Tíu staðreyndir um útlendinga á Íslandi

Útlend­ingar hér­lendis hafa aldrei verið fleiri. Þeir eru af ýmsum toga. Sumir flokk­ast sem inn­flytj­endur, aðrir komu hingað sem kvótaflótta­menn. Svo er stór hópur hæl­is­leit­enda. Hér eru tíu stað­reyndir um þá.

Ísland hefur mest megnis tekið við flóttamönnum úr flóttamannabúðum í Sýrlandi á undanförnum misserum.
Ísland hefur mest megnis tekið við flótta­mönnum úr flótta­manna­búðum í Sýrlandi á und­an­förnum miss­erum. Mynd: EPA
  1. Komu­fólki má skipta í þrjá hópa: inn­flytj­endur, kvótaflótta­menn og hæl­is­leit­endur. Í árs­byrjun 2017 voru inn­flytj­endur tæp­lega 36 þús­und hér­lendis, eða 10,6 pró­sent mann­fjöld­ans. Inn­flytj­endur hafa aldrei verið fleiri. Pól­verjar eru lang­fjöl­menn­asti hópur inn­flytj­enda hér á landi ,eða 38,3 pró­sent. Samkvæmt mann­fjölda­spá sem Hagstofa Íslands birti í júní 2016 verða Íslend­ingar 442 þús­und tals­ins árið 2065. Í spánni er gert ráð fyrir að inn­flytj­endur verði fjórð­ungur þjóð­ar­innar eftir hálfa öld, eða um 110 þús­und tals­ins.
  2. Lang­flestir útlend­ingar sem búa á Íslandi búa í höf­uð­borg­inni Reykja­vík. Þar búa 12.990 erlendir rík­is­borg­arar og eru þeir 10,5 pró­sent íbúa henn­ar. Flestir þeirra búa í Breið­holt­inu, en inn­flytj­endur eru 29,2 pró­sent íbúa Efra-Breið­holts og 22,3 pró­sent íbúa í Bakka­hverf­inu. Útlend­ingar eru hins vegar sjald­séð­ari í sumum bæj­ar­fé­lögum en öðr­um. Í Garða­bæ, þar sem búa t.d. 15.410 manns, eru ein­ungis 580 erlendir rík­is­borg­ar­ar. Það þýðir að 3,7 pró­sent íbúa Garða­bæjar eru með erlent rík­is­fang.
  3. Kvótaflótta­menn eru þeir flótta­menn sem Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu Þjóðanna hefur óskað eftir að þjóðir heims taki á móti vegna stríðs­á­stands í heima­landi þeirra. Íslend­ingar hafa tekið á móti kvótaflótta­mönnum frá 13 löndum: Ung­verja­landi, Júgóslavíu, Víetnam, Pól­landi, Krajina, Kosovo, Kól­umbíu, Írak, Afganistan, Simbabve, Úganda, Kamerún og Sýr­landi. 
Meðal íslenskra sveit­ar­fé­laga sem tekið hafa á móti flótta­fólki eru Ísa­fjörð­ur, Horna­fjörð­ur, Blöndu­ós, Fjarð­ar­byggð, Dal­vík, Siglu­fjörð­ur, Akur­eyri, Reykja­nes­bær, Akra­nes, Hafn­ar­fjörð­ur, Kópa­vogur og Reykja­vík.
  4. Á Íslandi stendur kvótaflótta­mönnum meðal ann­ars til boða fjár­hags- og hús­næð­is­að­stoð, heil­brigð­is­þjón­usta, aðgangur að skóla­kerf­inu, túlka­þjón­usta og aðstoð við atvinnu­leit. Þeir eru skyldugir að sækja nám­skeið í íslensku, taka virkan þátt í atvinnu­leit og þiggja við­töl hjá sál­fræð­ingi til að fara yfir reynsl­una af búsetu í upp­runa­land­inu og af aðlög­un­inni í mót­töku­land­inu. Fólkið getur fengið íslenskan rík­is­borg­ara­rétt eftir að hafa verið búsett hér á landi í fimm ár.

  5. Ísland hefur tekið á móti 645 kvótaflótta­mönnum frá árinu 1956. Á næsta ári munum við taka við 50 í við­bót og höfum þá tekið við 695 á 62 árum, eða rúm­lega tíu á ári að með­al­tali. Útgjöld til mót­töku flótta­manna og hæl­is­leit­enda sem veitt er hæli hér á landi munu meira en tvö­fald­ast á næsta ári. Fer upp­hæðin úr 150 millj­ónum í 410 millj­ón­ir króna.
  6. Hæl­is­leit­endur eru þeir sem koma hingað til lands í leit að alþjóð­legri vernd. Ástæður þess eru mis­mun­andi. Sumir flýja heima­land sitt vegna stríðs, átaka eða ofsókna. Aðrir eru ein­fald­lega í leit að betra lífi en þeim býðst í heima­landi sínu. Mikil aukn­ing hefur orðið á umsóknum um hæli hér­lendis á síð­ustu árum. Umsóknir um hæli voru 51 árið 2010 en voru orðnar 355 árið 2015. Í fyrra þre­föld­uð­ust umsóknir og voru 1.130, þau mál sem fengu efn­is­með­ferð voru um helm­ingur þeirrar tölu. Um 80 pró­sent þeirra umsókna sem afgreiddar voru í fyrra var synj­að. Það þýðir að þeir sem fengu vernd voru 110 tals­ins. Það sem af er þessu ári hafa 82 fengið vernd og umsækj­endur hafa verið 626. Haldi þró­unin áfram verður fjöldi þeirra sem sækja um hæli hér­lendis mjög svip­aður því sem hann var í fyrra. Flestar synj­anir eru vegna þess að að umræddur hæl­is­leit­andi er frá landi sem Útlend­inga­stofnun flokkar sem öruggt. Í nýbirtu upp­gjöri rík­is­sjóðs fyrir fyrstu sex mán­uði árs­ins kemur fram að hrein útgjöld vegna rétt­inda ein­stak­linga hafi verið 2,2 millj­arðar króna sem var 1.251 millj­ónum meira en áætlað var. Þar seg­ir: „Í fjár­heim­ildum vegna árs­ins 2017 voru veru­lega van­á­ætl­aðar í fjár­laga­gerð fyrir árið 2017 í ljósi for­dæma­lausrar fjölg­unar hæl­is­um­sókna á síð­ustu mán­uðum árs­ins 2016. Kostn­aður vegna þess­ara umsókna hefur að mestu leyti fallið til á yfir­stand­andi ári.“
  7. Rauði kross­inn á Íslandi veitir hæl­is­leit­endur hér­lendis aðstoð sam­kvæmt samn­ingi við inn­an­rík­is­ráðu­neytið. Upp­lýs­inga­full­trúi Rauða kross­ins skrif­aði grein á Kjarnann í vik­unni vegna umræðu um hvað ein­stak­lingum sem hér óska alþjóð­legrar verndar stendur til boða og hvað ekki. Þar kom m.a. fram að hæl­is­leit­endur sem komið hafa til Íslands fá þjón­ustu frá annað hvort sveit­ar­fé­lagi og/eða Útlend­inga­stofn­un. Sveit­ar­fé­lögin sem veita hæl­is­leit­endum þjón­ustu eru Reykja­vík, Reykja­nes­bær og Hafn­ar­fjörð­ur. Þessir aðilar útvega hæl­is­leit­endum búsetu­úr­ræði. Athugið að þau ganga undir nafn­inu búsetu­úr­ræði en ekki hús­næði, enda nær hús­næði ekki nógu vel utan um hvers kyns híbýli þetta eru. Búsetu­úr­ræðin eru t.d. þannig að um 100 manns búa sam­an, um 30 her­bergi á gangi sem 2-3 deila eða jafn­vel heil fjöl­skylda saman í her­bergi, sem er hvorki stórt né íburð­ar­mik­ið.
  8. Tann­lækna­þjón­usta sem hæl­is­leit­endur á Íslandi fá felst í tveimur val­kost­um. Ann­að­hvort taka verkja­lyf við tann­pínu eða láta draga úr sér tenn­urn­ar. Í und­an­tekn­ing­ar­til­vikum er gert við tennur í börnum þjá­ist þau af tann­pínu. Leigu­bíla­þjón­usta hefur ekki staðið hæl­is­leit­endum til boða nema í neyð­ar­til­vikum þar sem um alvar­leg veik­indi hefur verið að ræða, en ekki svo alvar­leg að sjúkra­bíl þyrfti til. Hluti hæl­is­leit­enda hefur fengið strætókort. Ef umsækj­andi um alþjóð­lega vernd fær stöðu sem flótta­mað­ur, sem fæstir þeir sem hingað koma fá, þarf hann að yfir­gefa þau búsetu­úr­ræði sem honum hefur verið séð fyr­ir.
  9. Á sama tíma og komu­fólk (inn­flytj­endur, kvótaflótta­menn og hæl­is­leit­endur) hafa aldrei verið fleiri hefur efna­hags­leg vel­sæld á Íslandi aldrei verið meiri og kaup­máttur lands­manna aldrei verið hærri. Á sama tíma hefur þeim heim­ilum sem þiggja fjár­hags­að­stoð frá sveit­ar­fé­lögumfækkað á hverju ári frá 2013. Í fyrra fækk­aði þeim um 16,3 pró­sent og útgjöld sveit­ar­fé­laga vegna fjár­hags­að­stoðar lækk­uðu um 792 millj­ónir króna á milli 2015 og 2016, eða um 17,6 pró­sent. Útgjöld rík­is­sjóðs vegna greiðslu atvinnu­leys­is­bóta lækk­uðu að sama skapi um 1,5 millj­­arða króna í fyrra og 2,5 millj­­arða króna árið á und­­an. Sam­­kvæmt þessu er engin fylgni milli þess að útlend­ingum hér­­­lendis fjölgi og aukn­ingu á fjár­­hags­að­­stoð hins opin­bera.
  10. Í árs­skýrslu lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir árið 2016 segir að brotum hafi fækkað í umdæm­inu á árinu. Þannig var til að mynda ekk­ert mann­dráps­mál til rann­sóknar hjá emb­ætt­inu á árinu 2016. Á sama tíma og inn­flytj­end­ur, flótta­menn og hæl­is­leit­endur hafa aldrei verið fleiri.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár