Tíu staðreyndir um starfsemi og rekstur ÁTVR

Alþingi ræðir nú frum­varp sem hefur það mark­mið að afnema ein­okun rík­is­ins á sölu áfengis. Í dag hefur ÁTVR einka­rétt á slíkri sölu.

1 – Íslenska ríkið hefur rekið einka­sölu áfengis hér­lendis frá árinu 1922, en þá hét fyr­ir­tækið ÁVR. Tóbaks­einka­sala rík­is­ins tók til starfa 1932 og fyr­ir­tækin voru sam­einuð árið 1961 undir nafn­inu Áfengis- og tóbaks­verslun rík­is­ins (ÁTVR).

2 - ÁTVR er risa­stórt fyr­ir­tæki. Ársverk hjá því voru 684 tals­ins á árinu 2014, en stór hluti þess starfs­fólks er í hluta­starfi. Þorri starfs­fólks ÁTVR vinnur í Vínbúðum fyr­ir­tæk­is­ins eða við umsýslu áfengis. Heild­ar­launa­kostn­aður fyr­ir­tæk­is­ins á ári (2014) er 1,7 millj­arðar króna. Mest mun­aði um laun for­stjór­ans Ívars J. Arndal, en árs­laun hans námu 16,5 millj­ónum króna.

3 – Árið 2011 voru sett ný lög um verslun með áfengi á Íslandi. Lögin hafa þrjú mark­mið: að skil­greina umgjörð um smá­sölu og heild­sölu áfengis og tóbaks sem „bygg­ist á bætri lýð­heilsu og sam­fé­lags­legri ábyrgð“, að stýra aðgengi að áfengi og tóbaki og draga þannig úr skað­legum áhrifum af neyslu þeirra og að vernda ungt fólk gegn neyslu áfengis og tóbaks og „tak­marka fram­boð á óæski­legum vörum“.

4 – ÁTVR er einn stærsti smá­sali á Íslandi. Fyr­ir­tækið rekur 50 versl­anir um land allt, þar af þrettán á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Árið 1986 rak fyr­ir­tækið 13 versl­anir. Fjöldi þeirra hefur því tæp­lega fjór­fald­ast á 30 árum. Til sam­an­burðar rekur Bónus, sem er með 39 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á dag­vöru­mark­aði, 31 versl­anir um land allt.

5 – Á und­an­förnum árum hefur þjón­usta ÁTVR við neyt­endur auk­ist mjög umfram fjölgun versl­anna. Nafni versl­anna fyr­ir­tæk­is­ins var breytt í Vínbúðin og þær eru nú opnar mun lengur en áður var. Auk þess hefur vöru­fram­boð marg­fald­ast á und­an­förnum árum. Í lok árs 2014 voru í boði 2.617 vöru­teg­undir. Margar Vínbúðir eru nú opnar til 20:00 á virkum dögum og til klukkan 18:00 á laug­ar­dögum. Aðgengi almenn­ings að áfengi hefur því auk­ist gríð­ar­lega á und­an­förnum árum og ára­tugum og vöru­fram­boð stór­auk­ist sömu­leiðis.

6 – Áfeng­is­aug­lýs­ingar eru bann­aðar með lögum. Vínbúðin má hins vegar aug­lýsa sig svo lengi sem að áhersla sé lögð á sam­fé­lags­lega ábyrgð í aug­lýs­ing­unum. Á und­an­förnum árum hafa slíkar aug­lýs­ingar, þar sem fólk er minnt á að muna eftir skil­ríkjum sínum(bannað er sam­kvæmt lögum að selja fólki undir 20 ára áfengi), birst ítrekað í völdum fjöl­miðlum.

7 – Rekstr­ar­tekjur ÁTVR voru 28,6 millj­arðar króna á árinu 2014 og juk­ust um 1,2 millj­arða króna á milli ára. Af þeim runnu 23,7 millj­arðar króna til rík­is­sjóðs vegna tóbaks­gjalds (5,7 millj­arðar króna), áfeng­is­gjalds (9,2 millj­arðar króna), virð­is­auka­skatts (7,3 millj­arðar króna) og arð­greiðslu (1,4 millj­arðar króna). Það þýðir að um 83 pró­sent allra tekna ÁTVR renna í rík­is­sjóð. Allar þessar tekjur myndu skila sér þangað óháð því hver það væri sem seldi áfengi og tóbak, utan arð­greiðsl­unnar, enda eru álögur á áfengi á Íslandi þær hæstu í Evrópu að Noregi und­an­skildum.

8 – Tveir þriðju hlutar allra rekstr­ar­tekna ÁTVR, alls 19,1 millj­arðar króna (2014), koma til vegna sölu áfengis. Tekjur vegna tóbaks­sölu voru 9,5 millj­arðar króna. Vöru­notkun tóbaks var átta millj­arðar króna árið 2014 og af henni var 5,7 millj­arðar króna tóbaks­gjald sem greið­ist til rík­is­ins. Þegar vöru­gjöld hafa verið dregin frá tekjum ÁTVR af tóbaks­sölu stendur eftir 1,5 millj­arður króna. Tóbaks­salan fer fram í gegnum mjög hag­kvæma mið­læga tóbaks­sölu þar sem vörur eru að mestu pant­aðar raf­rænt og sóttar á sama stað. Engin tóbaks­smá­sölu­verslun er rekin heldur er ein­ungis um heilds­sölu að ræða. Því sýnir ein­faldur hug­ar­reikn­ingur að miklar líkur séu á því að arð­greiðslan sem greidd er til rík­is­ins árlega (1,4 millj­arðar króna árið 2014) sé greidd af hagn­aði vegna tóbaks­sölu. Sé það rétt er ljóst að áfeng­is­sala ÁTVR er nið­ur­greidd af tóbaks­söl­unni. Þetta var m.a. nið­ur­staða grein­ingar fyr­ir­tæk­is­ins Clever Data á rekstri ÁTVR sem birt var í maí 2015.

9 – ÁTVR hefur aldrei viljað upp­lýsa um hver aðskilin kostn­aður á tóbaks- og áfeng­is­sölu sé. Rekstr­ar­kostn­aður hvors fyrir sig er ein­fald­lega ekki skil­greindur sér­stak­lega í bók­haldi fyr­ir­tæk­is­ins og stjórn­endur ÁTVR hafa ekki viljað svara fyr­ir­spurnum Kjarnans um hver kostn­aður fyr­ir­tæk­is­ins vegna sölu á tóbaki væri.

10 – Engin stjórn er yfir ÁTVR, sem skil­greind er sem stofnun sam­kvæmt lögum.

Slík hefur ekki verið til staðar í nokkur ár heldur heyrir stofn­unin beint undir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Yfir­stjórn fyr­ir­tæk­is­ins, sem sam­anstendur af Ívari J. Arndal for­stjóra og fram­kvæmda­stjórum, tekur þess í stað ákvarð­anir tengdar rekstri ÁTVR. Fyr­ir­tækið sker sig þannig frá öðrum stórum fyr­ir­tækjum í opin­berri eigu, eins og til dæmis orku­fyr­ir­tækjum, þar sem eig­and­inn kemur ekki að beinni stjórn þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár