Forsætisráðherra segir niðurstöðu ASÍ ekki koma á óvart

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir nið­ur­stöðu ASÍ um að for­sendur kjara­samn­inga séu brostnir komi henni ekki á óvart. Forseti ASÍ segir ekki of seint fyrir stjórn­völd að bregð­ast við.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir nið­ur­stöðu ASÍ um að for­sendur kjara­samn­inga séu brostnir komi henni ekki á óvart. Í sam­tali við Kjarnann sgir hún að ASÍ hafi til að mynda haft mjög skýra sýn hvað varði úrskurði kjara­ráðs, þó þeir séu ekki nefndir sér­stak­lega í yfir­lýs­ingu sam­bands­ins sem send var út fyrr í dag.

[links]Katrín seg­ist telja að sam­tal stjórn­valda við aðila vinnu­mark­að­ar­ins á und­an­förnum vikum hafi gengið mjög vel. „Ég tel að það hafi til dæmis skilað þeim nið­ur­stöðum að það eru allir sam­mála um hvernig eigi að breyta fyr­ir­komu­lagi títt­nefnds kjara­ráðs,“ segir Katrín.

Hún nefnir einnig það að fjórtán aðild­ar­fé­lög BHM hafi nú sam­þykkt kjara­samn­inga við ríkið og von­ast til að fram­þró­unin verði þannig að hægt verði að halda sam­tal­inu áfram. „Við þurfum að setja niður áætlun um hvaða mál við viljum fara dýpra ofan í og skýra betur aðkomu stjórn­valda um að tryggja hér ekki aðeins efna­hags­legan stöð­ug­leika heldur einnig félags­legan.“

Katrín seg­ist munu eiga fund með for­ystu­mönnum ASÍ á morgun til að ræða þessi mál. „Stjórn­völd eru að minnsta kosti öll að vilja gerð til þess að eiga gott sam­tal við aðila vinnu­mark­að­ar­ins og við förum bara yfir þessa stöðu núna.“

Gylfi segir ekki of seint að bregðast við

Í sam­tali við Kjarnann segir Gylfi Arn­björns­son for­seti ASÍ að málið sé enn í skoðun. Mið­stjórn ASÍ hefur ákveðið að boða til for­manna­fundar aðild­ar­fé­laga sam­bands­ins mið­viku­dag­inn 28. febr­úar næst­kom­andi þar sem fjallað verður um stöð­una og ákvörðun tekin um við­brögð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­inn­ar.

Gylfi segir að ákvarð­anir liggi í höndum for­manna aðilda­fé­laga ASÍ og að ljóst sé að fund­ar­boðið sé vegna þess að mat ASÍ sé að for­sendur kjara­samn­inga séu brostnar. „Enn er verið að vinna í þessum málum en matið á stöð­unni er svona,“ segir hann.

Hann bætir því við að hægt sé að bregð­ast við þeim aðstæðum sem uppi eru komnar og að enn sé tími og rúm til við­bragða af hálfu stjórn­valda áður en end­an­leg ákvörðun verði tekin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár