Segir Samkeppnisyfirvöld verða að taka tillit til áhrifa af komu Costco

Áhrif Costco á íslenskan dag­vöru­markað virð­ast vera mikil. Hagar hafa tví­vegis sent frá sér afkomu­við­vörun og bréf í félag­inu hafa hríð­fallið í verði. Fram­kvæmda­stjóri SVÞ segir Sam­keppn­is­eft­ir­litið verða að taka til­lit til hinna breyttu aðstæðna.

Innkoma Costco á íslenskan dagvörumarkað hefur gjörbreytt stöðunni á honum. Fyrirtækið leggur m.a. mikið upp úr því að selja grænmeti og ávexti.
Innkoma Costco á íslenskan dag­vöru­markað hefur gjör­breytt stöð­unni á honum. Fyr­ir­tækið leggur m.a. mikið upp úr því að selja græn­meti og ávexti. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Andrés Magn­ús­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka versl­unar og þjón­ustu (SVÞ), segir sam­keppn­is­yf­ir­völd verði að taka til­lit til þess að sam­keppn­isum­hverfið hér­lendis sé að gjör­breyt­ast og að það verði að fylgj­ast með þeirri þróun sem nú sé að eiga sér stað á smá­sölu­mark­aði. Það sé áhyggju­efni ef að ákvörðun [links]Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins í máli Haga og Lyfju, þar sem eft­ir­litið ógilti sam­runa félag­anna tveggja, verði ávísun á það sem komi skuli í sam­bæri­legum málum sem eft­ir­litið hefur nú til með­ferðar. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Hagar eru stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæki á Íslandi. Það rekur meðal ann­ars versl­anir Bónus og Hagkaupa. Félagið, sem er skráð á markað og er að mestu í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða, hefur reynt að bregð­ast við inn­komu alþjóð­legra stór­fyr­ir­tækja, sér­stak­lega Costco og H&M, á íslenskan markað með ýmsum hætti. Á meðal þeirra aðgerða sem félagið greip til var að loka flestum tísku­vöru­versl­unum sem það rak, fækka fer­metrum sem það var með starf­semi sína á og með sam­ein­ingum, en Hagar sam­þykktu í fyrra­haust að kaupa Lyfju af íslenska rík­inu á 6,7 millj­arða króna og í apríl síð­ast­liðnum að kaupa Olís á 9,1 millj­arð króna. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur, líkt og áður sagði, ógilt sam­run­ann við Lyfju en er með sam­run­ann við Olís til með­ferðar. Festi, sem rekur m.a. versl­anir Krón­unnar og er einnig með umtals­verða mark­aðs­hlut­deild á dag­vöru­mark­aði, hefur einnig brugð­ist við inn­komu alþjóð­legra fyr­ir­tækja með því að loka versl­unum, fækka fer­metrum og með því að sam­ein­ast olíu­fé­lag­inu N1. Sá sam­runi bíður einnig sam­þykkis Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

[adspot]Í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um að ógilda sam­runa Haga og Lyfju kom fram að ástæður ógild­ing­ar­innar hafi verið svip­aður rekstur fyr­ir­tækj­anna, mark­aðs­ráð­andi staða Haga og tak­mörkuð áhrif vegna opnun Costco. Eft­ir­litið fjall­aði þó ítar­lega um Costco í ákvörðun sinni og sagði að fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar gæfu til kynna að inn­koma fyr­ir­tæk­is­ins hefði jákvæð áhrif á sam­keppni á dag­vöru­mark­aði. Fullt til­efni væri þó til að fylgj­ast náið með þróun á mark­aðnum næstu miss­eri. Hægt er að lesa nið­ur­stöðu og skýrslu eft­ir­lits­ins hér.

Hagar eru ósam­mála nið­ur­stöð­unni og hafa tví­vegis sent frá sér afkomu­við­vörun á síð­ustu mán­uðum þar sem greint var frá sölu­sam­drætti eftir að Costco hóf starf­semi í maí síð­ast­liðnum. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar á föstu­dag sagði að gera mætti ráð fyrir að EBITDA Haga verði um 20 pró­sent lægri fyrir tíma­bilið mars til ágúst 2017 en á sama tíma­bili í fyrra.

Mark­aðs­verð Haga hefur einnig hríð­fallið síðan að Costco opn­aði. Alls hefur mark­aðsvirði Haga lækkað úr 64,6 millj­arði króna dag­inn áður en að Costco opn­aði, í 46,1 millj­arða króna, eða um 18,5 millj­arða króna.

Andrés segir í Frétta­blað­inu í dag að þró­unin á mark­aðnum sé gríð­ar­lega hröð. Sam­keppn­is­eft­ir­litið megi hafa sig allt við ef það ætlar að fylgj­ast með henni. „Það er afskap­lega hætt við því að for­sendur sem liggja fyrir ákvörðun sem er tekin á ákveðnum tíma­punkti verði orðnar úreltar skömmu síðar. Það er stóra áhyggju­efnið[...]Við gjör­breyttar kringum stæður leita versl­anir auð­vitað leiða til að ná fram eins mik­illi hag­ræð­ingu og hægt er.“

Hann segir ekk­ert benda til þess að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi í ákvörðun sinni í máli Haga og Lyfju tekið til­lit til áhrif­anna af komu Costco.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár