig­in­legri ályktun fram­kvæmda­stjórna Samtaka atvinnu­lífs­ins og Við­skipta­ráðs, frá 1. Nóvember í fyrra, var Alþingi hvatt til þess að hafna alfarið hækk­unum og þær sagðar grafa undan trausti fyrir kom­andi kjara­við­ræður. „Í lögum um kjara­ráð er skýrt kveðið á um að ráðið skuli ætíð taka til­lit til almennrar þró­unar kjara­mála á vinnu­mark­aði. Þetta ákvæði hefur ráðið að engu haft í úrskurði um þing­far­ar­kaup og í úrskurðum um laun emb­ætt­is­manna und­an­farið ár.

Ákvörðun kjara­ráðs um launa­hækk­anir þing­manna og ráð­herra er í engu sam­hengi við almenna þróun á vinnu­mark­aði, hvort sem horft er til skemmri eða lengri tíma. Standi ákvörð­unin er vinnu­mark­að­ur­inn settur í full­komið upp­nám með til­heyr­andi tjóni fyrir almenn­ing og atvinnu­líf.“

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er þungt hljóð í mörgum stjórn­ar­mönnum Samtaka atvinnu­lífs­ins vegna þeirrar stöðu sem kjara­ráð hefur skapað á vinnu­mark­aði með úrskurðum sínum. Þeir telja þá hafa sett bæði verka­lýðs­hreyf­ing­una og SA í vonda stöðu, og raunar einnig stétt­ar­fé­lög opin­berra starfs­manna.

Ekkert hafi í reynd breyst, frá því í októ­ber í fyrra, og staðan orðið heldur snún­ari ef eitt­hvað er. Ólíkir hópar á vinnu­mark­aði horfi nú fyrst og fremst til launa­þró­unar æðstu ráða­manna hjá hinu opin­bera, þegar kemur að mark­miðum í kom­andi kjara­samn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár