Meirihluti Íslendinga vill seinka klukkunni – Kjósendur Miðflokksins eru því andvígastir

Munur er á við­horfi til klukk­unnar eftir því hvaða stjórn­mála­flokk fólk myndi kjósa. Kjós­endur Við­reisnar eru hlynnt­astir því að klukk­unni yrði seinkað en kjós­endur Mið­flokks­ins and­víg­astir.

Á milli 63 og 64 pró­sent Íslend­inga vilja að klukk­unni verði seinkað um eina klukku­stund frá því sem nú er. Á bil­inu 36 til 37 pró­sent þeirra vilja óbreytta stöðu klukk­unnar. Um 23 pró­sent vilja að með fræðslu verði fólk hvatt til að ganga fyrr til náða og á milli 13 og 14 pró­sent myndu vilja að skólar, fyr­ir­tæki og stofn­anir hefji starf­semi seinna á morgn­ana.

Þetta kemur fram í nýbirtri könnun Maskínu í dag.

[links]Tölu­verður munur er á við­horfi til klukk­unnar eftir því hvaða stjórn­mála­flokk fólk myndi kjósa, sam­kvæmt könn­un­inni. Kjós­endur Við­reisnar eru hlynnt­astir því að klukk­unni yrði seinkað, eða 80,1 pró­sent, en kjós­endur Mið­flokks­ins and­víg­astir en 50,4 pró­sent þeirra vilja breyt­ingu. Rúmlega 33 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins vilja hafa óbreytt ástand en að fólk sé hvatt til að ganga fyrr til náða en kjós­endur Við­reisnar eru ólík­leg­astir til þess að vilja það, eða 10,3 pró­sent.

Norð­lend­ingar vilja einna helst seinka klukk­unni um eina klukku­stund, eða 65,8 pró­sent, en Aust­firð­ingar síst en 46,2 pró­sent vilja það.

Íslend­ingar með heim­ili­tekjur lægri en 400 þús­und eru hlynnt­astir seinkun klukk­unnar og eru einnig and­víg­astir því að klukkan haldi óbreyttri stöðu en skólar, fyr­ir­tæki og stofn­anir hefj­ist seinna. Ein­hleypir eru ólík­leg­astir þess að vilja seinka klukk­unni og þeir sem ekki eiga maka eru hlynnt­astir seinkun klukk­unnar.

Svar­endur voru 1.373 tals­ins og komu úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks dreg­inn með til­viljun úr Þjóðskrá og svarar á net­inu. Svar­endur eru af báðum kynjum, alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu. Könnunin fór fram dag­ana 11. til 18. jan­úar 2019.

Þrír valkostir

Grein­ar­gerðin „Stað­ar­tími á Íslandi – stöðu­mat og til­lögur“ var birt á sam­ráðs­gátt stjórn­valda í síð­ustu viku. Grein­ar­gerðin var unnin í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og í henni er skoðað hvort færa eigi stað­ar­tíma nær sól­ar­tíma miðað við hnatt­ræna legu lands­ins.

Í frétt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins um málið kemur fram að rann­sóknir sýni að næt­ur­svefn Íslend­inga sé almennt séð of stuttur en slíkt geti verið heilsu­spill­andi og haft áhrif á náms­ár­angur og fram­leiðni í atvinnu­líf­inu. Sér­stak­lega sé þetta áhyggju­efni vegna barna og ung­menna. Ein lík­leg skýr­ing sé að klukkan sé ekki í sam­ræmi við hnatt­ræna legu lands­ins.

Þrír val­kostir eru settir fram í grein­ar­gerð­inni. Í fyrsta lagi er lagt til að staðan verði óbreytt og klukkan áfram einni klukku­stund fljót­ari en ef miðað væri við hnatt­stöðu. Með fræðslu sé fólk aftur á móti hvatt til að ganga fyrr til náða.

Í öðru lagi að klukk­unni verði seinkað um eina klukku­stund frá því sem nú er, í sam­ræmi við hnatt­stöðu lands­ins. Sem dæmi er tekið að ef klukkan er 11:00 nú þá verði hún 10:00 eftir breyt­ingu.

Í þriðja lagi er lagt til að klukkan verði áfram óbreytt en skólar og jafn­vel fyr­ir­tæki og stofn­anir hefji starf­semi seinna á morgn­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár