Icelandair upp og Hagar niður

Mikil við­skipti hafa verið með bréf Icelandair og Haga í Kaup­höll­inni í dag, en gengi flug­fé­lags­ins hefur styrkst nokkuð sam­hliða verð­lækkun bréfa í Högum.

Höfuðstöðvar Kauphallarinnar á Íslandi.
Höf­uð­stöðvar Kaup­hall­ar­innar á Íslandi.

Töluverð við­skipti áttu sér stað við opnun Kaup­hall­ar­innar í dag, en gengi Icelandair hefur styrkst enn frekar á sama tíma og hluta­bréf Haga halda áfram að falla niður.

Meiri­hluti við­skipta dags­ins í Kaup­höll­inni hafa verið í fyr­ir­tækj­unum tveimur, eða 840 millj­ónir af 1493. Frá opnun mark­aða í morgun hafa hluta­bréf í Högum lækkað um 4,22% í 349 millj­óna króna við­skiptum, en hluta­bréf Icelandair hafa hækkað um 1,98% í 491 millj­óna króna við­skiptum.

Kjarninn greindi frá kaupum lyk­il­stjórn­enda í Icelandair síð­asta föstu­dag, en Björgólfur Jóhann­es­son, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, og Bogi Nils Bogason, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála flug­fé­lags­ins, keyptu hluta­bréf í því fyrir tæp­lega 18 millj­ónir króna. Í kjöl­farið rauk hluta­bréfa­gengi félags­ins upp, en virði hluta­bréfa þeirra höfðu auk­ist um 6,69% í 1.222 millj­óna króna við­skiptum við lokun mark­aða á föstu­dag­inn.

Hluta­bréf í Högum hafa verið á hraðri nið­ur­leið und­an­farna daga, en félagið sendi frá sér afkomu­við­vörun eftir lok mark­aða föstu­dag­inn 4. ágúst. Við­vör­unin sýndi spá um 20% minni fram­legð yfir sum­ar­mán­uð­ina í ár miðað við í fyrra, en í henni segir einnig að ljóst sé að „breytt staða á mark­aði hefur mikil áhrif á félagið.“

Fyr­ir­tækið hefur átt erfitt upp­dráttar allt frá komu Costco, en dag­inn fyrir opnun banda­ríska vöru­húss­ins stóð mark­aðsvirði Haga í 64,6 millj­örðum króna. Í dag stendur mark­aðsvirði þess í 42,3 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár