Fjölgun útlendinga eykur ekki byrðar á félagslega kerfinu

Útlend­ingum fjölgar hratt á Íslandi. Á sama tíma dregst kostn­aður vegna félags­legar fjár­hags­að­stoðar og greiðslu atvinnu­leys­is­bóta saman. Engin tengsl virð­ast til staðar milli fjölgun útlend­inga og auk­ins fjár­hags­legs álags á félags­lega kerfið.

Þeim heim­ilum sem þáðu fjár­hags­að­stoð sveit­ar­fé­laga á árinu 2016 fækk­aði um 16,3 pró­sent frá árinu áður. Slíkum hefur fækkað á hverju ári frá árinu 2013. Alls lækk­uðu útgjöld vegna fjár­hags­að­stoðar um 792 millj­ónir króna á síð­asta ári, eða um 17,6 pró­sent. Þetta kemur fram í hag­tölum sem Hagstofa Íslands birti í síð­ustu viku. Í rík­is­reikn­ingi sem birtur var fyrr í þessum mán­uði kemur enn fremur fram að útgjöld rík­is­sjóðs vegna greiðslu atvinnu­leys­is­bóta lækk­uðu um 1,5 millj­arða króna í fyrra og 2,5 millj­arða króna árið á undan.

Á sama tíma fjölgar þeim útlend­ingum sem flytja til Íslands gríð­ar­lega hratt. Í byrjun árs 2013 voru erlendir rík­is­borg­arar á Íslandi 21.910 tals­ins en eru nú 31.470. Þeim hefur því fjölgað um tæp­lega tíu þús­und á örfáum árum og eru nú 9,3 pró­sent lands­manna.

Samkvæmt þessu er engin fylgni milli þess að útlend­ingum hér­lendis fjölgi og aukn­ingu á fjár­hags­að­stoð hins opin­bera. Útlend­ingar virð­ast koma til Íslandi til þess að vinna.

Flestir í Efra-Breiðholti, sárafáir í Garðabæ

Á síð­asta ári einu saman fluttu hingað til lands 7.859 erlendir rík­is­borg­arar en 3.644 slíkir fóru frá land­inu. Það þýðir að erlendum rík­is­borg­urum fjölg­aði um 4.215 á árinu 2016. Í Morg­un­blað­inu í gær kom fram að Vinnu­mála­stofnun áætl­aði að um fjögur þús­und manns muni koma erlendis frá í gegnum starfs­manna­leigur eða sem útsendir starfs­menn á þessu ári.

Í ágúst í fyrra greindi Kjarn­inn frá því að erlendir rík­is­borg­arar væru orðnir yfir tíu pró­­sent þeirra sem greiða skatta á Íslandi. Rúm­­lega annar hver nýr skatt­greið­andi hér­­­lendis á síð­­­ustu árum hefur komið erlendis frá og á árinu 2015 einu saman voru 74,4 pró­­sent allra nýrra skatt­greið­enda erlendir rík­­is­­borg­­ar­­ar. Það þýðir að þrír af hverjum fjórum sem bætt­ist við skatt­grunn­­skrá lands­ins í fyrra voru erlendir rík­­is­­borg­­arar en einn af hverjum fjórum var íslenskur rík­­is­­borg­­ari.

Lang­flestir útlend­ingar sem búa á Íslandi búa í höf­uð­borg­inni Reykja­vík. Þar búa 12.990 erlendir rík­is­borg­arar og eru þeir 10,5 pró­sent íbúa hennar. Flestir þeirra búa í Breið­holt­inu, en inn­flytj­endur eru 29,2 pró­sent íbúa Efra-Breið­holts og 22,3 pró­sent íbúa í Bakka­hverf­inu.

Útlend­ingar eru hins vegar sjald­séð­ari í sumum bæj­ar­fé­lögum en öðrum. Í Garðabæ, þar sem búa t.d. 15.410 manns, eru ein­ungis 580 erlendir rík­is­borg­arar. Það þýðir að 3,7 pró­sent íbúa Garða­bæjar eru með erlent rík­is­fang. Það er mark­tækt mun lægra hlut­fall en hjá hinum stóru sveit­ar­fé­lög­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í Hafn­ar­firði eru erlendir rík­is­borg­arar 8,8 pró­sent íbúa og í Kópavogi 7,7 pró­sent.

Verða fjórðungur landsmanna

Hag­stofan birti í lok júní í fyrra nýja mann­fjölda­spá sem nær til árs­ins 2065. Í mið­spá stofn­un­ar­innar var gert ráð fyrir að Íslend­ingar væru orðnir 442 þús­und í lok spá­tíma­bils­ins, en þeir eru nú 340 þús­und.

Sam­­kvæmt spánni munu fleiri flytja til lands­ins en frá því næstu hálfu öld­ina. Þar sagði: „­Fjöldi aðfluttra verður meiri en brott­­­fluttra á hverju ári, fyrst og fremst vegna erlendra inn­­­flytj­enda. Íslenskir rík­­­is­­­borg­­­arar sem flytja frá land­inu munu halda áfram að vera fleiri en þeir sem flytja til lands­ins.“

Gangi spá Hag­stof­unnar eftir verða erlendir rík­is­borg­arar orðnir 107 þús­und tals­ins árið 2065, eða um fjórð­ungur þjóð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár