Gengi Icelandair rauk upp um 6,7% eftir kaup lykilstjórnenda

Verð á hluta­bréfum í Icelandair hækk­aði um 6,69% í dag, eftir til­kynn­ingu for­stjóra og fjár­mála­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins um kaup á bréfum í því.

Svo virðist sem hlutabréf í Icelandair hafi tekist á loft í dag.
Svo virð­ist sem hluta­bréf í Icelandair hafi tek­ist á loft í dag. Mynd: Eric Salard

Verð hluta­bréfa í Icelandair hefur hækkað um 6,69% í Kaup­höll­inni í dag, í kjöl­far þess að tveir lyk­il­stjórn­endur félags­ins keyptu í því fyrir tæp­lega 18 millj­ónir króna.

[links]Kjarninn fjall­aði um það fyrr í dag að Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair Group, og Bogi Nils Bogason, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála fyr­ir­tæk­is­ins höfðu keypt hluta­bréf í því fyrir tæp­lega 18 millj­ónir króna, en Kauphöll Íslands birti til­kynn­ingu Icelandair um við­skipti inn­herja um hádeg­is­bil í dag.

Svo virð­ist sem margir hafi ákveðið að fylgja ákvörðun stjórn­end­anna og kaupa hluta­bréf í fyr­ir­tæk­inu, en við lokun mark­aða í dag hafði mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins hækkað um 6,69% frá morgni í 1.222 millj­óna króna við­skiptum.

Mark­aðsvirði Icelandair hefur lækkað um helm­ing frá því í apríl í fyrra, en hluta­bréf þeirra hrundu um 24% á einum degi í febr­úar eftir slæma afkomu­við­vörun. Virði hluta­bréfa þeirra hafa farið úr því að vera 38,9 krónur í apríl 2016 niður í 15,15 krónur í dag. Virði allra hluta­bréfa félags­ins stendur nú í um 74 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár