Forsendur kjarasamninga brostnar

For­sendur kjara­samn­inga eru brostnar að mati ASÍ. Mið­stjórn ASÍ fundar nú vegna máls­ins en sam­kvæmt ákvæði í samn­ing­unum koma þeir til end­ur­skoð­unar fyrir lok þessa mán­aðar.

Gylfi Arnbjörnsson er forseti ASÍ.
Gylfi Arn­björns­son er for­seti ASÍ.

For­sendur kjara­samn­inga eru brostnar að mati ASÍ. Mið­stjórn ASÍ fundar nú vegna máls­ins en sam­kvæmt ákvæði í samn­ing­unum koma þeir til end­ur­skoð­unar fyrir lok þessa mán­aðar.

Í yfir­lýs­ingu frá mið­stjórn­inni segir að það sé mat ASÍ að óbreyttu „að for­sendur um að launa­stefna kjara­samn­ing­anna hafi verið stefnu­mark­andi hafi ekki gengið eftir. Því er heim­ild til upp­sagnar þeirra fyrir lok febr­úar enn í gildi.“

[links]Vegna þess­arar stöðu hefur mið­stjórn ASÍ ákveðið að boða til for­manna­fundar aðild­ar­fé­laga sam­bands­ins mið­viku­dag­inn 28. febr­úar þar sem farið verður yfir málið og ákvörðun tekin um við­brögð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar.

ASÍ lýsti því yfir á föstu­dag að það vildi að laun for­seta, ráð­herra, þing­manna, ráðu­neyt­is­stjóra og skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum yrðu lækkuð strax, um sem nemur þeirri útaf­keyrslu sem sam­bandið telur að kjara­ráð hafi valdið með ákvörð­unum sínum um hækkun kjara þess­ara æðstu stjórn­enda rík­is­ins.

Þannig myndu laun þess­ara aðila fylgja eftir almennri launa­þróun. ASÍ var þátt­tak­andi í starfs­hópi sem skip­aður var að for­sæt­is­ráð­herra til að fjalla um mál­efni kjara­ráðs, en stafs­hóp­ur­inn var sam­mála um að kjara­ráð hafi farið langt umfram við­mið ramma­sam­komu­lags aðila á vinnu­mark­aði og stjórn­valda frá árinu 2015. Ákvarð­anir þess hafi verið ósýrar, ógagn­sæjar og ekki sam­ræmst fyr­ir­mælum í lögum um störf ráðs­ins. Starfs­hóp­ur­inn var einnig sam­mála um að leggja kjara­ráð niður og leið­rétta útaf­keyrslu þess. ASÍ hins vegar vildi að það yrði gert strax.

Meiri­hluti starfs­hóps­ins vildi ekki fram­kalla lækk­un­ina strax, heldur „frysta“ laun þeirra þar til þau nái við­miðum ramma­sam­komu­lags­ins.

ASÍ taldi að með því að frysta haldi þessi hópur ekki ein­asta „ofgreiddum launum“ heldur fái áfram­hald­andi ofgreiðslur þar til fryst­ing­unni líkur. Þegar upp væri staðið myndi útaf­keyrsla kjara­ráðs kosta rík­is­sjóð um 1,3 millj­arða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár