Forseti ASÍ orðlaus yfir launahækkunum Landsvirkjunar

Gylfi Arn­björns­son for­seti ASÍ segir ráð­herra og rík­is­stjórn hljóta að sam­þykkja launa­hækk­anir Lands­virkj­unar og segir það alvar­legt að þetta komi ofan í sam­ræður verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar við stjórn­völd um kjara­ráð.

Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson er for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Samsett.

Gylfi Arn­björns­son for­seti ASÍ seg­ist orð­laus yfir fréttum af 45 pró­senta launa­hækk­unum stjórn­ar­manna og for­stjóra Lands­virkj­unar.

Greint var frá því í morgun á vef RÚV að sam­kvæmt árs­reikn­ingi Lands­virkj­unar hafi laun stjórn­ar­mann­anna hækkað með þessum hætti, en auk þess hafi laun fimm fram­kvæmda­stjóra og aðstoð­ar­for­stjóra hækkað um 24 pró­sent.

Í sam­tali við Kjarnann segir Gylfi þetta vera með ólík­indum. „Ég skil það sem svo að þetta hljóti að hafa verið með sam­þykki rík­is­stjórnar eða þessa ráð­herra sem fer með mál­efni Lands­virkj­unar. Eru þau ekki hlut­haf­inn?“

[links]Allar tölur í árs­reikn­ingnum eru í doll­urum, en sam­kvæmt því hafa laun stjórn­ar­manna og for­stjóra hækkað um 49 pró­sent milli ára en þegar tekið er til­lit til sterkara gengis krón­unnar má gera ráð fyrir að hækk­unin nemi 45 pró­sentum í íslenskum krónum. Með sama hætti hækk­uðu laun stjórn­ar­manna í tveimur dótt­ur­fé­lögum um 40 pró­sent og laun fimm fram­kvæmda­stjóra og aðstoð­ar­for­stjóra Lands­virkj­unar um 24 pró­sent.

Stjórn­ar­laun hækk­uðu úr 12,7 millj­ónum króna í nítján millj­ónir á milli ára, sam­kvæmt fram­setn­ingu árs­reikn­ings­ins. Laun for­stjóra fóru úr 1,7 milljón í 2,5 millj­ónir á mán­uði. Sam­an­lögð laun fimm fram­kvæmda­stjóra og aðstoð­ar­for­stjóra fóru úr 136 millj­ónum í 171 milljón, eða að með­al­tali úr 1,9 millj­óna króna mán­að­ar­launum í 2,4 millj­ónir.

Gylfi segir það alvar­legt að þetta mál komi ofan í umræð­una sem uppi hefur verið um mál­efni kjara­ráðs. „Ég veit ekki hvenær þessi ákvörðun um þessar launa­hækk­anir hefur verið tekin. Þetta birt­ist okkur bara í gegnum árs­reikn­ing­inn. Ég er bara orð­laus. Það er bara þannig. Bara orð­laus,“ segir Gylfi.

Hann seg­ist ekki geta sagt fyrir um afleið­ingar þessa í við­ræðum ASÍ við stjórn­völd um for­sendur kjara­samn­inga, en í síð­ustu viku lýsti mið­stjórn ASÍ því yfir að þau teldu for­sendur kjara­samn­inga brostnar vegna ákvarð­ana kjara­ráðs um launa­hækk­anir þeirra sem undir ráðið heyra. For­manna­fundur aðild­ar­fé­laga ASÍ fer fram á morgun þar sem fjallað verður um stöð­una og ákvörðun tekin um við­brögð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar.

„Við erum búin að vera í deilum við stjórn­völd um með hvaða hætti þau eigi að grípa inn í þegar kemur að kjara­ráði og á sama tíma er verið að taka svona ákvarð­anir hjá Lands­virkjun. Maður er bara alveg í for­undran að ráð­hera hafi sam­þykkt þessa nið­ur­stöðu,“ segir Gylfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár