Hvað skal gera með íslenskan tíma?

Samkvæmt grein­ar­gerð sem unnin var á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins eru þrír val­kostir í stöð­unni varð­andi klukk­una á Íslandi en rann­sóknir sýna að næt­ur­svefn Íslend­inga er almennt séð of stuttur en slíkt getur verið heilsu­spill­andi.

Grein­ar­gerðin „Stað­ar­tími á Íslandi – stöðu­mat og til­lögur“ hefur verið birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda en umsagn­ar­frestur er til 10. mars næst­kom­andi. Grein­ar­gerðin var unnin í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og í henni er skoðað hvort færa eigi stað­ar­tíma nær sól­ar­tíma miðað við hnatt­ræna legu lands­ins.

Í frétt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins um málið kemur fram að rann­sóknir sýni að næt­ur­svefn Íslend­inga sé almennt séð of stuttur en slíkt geti verið heilsu­spill­andi og haft áhrif á náms­ár­angur og fram­leiðni í atvinnu­líf­inu. Sér­stak­lega sé þetta áhyggju­efni vegna barna og ung­menna. Ein lík­leg skýr­ing sé að klukkan sé ekki í sam­ræmi við hnatt­ræna legu lands­ins.

Þrír val­kostir eru settir fram í grein­ar­gerð­inni. Í fyrsta lagi er lagt til að staðan verði óbreytt og klukkan áfram einni klukku­stund fljót­ari en ef miðað væri við hnatt­stöðu. Með fræðslu sé fólk aftur á móti hvatt til að ganga fyrr til náða.

Í öðru lagi að klukk­unni verði seinkað um eina klukku­stund frá því sem nú er, í sam­ræmi við hnatt­stöðu lands­ins. Sem dæmi er tekið að ef klukkan er 11:00 nú þá verði hún 10:00 eftir breyt­ingu.

Í þriðja lagi er lagt til að klukkan verði áfram óbreytt en skólar og jafn­vel fyr­ir­tæki og stofn­anir hefji starf­semi seinna á morgn­ana.

Misræmi milli staðartíma og sólartíma

Í grein­ar­gerð­inni kemur fram að frá árinu 1968 hafi stað­ar­tími á Íslandi mið­ast við mið­tíma Greenwich. Sé þannig mis­ræmi milli stað­ar­tíma og sól­ar­tíma miðað við hnatt­ræna legu lands­ins sem þýðir að í Reykja­vík er sól hæst á lofti um kl. 13:30 en ekki um kl. 12:30 eins og vera ætti ef miðað væri við tíma­belti sam­kvæmt hnatt­stöðu.

Frá 1939 hafði klukk­unni verið flýtt á sumrin og seinkað á vet­urna og frá 1968 var miðað við svo­kall­aðan sum­ar­tíma allan árs­ins hring. Færsla klukk­unnar tvisvar á ári þótti óheppi­leg og ákveðið var að falla frá henni. Rökin fyrir því að miða fastan tíma árið um kring við sum­ar­tíma voru fyrst og fremst við­skipta­legs eðlis, heppi­legra þótti að vera nær Evrópu í tíma og talið var jákvætt að dags­birta myndi nýt­ast betur á vöku­tíma lands­manna. Neikvæð áhrif myrk­ari vetr­ar­morgna voru talin minni en ávinn­ingur af birtu síð­degis.

Vildu að íslenskur tími væri í takt við tíma annarra landa

Á vef Almanaks Háskóla Íslands er saga umræðna um tíma­reikn­ing rakin. Þar er meðal ann­ars greint frá því að í kjöl­far breyt­ing­anna 1968 hafi ríkt friður um tíma­reikn­ing­inn í ald­ar­fjórð­ung. Það var svo 1994 sem fram kom þing­mál þar sem lögð var til breyt­ing, raunar í þá átt að flýta klukk­unni enn frekar til að íslenskur tími væri meira í takt við tíma helstu mark­aðs­landa okkar að sumri til og að auka fram­leiðni í atvinnu­líf­inu.

Í kjöl­far þeirrar til­lögu var lagt fram frum­varp 1995 sem var end­ur­flutt 1998 og 2000 og þings­á­lykt­un­ar­til­laga sama efnis 2006. 2010 kom fram til­laga sem gekk í þá átt að seinka klukk­unni og í kjöl­farið til­lögur sama efnis 2013, 2014 og 2015. Í umsögnum sem bár­ust þing­inu vegna síð­ar­nefndu til­lagn­anna var fyrst og fremst bent á lýð­heilsurök. Á sviði lækna­vís­inda og geð­ræktar kom fram jákvætt við­horf til þess að færa klukk­una nær sól­ar­gangi en á hinn bóg­inn hafa til dæmis íþrótta­sam­tök bent á skertan mögu­leika til úti­vistar síð­degis.

Tímabundið misræmi hefur áhrif á velferð og vellíðan

Þau þing­mál sem hafa komið fram síð­ustu ár end­ur­spegla að und­an­farið hefur athygli manna beinst í auknum mæli að áhrifum sól­ar­ljóss og birtu á heilsu og líðan fólks. Fjöldi vís­inda­rann­sókna á þessu sviði liggur fyrir og Nóbels­verð­launin í líf­eðlis- og lækn­is­fræði 2017 voru veitt fyrir rann­sóknir á erfða og sam­einda­líf­fræði dæg­ur­klukk­unnar. Í grein­ar­gerð­inni er sam­an­tekt um Nóbels­verð­launin laus­lega þýdd:

„Með ótrú­legri nákvæmni lagar innri klukkan lík­ams­starf­semi okkar að ólíkum tímum dags. Innri klukkan stýrir mik­il­vægum þáttum eins og hegðun, magni horm­óna, svefni, lík­ams­hita og efna­skiptum. Tíma­bundið mis­ræmi milli ytra umhverfis og innri lík­ams­klukku hefur áhrif á vel­ferð okkar og vellíðan, til dæmis þegar ferð­ast er milli tíma­belta og fólk upp­lifir „þotu­þreytu“. Einnig er ýmis­legt sem bendir til þess að við­var­andi mis­ræmi milli lífs­stíls og takts­ins sem lík­ams­klukkan stýrir teng­ist auk­inni hættu á marg­vís­legum sjúk­dómum.“

Ekki hægt að horfa fram hjá niðurstöðum rannsókna

Starfs­hópur skip­aður af heil­brigð­is­ráð­herra skil­aði grein­ar­gerð fyrr á árinu um ávinn­ing fyrir lýð­heilsu og vellíðan lands­manna af því að leið­rétta klukk­una til sam­ræmis við gang sólar. Samkvæmt grein­ar­gerð­inni hafa nið­ur­stöður vís­inda­rann­sókna hin síð­ari ár leitt í ljós nei­kvæðar heilsu­fars­legar afleið­ingar þess að miða við of fljótan stað­ar­tíma, líkt og nú er gert hér á landi.

Í grein­ar­gerð­inni segir að ekki verði horft fram hjá nið­ur­stöðum vís­inda­rann­sókna sem sýna fram á áhrif sól­ar­ljóss og birtu á heilsu og líðan fólks. Taktur dags­ins – klukkan – varði alla lands­menn, atvinnu­líf og stjórn­sýslu á marg­vís­legan hátt. Því hafi rík­is­stjórnin sam­þykkt að hefja skoðun á því hvort breyta eigi tíma­reikn­ingi á Íslandi og færa klukk­una nær raun­veru­legum sól­ar­tíma miðað við hnatt­stöðu. Liður í þeirri skoðun sé að efna til víð­tæks sam­ráðs um mál­efnið og eru þau sem láta sig málið varða, almenn­ingur jafnt sem fyr­ir­tæki, stofn­anir og félaga­sam­tök, hvött til að kynna sér málið og senda sín sjón­ar­mið og til­lögur í sam­ráðs­gátt Stjórn­ar­ráðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár