Við eldhúsborðið

Máltíð fjöl­skyldu við eld­hús­borðið er iðu­lega eina sam­veru­stund fjöl­skyld­unnar dag hvern. En í þess­ari sam­veru felst annað en bara það að nær­ast.

Margir Íslend­ingar, sem komnir eru á og yfir miðjan aldur muna vel hádeg­is­mat­inn við eld­hús­borðið: soðna ýsu, kart­öflur og tólg, ásamt ,,síð­asta lagi fyrir fréttir“ í Rík­is­út­varp­inu. Og muna líka að ekki var mikið talað á meðan þulir útvarps­ins fluttu helstu tíð­indi dags­ins. Þetta gilti jafnt um börn og full­orðna. Stríðið í Víetnam, Kúbu­deilan, slys á sjó og landi, Vil­hjálmur Ein­ars­son og þrístökks­silfrið í Melbourne árið 1956 og Nóbels­verð­laun Halldórs Laxness ári fyrr. Fregnir af öllu þessu og ótal­mörgu öðru ómuðu í eld­húsum lands­ins, bæði í hádeg­inu og á kvöldin.

Börn og ung­lingar höfðu tak­mark­aðan skiln­ing á mörgu því sem streymdi úr hátal­ara við­tæk­is­ins en fylgd­ust auð­vitað með. Eftir að frétt­unum lauk þurfti auð­vitað líka að fylgj­ast með veð­ur­frétt­unum og svo dánar- og jarð­ar­fara­til­kynn­ingum. Inn í allt þetta flétt­að­ist umræðan um gæði soðn­ing­ar­innar og kartafln­anna og ótal­margt fleira.

Um kvöld­mat­ar­leytið end­ur­tók sama sagan sig, kannski búið að skipta soðn­ing­unni út fyrir kjöt­meti (oft­ast lamba­kjöt) og jafn­vel sósu og heima­gerðri rabar­bara­sultu. Salat var sjald­séð, Ora grænar baunir þóttu nægi­lega verð­ugur full­trúi þess hluta mat­ar­pýramíd­ans.

Á þessum tíma voru lík­lega fáir að velta fyrir sér upp­eld­is­gildi þess­ara sam­veru­stunda við eld­hús­borðið. Það að fjöl­skyldan sæti saman yfir matnum var sjálf­gefið.

Ein útvarpsrás, enginn farsími og ekkert sjónvarp

Á þeim tíma sem vitnað var til hér að ofan var sjón­varp ekki komið til sög­unnar á Íslandi, lands­mönnum stóð ein­ungis ein útvarps­rás til boða og far­sím­inn hafði ekki verið fund­inn upp. Síðan hefur margt breyst, í dag eru sjón­varps- og útvarps­rás­irnar ótelj­andi og allir, ungir og gamlir, ganga með far­síma á sér. Hádeg­is­soðn­ingin heyrir víð­ast hvar sög­unni til (enda fáir heima) og síð­asta lag fyrir fréttir orðið síð­asta lag fyrir aug­lýs­ingar. Tímarnir eru sem sé gjör­breyttir. Margir halda þó enn í sam­eig­in­lega kvöld­mál­tíð fjöl­skyld­unnar, sem hjá mörgum er eina sam­veru­stundin. Kannanir sýna að hún á líka undir högg að sækja. Í könnun sem danskt dag­blað gerði fyrir skömmu, og náði til hund­rað þriggja og fjög­urra manna barna­fjöl­skyldna, kom í ljós að meira en fimm­tíu pró­sent þess­ara fjöl­skyldna borða saman sjaldnar en fjórum sinnum í viku og tíu pró­sent borða saman einu sinni í viku, eða aldrei. Mörgum þykir þetta full­kom­lega eðli­legt og í takt við breyt­ing­arnar í sam­fé­lag­inu. Margir sem tóku þátt í þess­ari könnun sögð­ust gjarna vilja að fjöl­skyldan borð­aði oftar saman en það væri ein­fald­lega ekki hægt, margra hluta vegna.

Fjölskyldumáltíðir mikilvægar

Tveir danskir háskóla­kenn­arar, Lotte Holm, pró­fessor við Hafn­ar­há­skóla, og Ole Henrik Hansen, lektor við Háskól­ann í Árósum hafa um ára­bil rann­sakað áhrif þess að fjöl­skyldan sitji saman við eld­hús­borðið. Slík rann­sókn er býsna flókin og kenn­ar­arnir hafa notað ýmis­konar aðferðir sem ekki verða útli­staðar hér.

Nið­ur­staðan er í stuttu máli að sam­eig­in­legar mál­tíðir fjöl­skyld­unnar séu afar mik­il­vægar. Fyrir því eru margar ástæður.

Börn leggja að jafn­aði mikið upp úr því að eiga fjöl­skyldu og þegar þau voru spurð hvenær væru bestu stundir fjöl­skyld­unnar voru svörin að það væri ,,þegar við tölum saman við eld­hús­borðið og sitjum lengi.“ Börnin nefndu líka að full­orðna fólkið útskýri ,,svo margt sem vð skiljum ekki og ekki er talað um í skól­anum.“ Með því að sitja til borðs með for­eldr­unum, og jafn­vel gestum, læri börnin hegðun og það sem pró­fess­or­arnir kalla ,, þroska til að lifa í sam­fé­lag­inu.“ Undir þessa skil­grein­ingu fellur það, að mati kennar­anna tveggja, að taka þátt í sam­ræðum, skipt­ast á skoð­unum, vega og meta við­horf ann­arra. Þjálfast í rök­hugsun og að setja fram við­horf sín og að taka til­lit til ann­arra. ,,Hljómar kannski auð­velt“ sagði Lotte Holm ,,en þetta er ótrú­lega mik­il­vægur þáttur í þroska hvers ein­stak­lings. Þáttur sem hefur verið alltof lít­ill gaumur gef­inn.“

Að hafa hlutverk er mikilvægt

Í við­tali við danska útvarpið, DR, sagði Ole Henrik Hansen mik­il­vægt að börnin taki þátt í að leggja á borð og taka til eftir mat­inn ,,Það er mik­il­vægt að hafa hlut­verk.“ Og bætir við ;Þegar börnin eru aðeins komin á legg geta þau hjálpað til við elda­mennsk­una. Barn, sem er kannski kresið og vill ekki borða til­tek­inn mat, eða græn­meti, er miklu lík­legra til að vilja borða mat sem það hefur sjálft tekið þátt í að útbúa.“

Ole Henrik Hansen bætti við að þegar börn venj­ist því að mál­tíðin við eld­hús­borðið hafi for­gang fram yfir annað læri þau ákveð­inn aga, og stund­vísi, sem sé mik­il­vægt.

Því er hér við að bæta að í könnun danska Rockwool sjóðs­ins (sem styrkir margs konar verk­efni) kom fram að börn sem borða að minnsta kosti eina mál­tíð dag­lega með for­eldrum sínum eru síður lík­leg til að þyngj­ast um of. Ástæð­urnar eru þær að börnum sem borða ein, án þess að for­eldrar eða aðrir full­orðnir séu við­staddir, hætti til að borða meira en þegar setið er til borðs með fjöl­skyld­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár