Hrun á gengi bréfa Haga við opnun markaða

Mark­aðsvirði Haga hefur lækkað um fjóra millj­arða króna frá opnun markað í morgun. Það hefur minnkað um 24,4 millj­arða króna frá opnun Costco í maí.

Hagar reka meðal annars verslanir Bónus um allt land.
Hagar reka meðal ann­ars versl­anir Bónus um allt land. Mynd: Anton Brink

Hluta­bréf í Högum hafa lækkað um 8,51 pró­sent frá því að mark­aðir opn­uðu í morgun í 62 millj­óna króna við­skiptum. Ástæðan er án efa afkomu­við­vörun sem félagið sendi frá sér eftir lokun mark­aða á föstu­dag, þar sem greint var frá því að bráða­birgða­upp­gjör fyrir júlí­mánuð sýndi að sölu­sam­dráttur í magni og krónum átti sér áfram stað í júlí líkt og í júní­mán­uði.

[links]Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar sagði að ljóst sé „að breytt staða á mark­aði hefur mikil áhrif á félag­ið.“ Gera má ráð fyrir að EBITDA Haga, sem er skráð félag á mark­aði, verði um 20 pró­sent lægri fyrir tíma­bilið mars til ágúst 2017 en á sama tíma­bili í fyrra. Þetta er í annað sinn sem Hagar senda frá sér afkomu­við­vörun á tveimur mán­uð­um. Sú fyrri var send út í byrjun júlí og var vegna þess að upp­gjör fyrir júní­mánuð sýndi umtals­verðan sam­drátt milli ára.

Mark­aðsvirði Haga hefur hríð­fallið eftir að Costco opn­aði í maí. Daginn áður en að Costco opn­aði var mark­aðsvirði Haga 64,6 millj­arðar króna. Fyrir opnun mark­aða í morgun var það 46,1 millj­arður króna og þegar þessi frétt er skrifuð er mark­aðsvirðið 42,2 millj­arðar króna.

[adspot]Hagar eru stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæki á Íslandi. Það rekur meðal ann­ars versl­anir Bónus og Hag­kaupa. Félag­ið, sem er skráð á markað og er að mestu í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða. Félagið varð fyrir áfalli í síð­asta mán­uði þegar Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafn­aði sam­runa þess við Lyfju. Hagar til­kynntu um það í lok apríl 2017 að félagið ætl­aði að kaupa Olís á 9,1 millj­arða króna. Þau kaup bíða einnig sam­þykkis Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár