Neftóbakssala heldur áfram að aukast

Nef­tó­baks­sala jókst í fyrra um 19 pró­sent og voru tæp­lega 45 tonn af nef­tó­baki seld árið 2018. Nef­tó­baksneysla er að aukast hjá fólki á þrí­tugs­aldri sem og konum. Sala á vindlum og sígar­ettum dróst hins vegar saman um tíu pró­sent.

Á síð­ustu árum hefur sala á nef­tó­baki fram­leiddu af ÁTVR auk­ist með hverju ári. Salan jókst um 19 pró­sent í fyrra og voru alls um 45 tonn af nef­tó­baki seld. Aftur á móti dróst salan saman á reyk­tó­baki um 10 pró­sent, á vindlum um 7 pró­sent og sígar­ettum um 3 pró­sent. Alls námu tekjur af tóbaks­sölu 9.4 millj­örðum króna í fyrra og jókst um 2 pró­sent milli ára. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi ÁTVR.

Sala á nef­tó­baki stóraukist á undanförnum árum

Um ald­ar­mótin var árleg sala af nef­tó­baki ríf­lega 10 tonn en síðan þá hefur salan auk­ist jafnt og þétt. Eina und­an­tekn­ingin er að salan minnk­aði árin 2012 og 2013 áður en hún jókst á ný. ÁTVR segir að salan hafi dreg­ist lít­il­lega saman þessi ár eftir að tóbaks­gjald á nef­tó­bak var tvö­fald­að. Salan fór niður í 27,6 tonn árið 2013 en hefur svo auk­ist mikið á ný. Síðan 2016 hafa verið sett sölu­met á hverju ári í sölu nef­tó­baks og í fyrra seld­ust tæp­lega 45 tonn af nef­tó­baki.

Í jan­úar 2002 var fín­korna munn- og nef­tó­bak bannað með lögum á Íslandi. Kann­anir sýna hins vegar að gróf­korna nef­tó­bak sem ÁTVR fram­leiðir og sel­ur er í yfir­gnæf­andi til­vika tekið í munn og að not­endum þess séu að stórum hluta ungt fólk. Í árs­skýrslu ÁTVR fyrir árið 2016 kom fram ap stofn­unin treysti sér ekki lengur til að greina á milli munn­tó­baks og nef­tó­baks og hafi leitað leið­bein­inga hjá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu um hvernig eigi að greina á milli. En sala á munn­tó­baki er ólög­leg en sala á nef­tó­baki lög­leg.[adspot]

Tóbaksdollan nú á rúmar þrjú þúsund krónur

Þessi aukna neysla á nef­tó­baki hefur skilað auknum tekjum í vasa hins opin­bera svo um mun­­­ar, bæði vegna hækk­­­unar á tóbaks­­­gjaldi og stór­auk­innar eft­ir­­­spurn­­­ar. Verð­stýr­ing hefur þótt áhrifa­rík­asta leiðin til að draga úr tóbaks­notkun og hefur verð á dollu af nef­tó­baki hækkað um nokkur hund­ruð pró­sent á ára­tug með það fyrir augum að reyna að sporna við notkun þess í vör meðal ungs fólks. Tóbaks­­­­­gjald á nef­tó­bak hækk­­­aði til að mynda um 100 pró­­­sent 1. jan­úar 2013 og var hækkað aftur árið 2017. Nef­tó­baks­dolla kostar í dag um 3.300 krónur í mat­vöru­versl­unum Krón­unnar.

Í tóbaks­könnun Gallup frá 2018 kemur fram 35 pró­sent þeirra sem taka í nefið eru að stað­aldri skemur en tvær vikur að klára venju­lega tóbaks­dós en 65 pró­sent svar­enda sögð­ust vera lengur en tvær vikur. Jafn­framt kom fram í könn­un­inni að þeir sem taka í nefið hafa tekið það að stað­aldri í 1 til 5 ár, 26 pró­sent skemur en í ár og 26 pró­sent í sex ár eða lengur. 

Í könnun frá því í fyrra um notkun tóbaks meðal Íslend­inga á vegum Land­læknis kemur fram að dag­leg notkun tóbak í vör hefur dreg­ist sam­an hjá yngsta ald­urs­hópi karla, 18 til 24 ára, eða úr 23 pró­sent árið 2015 í 14 pró­sent árið 2018. Á hinn bóg­inn jókst dag­leg notk­un í ald­urs­hópn­um 25 til 34 ára karla úr 7 pró­sent 2015 í 22 pró­sent árið 2018.

Þá hefur það vakið athygli að sam­kvæmt könn­un­inni eru konur farnar að taka í auknum mæli tóbak í vör eða um 3 pró­sent kvenna taka tóbak í vör í ald­urs­hópnum 18 til 24 ára og rúm­lega 2 pró­sent meðal 25 til 34 ára.

Sala á sterku áfengi jókst um 20 prósent

Á árinu 2018 komu rétt tæp­lega 5 millj­ónir við­skipta­vina í Vínbúðir ÁTVR. Í árs­reikn­ingi ÁTVR kemur fram að hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins dróst saman á milli ára og var 1,111 millj­ónir króna árið 2018 sam­an­borið við 1367 millj­ónir árið 2017.

Tekjur ÁTVR af sölu áfengis voru 25.8 millj­arðar króna án vasks í fyrra og hækk­uðu um 3,2 pró­sent á milli ára. Sala á sterku áfengi jókst um 20 pró­sent en sala á létt­víni dróst saman um 3,3 pró­sent, þá jókst sala á bjór um 0,4 pró­sent. ÁTVR er alfarið í eigu íslenska rík­is­ins og var arður til rík­is­ins um millj­arður í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár