Er rétt að fleiri Íslendingar flytji nú heim?

Sigurður Ingi Jóhanns­son segir útlit fyrir að fleiri Íslend­ingar muni flytja til lands­ins en frá því á þessu ári. Það er hins vegar tals­verð fljót­færni að álykta nokkuð í þá veru.

„Nýjar tölur sýna að Íslend­ingar erlendis eru aftur farnir að sjá tæki­færi á Íslandi og séu að koma heim. Sjald­gæft er að aðfluttir Íslend­ingar séu fleiri en brott­fluttir en nú er útlit fyrir að þetta ár verði það þriðja af síð­ustu sautján árum þar sem fleiri íslenskir rík­is­borg­arar flytja til lands­ins en frá því.“ 

Þetta sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í ræðu sinni um stöðu þjóð­mála á Alþingi í dag. Í ljósi þess að mikil umræða hefur verið um þróun brott­fluttra og aðfluttra Íslend­inga ákvað Kjarninn að kanna þessa full­yrð­ingu Sigurðar Inga frekar. Nið­ur­staðan er sú að Sigurður Ingi er heldur fljót­fær í ályktun sinni um að nú muni þró­unin snú­ast við og fleiri flytja heim en burt.

Sigurður Ingi talar um nýjar tölur, og vissu­lega er það rétt að sam­kvæmt mann­fjölda­tölum Hag­stof­unnar fyrir annan árs­fjórð­ung árs­ins 2016 flutt­ust 150 fleiri íslenskir rík­is­borg­arar til Íslands en fluttu burt. Á fyrsta árs­fjórð­ungi voru brott­fluttir hins vegar 110 umfram aðflutta, sem gerir að verkum að fyrir fyrri helm­ing árs­ins 2016 hafa 40 ein­stak­lingar flutt til lands­ins umfram þá sem flutt hafa burt. Í sam­hengi við und­an­farin ár er það mjög lítið, auk þess sem fólks­flutn­ingar frá land­inu hafa iðu­lega verið meiri á seinni hluta árs.

Fólk flytur burt í góðærinu

Það vakti mikla athygli undir lok síð­asta árs þegar Morg­un­blaðið greindi frá því að útlit væri fyrir að árið yrði eitt mesta brott­flutn­ingsár íslenskra rík­is­borg­ara á síð­ari tímum. Þá höfðu 1.130 fleiri flutt frá land­inu en til þess, og þessi tala end­aði í 1.265. 1.265 fleiri íslenskir rík­is­borg­arar fluttu burt en fluttu heim í fyrra.

Samkvæmt gagna­grunni Hag­stof­unnar höfðu brott­fluttir umfram aðflutta aðeins verið mark­tækt fleiri í fimm skipti síðan árið 1961, en það var alltaf í kjöl­far kreppu­ára á Íslandi. Sú er ekki raunin núna. Ásgeir Jónsson, dós­ent í hag­fræði við Háskóla Íslands, velti því upp að eitt­hvað djúp­stæð­ara væri á ferð­inni núna en kreppu­flutn­ingar, og að vís­bend­ingar væru um að margt háskóla­fólk flytti úr landi.

Hagstofan spáir áframhaldi næstu 50 árin

Og sam­kvæmt Hag­stof­unni, sem heldur utan um öll þessi gögn, er ekki neitt útlit fyrir að þessi þróun muni breyt­ast. Því er þvert á móti spáð í mann­fjölda­spá Hag­stof­unnar fyrir árin 2016 til 2065 að „íslenskir rík­is­borg­arar sem flytja frá land­inu munu halda áfram að vera fleiri en þeir sem flytja til lands­ins.“ Því er spáð að að með­al­tali verði um 850 íslenskir rík­is­borg­arar brott­fluttir en aðfluttir á hverju ári.

Fjöldi aðfluttra umfram brott­flutta verður hins vegar meiri áfram, en það er fyrst og fremst vegna erlendra inn­flytj­enda.

Þannig að það er heldur snemmt að spá því að fleiri Íslend­ingar muni flytja til lands­ins en frá því á árinu 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár