Segir seinkun klukkunnar geta haft áhrif á hreyfingu ungmenna

Tryggvi Helgason barna­læknir telur það lík­legt að hreyf­ing ung­menna minnki ef klukk­unni er breytt. Hann segir skýrslu starfs­hóps for­sæt­is­ráð­herra um klukku­breyt­ing­una vera ein­hliða og gera mikið úr kostum þess að seinka klukk­unni en lítið úr göllum.

Tryggvi Helgason barna­læknir telur það lík­legt að með til­færslu klukk­unnar muni hreyf­ing ung­menna minnka. Hann bendir á að með til­færslu klukk­unnar fækki björtum stundum að loknum skóla- og vinnu­degi en rann­sóknir hafi sýnt að tengsl séu á milli dags­birtu og hreyf­ingar ung­linga hér á landi. Í rit­stjórn­ar­grein sinni í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðs­ins gagn­rýnir Tryggvi að engin áhersla hafi verið lögð á áhrif klukk­unnar á hreyf­ingu ung­menna hvorki í skýrslu starfs­hóps for­sæt­is­ráð­herra um klukku­breyt­ing­una né í umfjöllun fjöl­miðla. Enn fremur segir hann skýrslu starfs­hóps­ins vera ein­hliða og mikið gert úr kostum klukku­breyt­ingar en lítið úr göllum.

Meirihluti Íslendinga vill seinka klukkunni

[links]Starfs­hópur á vegum for­sæt­is­ráð­herra skil­aði skýrslu í jan­úar um hvort að færa ætti stað­ar­tíma hér á landi nær sól­ar­tíma miðað við hnatt­ræna legu lands­ins. Í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu um mál­efnið segir að rann­sóknir sýni að næt­ur­svefn Íslend­inga sé almennt séð of stuttur en slíkt geti verið heilsu­spill­andi og haft áhrif á náms­ár­angur og fram­leiðni í atvinnu­líf­inu. Sér­stak­lega sé þetta áhyggju­efni vegna barna og ung­menna. Ein lík­leg skýr­ing sé að klukkan sé ekki í sam­ræmi við hnatt­ræna legu lands­ins.

Þrír val­kostir eru settir fram í skýrsl­unni. Í fyrsta lagi er lagt til að staðan verði óbreytt og klukkan áfram einni klukku­stund fljót­ari en ef miðað væri við hnatt­stöðu. Með fræðslu sé fólk aftur á móti hvatt til að ganga fyrr til náða. Í öðru lagi að klukk­unni verði seinkað um eina klukku­stund frá því sem nú er, í sam­ræmi við hnatt­stöðu lands­ins. Sem dæmi er tekið að ef klukkan er 11:00 nú þá verði hún 10:00 eftir breyt­ingu. Í þriðja lagi er lagt til að klukkan verði áfram óbreytt en skólar og jafn­vel fyr­ir­tæki og stofn­anir hefji starf­semi seinna á morgn­ana.

Eftir að skýrsla starfs­hóps­ins var kynnt í jan­úar kann­aði Maskína afstöðu lands­manna gagn­vart breyttri klukku. Samkvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar vill meiri­hluti, eða á milli 63 og 64 pró­sent, Íslend­inga að klukk­unni verði seinkað um eina ­klukku­stund frá því sem nú er. Á bil­inu 36 til 37 pró­sent þeirra vilja óbreytta stöðu klukk­unn­ar. Um 23 pró­sent vilja að með fræðslu verði fólk hvatt til að ganga fyrr til náða og á milli 13 og 14 pró­sent myndu vilja að skól­ar, fyr­ir­tæki og stofn­anir hefji starf­semi seinna á morgn­ana.

Segir lítið fjallað um neikvæð áhrif breyttrar klukku

Í rit­stjórn­ar­grein sinni „Geta vís­indi klukkað sam­fé­lagið?“ segir Tryggvi að skýrsla starfs­hóps­ins hafi verið góð og ítar­leg um kosti breyttrar klukku en að hún hafi hins vegar mjög lítið fjallað um nei­kvæð áhrif breyt­ing­ar­innar. Hann segir að í starfs­hópnum hafi ekki verið neinn full­trúi frá íþrótta­hreyf­ing­unni sem hafi ítrekað gert athuga­semdir við fyrri frum­vörp er varða breyt­ingu á klukk­unni. Jafn­framt gagn­rýnir hann í grein sinni fram­setn­ingu til­lagna starfs­hóps­ins og segir hana hafa verið ein­hliða.

Í grein­ar­gerð­inni er greint frá því að klukku­breyt­ing geti lagað of stuttan svefn og í mörgum atriðum hvaða breyt­ingar gætu orðið ef svefn þjóð­ar­innar leng­ist.

Tryggvi bendir aftur á móti á að aðeins í einu atriði er minnst á að minna dags­ljós gæti minnkað hreyf­ingu en ekk­ert um hvaða afleið­ingar það hefur. Hann segir að með fækkun bjart­ara stunda að loknum skóla- og vinnu­degi megi telja það lík­legt að hreyf­ing ung­menna minnki. Í grein sinni nefnir hann sam­an­tekt­ar­rann­sókn úr stórum gagna­grunni hreyfi­mæla í níu löndum þar sem nið­ur­staðan er að aukin dags­birta í formi sum­ar­tíma sé lík­leg til að auka hreyf­ingu ung­menna og nýlega inn­lenda rann­sókn, sem starfs­hóp­ur­inn vitn­aði í varð­andi svefn barna, þar sem tengsl fund­ust milli dags­birtu og hreyf­ingar ung­linga hér á landi, sér­stak­lega stúlkna. Hann gagn­rýnir því að engin áhersla hafi verið lögð á þetta í skýrsl­unni né í umfjöllun fjöl­miðla þó að til sé rann­sóknir sem bendi til slíkra áhrifa.

Einhliða framsetning litar fjölmiðlaumræðu

Í grein sinni fjallar Tryggvi jafn­framt um hvernig ein­hliða fram­setn­ing á kostum og göllum klukku­breyt­ingar í skýrsl­unni hafi síðan litað umræðu fjöl­miðla. „Það var ekki annað að heyra af umræð­unni en að svefn­vandi ung­linga væri auð­leyst mál með klukku­breyt­ingu og í raun val um hvort við fræddum þjóð­ina um mik­il­vægi svefns­ins eða bara ein­fald­lega breyttum klukk­unni og þá væri sá vandi úr sög­unni. Að það væri bara fínt að leysa of stuttan svefn hjá heilli þjóð svona,“ segir í grein­inni.

Að lokum segir hann að til þess að sam­ráðs­gátt stjórn­valda nýt­ist sem skyldi sé mik­il­vægt að strax í upp­haf­legri kynn­ingu mála séu með hlut­lausum hætti kynntir kostir og gallar breyt­inga sem fyr­ir­hug­aðar eru. Þannig átti les­endur sig á að stjórn­völd hafi vegið og metið bæði kosti og galla breyt­inga og í kjöl­farið lagt til þá breyt­ingu sem á að gera. Hann segir að þannig mynd­ist traust á að ákvörð­unin sé rétt, umræðan á eftir verði mark­viss­ari og styðji betur við ákvarð­ana­ferlið.

Skýrslan um klukku­breyt­ing­una er nú í samráðs­gátt stjórn­valda og er umsagna­frestur til 10. mars næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár