Þrír af hverjum fjórum nýjum skattgreiðendum eru erlendir

Erlendum rík­is­borg­urum sem greiða skatta á Íslandi hefur fjölgað gríð­ar­lega á und­an­förnum árum. Greiðslur ríkis vegna atvinnu­leys­is­bóta hafa dreg­ist veru­lega saman og kostn­aður vegna félags­legrar fram­færslu líka.

Erlendir rík­is­borg­arar eru nú yfir tíu pró­sent þeirra sem greiða skatta á Íslandi. Rúmlega annar hver nýr skatt­greið­andi hér­lendis á síð­ustu árum hefur komið erlendis frá og á árinu 2015 einu saman voru 74,4 pró­sent allra nýrra skatt­greið­enda erlendir rík­is­borg­arar. Það þýðir að þrír af hverjum fjórum sem bætt­ist við skatt­grunn­skrá lands­ins í fyrra voru erlendir rík­is­borg­arar en einn af hverjum fjórum var íslenskur rík­is­borg­ari.

Á sama tíma voru greiðslur í félags­lega aðstoð þær lægstu sem þær hafa verið frá hruni. Í fyrra, þegar útlend­ingum sem fluttu til Íslands fjölg­aði meira en þeim hafði gert árum saman, dróg­ust slíkar greiðslur saman í fyrsta sinn í átta ár. Umfang greiðslu atvinnu­leys­is­bóta hefur enn fremur dreg­ist mjög saman sam­hliða fjölgun erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi. Árið 2011, þegar fjöldi þeirra náði lág­marki eftir hrun, greiddi íslenska ríkið 24,7 millj­arða króna í atvinnu­leys­is­bætur. Í fyrra, þegar fjöldi erlendra rík­is­borg­ara náði hámarki eftir hrun, var sú upp­hæð 8,8 millj­arðar króna.

Þetta kemur fram í nýjasta tölu­blaði Tíundar, frétta­blaðið rík­is­skatt­stjóra, sem er komið út.

Erlendum fjölgar hratt á meðal skattgreiðenda

Í blað­inu ritar Páll Kolbeins,rekstr­ar­hag­fræð­ingur hjá emb­ætt­inu, grein um álagn­ingu ein­stak­linga á árinu 2016. Þar segir að erlendir rík­is­borg­arar hafi streymt til Íslands á und­an­förnum árum til að starfa hér­lendis. Þeir eru aðal­lega að starfa í ferða­þjón­ustu, sem er í örum vexti.

Í Tíund er bent á að á árunum fyrir hrun hafi erlendum rík­is­borg­urum sem greiddu skatta hér­lendis fjölgað mjög mikið á fáum árum. Árið 2007 voru þeir orðnir 30.435 og 11,5 pró­sent allra fram­telj­enda. Margir erlendu rík­is­borgar­anna yfir­gáfu landið í kreppu eft­ir­hrunsár­anna þegar atvinnu­leysi rauk upp og tæki­færum fækk­aði hratt. Árið 2011 var fjöldi þeirra sem greiddu skatt hér orð­inn tæp­lega 20 þús­und og hafði þeim fækkað um 35,9 pró­sent frá því sem mest var.

Síðan þá hefur þeim fjölgað hratt og í lok síð­asta árs voru þeir 8.793 fleiri en þeir voru 2011. Erlendir rík­is­borg­arar á skatt­grunn­skrá eru nú 10,2 pró­sent fram­telj­enda á grunn­skrá.

Til við­bótar er bent á í Tíund að frá árinu 2011 hefur 55,5 pró­sent fjölg­unar á skatt­grunn­skrá verið vegna erlendra rík­is­borg­ara. Það þýðir á manna­máli að rúm­lega einn af hverjum tveimur nýjum skatt­greið­endum á Íslandi á síð­ustu fjórum árum eru erlendir rík­is­borg­arar. Íslend­ingar eru nú innan við 90 pró­sent fram­telj­enda á skatt­grunn­skrá.

Fækkun í félagslegri framfærslu

Ljóst er að þessir erlendu rík­is­borg­arar eru ekki að íþyngja félags­legum kerfum okkar þar sem greiðslur vegna félags­legrar fram­færslu og atvinnu­leysis eru að drag­ast hratt saman.

Í grein Páls kemur fram að sveit­ar­fé­lög greiddu 3,4 millj­arða króna í húsa­leigu­bætur, félags­lega aðstoð og styrki á árinu 2015. Það er 365 millj­ónum krónum minna en árið áður og greiðsl­urnar lækk­uðu því um 9,6 pró­sent á milli ára. Þetta er í fyrsta sinn í átta ár sem þessi liður lækkar en hann hækk­aði um 87,2 pró­sent milli 2007 og 2010 og hafði haldið áfram að hækka eftir það.

Þeim sem þiggja ofan­greindar bætur fjölg­aði mjög í kjöl­far hruns­ins. Árið 2007 þáðu 3.090 slíkar bætur en fjölg­aði í 5.742 árið 2013, þegar mest var.

123 milljarðar í atvinnuleysisbætur frá hruni

Greiðslur rík­is­sjóðs vegna atvinnu­leys­is­bóta hafa líka dreg­ist skarpt saman. Fyrir banka­hrun, árið 2007, var atvinnu­leysi í lág­marki. Þá greiddi rík­is­sjóður 2,7 millj­arða króna í atvinnu­leys­is­bætur til 4.560 manns. Tveimur árum síðar, árið 2009, var allt breytt. Þá hafði fjöldi atvinnu­lausra marg­fald­ast og var orð­inn 27.638. Þá voru greiddir 24,7 millj­arðar króna í atvinnu­leys­is­bætur, eða rúm­lega níu sinnum sú upp­hæð sem greidd var í slíkar árið 2007.

Á und­an­förnum árum hefur umfang greiðslna atvinnu­leys­is­bóta dreg­ist saman, sam­hliða hærra atvinnustigi (skráð atvinnu­leysi var t.d. tvö pró­sent í júlí 2016). Bóta­greiðslur eru samt sem áður fremur háar og bóta­þegar margir miðað við það sem var fyrir hrun. Í fyrra greiddi Vinnu­mála­stofnun alls 8,8 millj­arða króna í atvinnu­leys­is­bætur, sem er 2,2 millj­örðum króna minna en hún gerði árið áður. Alls fengu 10.864 greiddar bætur úr Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði á árinu 2015, sem er 16.774 færri en fengu bætur árið 2009. Í Tíund kemur fram að sam­tals afi verið greiddir 123 millj­arðar króna í atvinnu­leys­is­bætur frá hruni og fram til loka síð­asta árs.

Útlendingum mun halda áfram að fjölga

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um brott- og aðflutn­ing íslenskra rík­is­borg­ara til lands­ins í frétta­skýr­ingu í gær. Tilefnið var að Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra sagði útlit fyrir að fleiri Íslend­ingar myndu flytja til lands­ins en frá því á þessu ári. Þá skoðun byggði hann á tölum frá öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins 2016, þegar 150 fleiri íslenskir rík­is­borg­arar fluttu til Íslands umfram aðflutta. Þegar fyrri helm­ingur árs er skoð­aður fer sú tala hins vegar niður í 40 auk þess sem fólks­flutn­ingar frá Íslandi hafa ætið verið meiri seinni hluta árs en fyrri hluta þess. Það atvikast meðal ann­ars af því að Íslend­ingar sem ljúka námi erlendis og flytja heim, gera það oft á fyrri hluta árs. Þeir sem fara utan til náms yfir­gefa landið hins vegar í flestum til­fellum á síð­ari hluta árs.

Sam­kvæmt gagna­grunni Hag­stof­unnar hafa brott­fluttir umfram aðflutta Íslend­inga aðeins verið mark­tækt fleiri í fimm skipti síðan árið 1961, en það var alltaf í kjöl­far kreppu­ára á Íslandi. Sú er hins vegar ekki raunin núna.

Í nýrri mann­fjölda­spá Hagstofu Íslands fyrir árin 2016 til 2065 kemur fram að ekki verður nein breyt­ing á ef fram fer sem horfir. Þar segir: „Fjöldi aðfluttra verður meiri en brott­fluttra á hverju ári, fyrst og fremst vegna erlendra inn­flytj­enda. Íslenskir rík­is­borg­arar sem flytja frá land­inu munu halda áfram að vera fleiri en þeir sem flytja til lands­ins.“ Hag­stofan gerir ráð fyrir því að að með­al­tali muni 850 fleiri íslenskir rík­is­borg­arar flytja af landi brott á ári hverju en flytj­ist til bak­a.

Fjöldi aðfluttra umfram brott­flutta verður hins vegar meiri áfram, en það er fyrst og fremst vegna erlendra inn­flytj­enda. Því má búast við að hlut­fall erlendra rík­is­borg­ara í skatt­greiðslum á Íslandi muni halda áfram að vaxa hratt á næstu árum og ára­tugum ef fram fer sem horfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár