ÁTVR greinir ekki á milli munntóbaks og neftóbaks

Áfengis- og tóbaks­verslun rík­is­ins fram­leiðir gróf­kornað nef­tó­bak. Kannanir sýna að lang­flestir nota það sem munn­tó­bak. Samkvæmt lögum er nef­tó­bak lög­legt en munn­tó­bak ólög­legt. Enn eitt sölu­metið var sett í fyrra.

Áfengis- og tóbaks­verslun rík­is­ins (ÁTVR) treystir sér ekki lengur til að greina á milli munn­tó­baks og nef­tó­baks og hefur leitað leið­bein­inga hjá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu um hvernig eigi að greina á milli. Kannanir sýna að nef­tó­bak sem ÁTVR fram­leiðir og selur, oft kall­aður „Ruddi“, er í yfir­gnæf­andi til­vika tekið í munn og að not­endum þess séu að stórum hluta ungt fólk. Sala á munn­tó­baki er ólög­leg en sala á nef­tó­baki er lög­leg.

[links] Í árs­skýrslu ÁTVR fyrir árið 2016 fjallar for­stjóri stofn­un­ar­innar, Ívar J. Arndal, um þetta mál og segir að ÁTVR treysti sér ekki lengur til þess að greina á milli þess hvort tóbakið sem stofn­unin fram­leiðir sem nef­tó­bak sé slíkt eða munn­tó­bak. Sala á nef­tó­baki fram­leiddu af ÁTVR hefur stór­auk­ist á und­an­förnum árum.

Árið 2000 seld­ust ríf­lega 10 tonn af nef­tó­baki, en síðan þá hefur salan auk­ist jafnt og þétt. Eina und­an­tekn­ingin er að salan minnk­aði árin 2012 og 2013 áður en hún jókst á ný. ÁTVR segir að salan hafi dreg­ist lít­il­lega saman þessi ár eftir að tóbaks­gjald á nef­tó­bak var tvö­fald­að. Salan fór niður í 27,6 tonn árið 2013 en hefur svo auk­ist mikið á ný. Í fyrra seld­ust um 40 tonn af nef­tó­baki, sem er sölu­met. Fyrra met var sett árið 2015 þegar 36,1 tonn seld­ust.

Ein­okun lengi

Árið 1996 var fín­kornað munn- og nef­tó­bak bannað með lögum á Íslandi. Það þýðir að nef­tó­bakið sem ÁTVR fram­­­leiðir hefur verið í nán­­­ast ein­ok­un­­­ar­­­stöðu á mark­aðnum síðan lögin voru sett. Sam­hliða hefur neysla á munn­tó­baki auk­ist tölu­vert og þeir sem neyta þess kaupa ann­að­hvort smygl­varn­ing á svörtum mark­aði, þar sem er mikið fram­­­boð, eða nota nef­tó­bakið sem ÁTVR fram­­­leið­ir, hinn svo­­­kall­aða „Rudda“, sem munn­tó­bak.

[adspot] Þessi aukna neysla hefur skilað auknum tekjum í vasa hins opin­bera svo um mun­­­ar, bæði vegna hækk­­­unar á tóbaks­­­gjaldi og stór­auk­innar eft­ir­­­spurn­­­ar. Tóbaks­­­­­gjald á nef­tó­bak hækk­­­aði til að mynda um 100 pró­­­sent 1. jan­úar 2013.

Við síð­ustu fjár­laga­gerð skil­aði for­stjóri ÁTVR umsögn til efna­hags- og við­skipta­nefndar þar sem hann lagði til að tóbaks­gjald yrði hækkað um 55,2-69 pró­sent. Til­gang­ur­inn væri að sam­ræma tóbaks­gjald, en í þágild­andi lögum væri það svo að nef­tó­bak og annað tóbak bæri tals­vert lægra tóbaks­gjald en sígar­ettur og vind­ling­ar. Það hafi verið umtals­vert mis­ræmi í gjald­töku eftir tóbak­s­teg­undum allt frá því að tóbaks­gjaldið var tekið upp árið 2001.

Þetta var sam­þykkt og gert er ráð fyrir að hækkun á tóbaks­gjald­inu skili rík­is­sjóði um hálfum millj­arði króna í við­bót­ar­tekjur í ár.

Við þessa breyt­ingu hækk­aði hefð­bundið verð fyrir dós af nef­tó­baki fram­leiddu af ÁTVR úr 1.463 krónum í 2.352 krónur, eða um 889 krónur.

Miklar tekjur af sölu á rík­is­fram­leiddu tóbaki

Tekjur ÁTVR af sölu tóbaks dróg­ust í heild saman í fyrra. Þær voru tveimur pró­sentum lægri en árið 2015 eða alls 9,3 millj­arðar króna. Þar munar mestu um að sala á sígar­ettum dróst saman um 6,1 pró­sent og á vindlum um 7,5 pró­sent.

Sala á nef­tó­baki hélt hins vegar, líkt og áður sagði, áfram að aukast og jókst sam­tals um 10,7 pró­sent á árinu. Salan skil­aði alls 827,6 millj­ónum króna í kass­ann í fyrra án virð­is­auka­skatts. Árið 2015 var selt rík­is­fram­leitt tóbak fyrir 748 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár