Spá að Íslendingar verði orðnir 442 þúsund árið 2065

Íslend­ingum mun fjölga um þriðj­ung næstu hálfu öld­ina sam­kvæmt nýrri mann­fjölda­spá sem Hagstofa Íslands hefur birt. Miðspá stofn­un­ar­innar gerir ráð fyrir að Íslend­ingar verði orðnir 442 þús­und alls árið 2065, en þeir voru 332 þús­und í byrjun þessa árs. Háspá Hag­stof­unnar segir að íbú­arnir verði orðnir 523 þús­und í lok spá­tíma­bils­ins en lág­spáin gerir ráð fyrir að þeir verði 369 þús­und, og fjölgi þar með ein­ungis um 37 þús­und á tíma­bil­inu.

Í mann­fjölda­spánni er gerð grein fyrir áætl­aðri stærð og sam­setn­ingu mann­fjölda í fram­tíð­inni. Spáin byggir á töl­fræði­lík­önum fyrir búferla­flutn­inga, frjó­semi og dán­ar­tíðni.

Útlendingum fjölgar, Íslendingar flytja burt

Samkvæmt spánni munu fleiri flytja til lands­ins en frá því næstu hálfu öld­ina. Fjölg­unin verður aðal­lega vegna erlendra inn­flytj­enda. Íslend­ingar sem flytja frá land­inu verða hins vegar áfram fleiri en þeir sem kjósa að flytja aftur til Íslands.

Öldruðum mun fjölga hratt á Íslandi á næstu ára­tugum. Ástæðan er fyrst og fremst sú að Íslend­ingar lifa mun lengur en þeir gerðu áður og sú þróun mun halda skarpt áfram. Meðalævi Íslend­inga mun lengj­ast þannig að með­al­ævi­lengd karla við fæð­ingu hækkar úr 79,6 árum árið 2016 í 84,3 ár árið 2065, en kvenna úr 83,6 árum árið 2016 í 88,6 ár árið 2065. Hlutfall þeirra lands­manna sem verða yfir 65 ára fer yfir 20 pró­sent árið 2035 sam­kvæmt spánni og yfir 25 pró­sent árið 2061. Frá árinu 2049 verða þeir sem eru eldri í fyrsta sinn fleiri en þeir sem eru yngri en tví­tugir í sögu lands­ins. Í frétt Hag­stof­unnar segir: „Þótt þjóðin sé að eld­ast og fólks­fjölgun verði fremur hæg þá eru Íslend­ingar nú, og verða enn um sinn, mun yngri en flestar Evr­ópu­þjóðir. Árið 2060 verður meira en þriðj­ungur Evr­ópu­búa eldri en 65 ára en ein­ungis um fjórð­ungur Íslend­inga.“

Kynja­hlut­fall þjóð­ar­innar mun einnig breyt­ast umtals­vert. Karlar verða fleiri en konur á hverju ári næstu 50 árin. Í mann­fjölda­spánni segir að fyrir þessu séu nokkrar ástæður. „Fleiri drengir fæð­ast á hverju ári en stúlkur, fjölda fæð­inga, mis­mun­andi dán­ar­tíðni kynj­anna, ólíkum lífslíkum kynj­anna og ólíkri hegðun kynj­anna hvað varðar búferla­flutn­inga.“ Þá breyti mik­ill inn­flutn­ingur karl­kyns verka­fólks umfram kven­kyns skyndi­lega kynja­sam­setn­ingu þjóð­ar­innar.

Þessi þróun er öfug við það sem ger­ist í flestum Evr­ópu­ríkjum, þar sem karlar eru færri enn konur. Sama gildir raunar um önnur lönd þar sem með­al­aldur fer hækk­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár