Önnur afkomuviðvörunin frá Högum eftir innkomu Costco

Hagar segja ljóst að breytt staða á mark­aði „hafi mikil áhrif á félagið“. Sú breytta staða er inn­koma Costco, sem opn­aði verslun hér­lendis í maí. Mark­aðsvirði Haga hefur dreg­ist saman um 18,5 millj­arða frá því að Costco opn­aði.

Hagar reka meðal annars verslanir Bónus, sem hafa orðið fyrir áhrifum vegna innkomu Costco.
Hagar reka meðal ann­ars versl­anir Bónus, sem hafa orðið fyrir áhrifum vegna inn­komu Costco. Mynd: Anton Brink

Hagar sendur á föstu­dags­kvöld frá sér afkomu­við­vörun í kjöl­far þess að bráða­birgða­upp­gjör fyrir júlí­mánuð lá fyrir. Upp­gjörið sýnir að sölu­sam­dráttur í magni og krónum átti sér áfram stað í júlí líkt og í júní­mán­uði. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar segir að ljóst sé „að breytt staða á mark­aði hefur mikil áhrif á félagið.“ Gera má ráð fyrir að EBITDA Haga, sem er skráð félag á mark­aði, verði um 20 pró­sent lægri fyrir tíma­bilið mars til ágúst 2017 en á sama tíma­bili í fyrra.

Þó það sé ekki sagt berum orðum í til­kynn­ing­unni er þar átt við inn­komu Costco á íslenskan markað. Alþjóð­lega keðjan opn­aði verslun í Garðabæ í maí og hefur þegar náð umtals­verðri mark­aðs­hlut­deild bæði í sölu á dag­vöru og í sölu á elds­neyti, þar sem Costco selur um sjötta hvern elds­neytis­lítra sem seldur er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í afkomu­við­vörun Haga segir að félagið vinni „áfram að hag­ræð­ingu og að bæta versl­anir félags­ins og þjón­ustu við við­skipta­vini,með það að mark­miði að takast á við breytt sam­keppn­isum­hverfi. Auk þess er lögð áhersla á að nýta þau tæki­færi sem sér­staða versl­ana félags­ins gefur til sóknar.“

Mark­aðs­verð Haga hefur einnig hríð­fallið síðan að Costco opn­aði. Alls hefur mark­aðsvirði Haga lækkað úr 64,6 millj­arði króna dag­inn áður en að Costco opn­aði, í 46,1 millj­arða króna, eða um 18,5 millj­arða króna.

Þetta er í annað sinn sem Hagar senda frá sér afkomu­við­vörun á tveimur mán­uðum. Sú fyrri var send út í byrjun júlí og var vegna þess að upp­gjör fyrir júní­mánuð sýndi umtals­verðan sam­drátt milli ára.

Helstu eig­endur Haga eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Félagið varð fyrir áfalli í síð­asta mán­uði þegar Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafn­aði sam­runa þess við Lyfju. Hagar til­kynntu um það í lok apríl 2017 að félagið ætl­aði að kaupa Olís á 9,1 millj­arða króna. Þau kaup bíða einnig sam­þykkis Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár