Tóbakssala virðist búa til allan hagnað ÁTVR

Hart er tek­ist á um þessar mundir hversu vel rekstur Áfengis- og tóbaks­versl­unar rík­is­ins (ÁTVR) gangi raun­veru­lega. Aðilar sem vilja að fram­lagt frum­varp um að afnema ein­okun rík­is­ins á smá­sölu áfengis fengu fyr­ir­tækið Clever Data til að vinna skýrslu fyrir sig um rekst­ur­inn.

Nið­ur­stöður voru þær að ekki væri eig­in­legur hagn­aður af starf­semi ÁTVR á föstu verð­lagi árs­ins 2014. Ein helsta ástæða þess sé sú að langtum meiri rekstr­ar­hagn­aður væri af sölu tóbaks en sölu áfengis, enda sé tóbak­inu ein­ungis dreift í heild­sölu á meðan að áfengið er selt í versl­unum sem ÁTVR á og rekur út um allt land.

ÁTVR sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu í gær þar sem fyr­ir­tækið hafnar alfarið nið­ur­stöðum Clever Data. Þar stendur m.a.: "Nið­ur­stöður hennar eru vanga­veltur sem eiga sér litla stoð í raun­veru­leik­anum og ÁTVR hafnar þeim alfarið. ÁTVR hefur aldrei verið rekin með tapi frá því að áfeng­is­gjöld og tóbaks­gjöld voru aðskilin frá rekstr­ar­tekjum versl­un­ar­innar. "

Það er í sjálfu sér rétt. ÁTVR skilar hagn­aði. En þegar rýnt er í árs­reikn­ing fyr­ir­tæk­is­ins virð­ist vera sem að þorri þess hagn­aðar sé til­komin vegna sölu á tóbaki, ekki áfengi.

Tekjur af tóbaki 9,1 milljarður árið 2013

Tekjur af tóbaks­sölu á árinu 2013 námu 9,1 millj­arði króna, sem eru um þriðj­ungur allra tekna ÁTVR það árið. Sala tóbaks útheimtir hins vegar mun minna umstang en áfeng­is­salan, sem fer fram í 48 versl­unum víðs­vegar um landið. Þegar Kjarninn leit­aði eftir upp­lýs­ingum um hver beinn kostn­aður af tóbaks­sölu væri vildu stjórn­endur ÁTVR vildu ekki upp­lýsa ekki um hann.

Í frétta­til­kynn­ing­unni sem send var út í gær er snert á þessu máli. Þar segir að ÁTVR sé lögum sam­kvæmt rekin sem ein heild og smá­sala áfengis og heild­sala tóbaks sé ekki aðgreind í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins né bók­haldi. "Ljóst er að aðgreindur rekstur hefði í för með sér veru­lega óhag­kvæmni, enda eru veiga­miklir rekstr­ar­liðir sam­eig­in­legir báðum þáttum starf­sem­innar. Nægir hér til dæmis að nefna hús­næð­is­kostnað, kostnað við með­höndlun vöru í vöru­húsi, rekstur tölvu­kerfa, vöruinn­kaup, vöru­dreif­ingu og launa­kostnað. Í bók­haldi ÁTVR er ekki sund­ur­greint hvernig slíkur kostn­aður deilist á milli áfengis- og tóbaks­hlut­ans og því eru engin gögn til um kostn­að­ar­skipt­ingu. Kostn­aður vegna vöru­notk­unar áfengis ann­ars vegar og tóbaks hins vegar er hins vegar aðgreindur í rekstr­inum og sund­ur­lið­aður í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins."

Í svari ÁTVR er því ekki, frekar en þegar Kjarninn leit­aði eftir upp­lýs­ingum um það, sagt hver kostn­aður tóbaks­sölu fyr­ir­tæk­is­ins er.

Tóbakssalan þriðjungur af tekjum

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um umsvif ÁTVR í áfeng­is­sölu á Íslandi sum­arið 2014, þar sem fyr­ir­tækið er með ein­ok­un­ar­stöðu. Sú umfjöllun byggði á birtum árs­reikn­ingum fyr­ir­tæk­is­ins.

Í fyrra­haust var lagt fram frum­varp á Alþingi sem mun heim­ila sölu á áfengi í versl­unum. Verði það að lögum mun slíkt frum­varp hafa gíf­ur­leg áhrif á ÁTVR, enda 2/3 hluti veltu fyr­ir­tæk­is­ins til­kom­inn vegna áfeng­is­sölu. Þorri þeirra tekna myndi hvort eð er fara í rík­is­sjóð ef áfengið yrði selt ann­ars staðar, í formi áfeng­is­gjalds og virð­is­auka­skatts. Ljóst er að stærsti hluti kostn­aðar ÁTVR er líka vegna áfeng­is­söl­unnar, enda eru starf­ræktar 48 versl­anir um land allt í þeim til­gangi að selja það með til­heyr­andi starfs­manna­kostn­aði.

Hinn þriðj­ungur tekna ÁTVR, 9,1 millj­arður króna, kemur hins vegar úr tóbaks­sölu. Hún útheimtir ekki jafn mikið umstang og áfeng­is­salan. Þvert á móti er öll tóbaks­dreif­ing ÁTVR nú orðin mið­læg, þ.e. hún fer fram á einum og saman staðnum, Útgarði, dreif­ing­ar­mið­stöð fyr­ir­tæk­is­ins í Reykja­vík. Í árs­reikn­ingi ÁTVR segir að „mikið hag­ræði fylgir breyt­ing­unni þar sem birgða­hald og vöru­með­höndlun minnkar og dreif­ing­ar­kostn­aður lækkar. Samhliða hefur verið lögð áhersla á raf­rænar pant­anir til hags­bóta fyrir alla aðila“.

Kostnaðurinn ekki gefinn upp

Í árs­skýrslu ÁTVR kemur ekk­ert fram um hver kostn­aður fyr­ir­tæk­is­ins af tóbaks­söl­unni sé. Kjarninn leit­aði því eftir upp­lýs­ingum um hver sá kostn­aður væri. Í svari Sigrúnar Óskar Sig­urð­ar­dóttur, aðstoð­ar­for­stjóra ÁTVR, við fyr­ir­spurn Kjarnans í ágúst 2014 sagði að „Kostn­aður vegna tóbaks­sölu er ekki færður sér­stak­lega í bók­haldi ÁTVR nema vöru­notkun tóbaks sem nam 7,7 millj­örðum. Tóbaks­gjaldið er skil­greint sem hluti af kostn­að­ar­verði seldra vara í bók­haldi ÁTVR og fært undir vöru­notkun“.

Uppi­staðan í vöru­notkun tóbaks er tóbaks­gjald sem rennur mán­að­ar­lega til rík­is­ins, alls 5,5 millj­arðar króna á árinu 2013. Þegar vöru­gjald tóbaks er dregið frá tekjum fyr­ir­tæk­is­ins vegna þess sitja 1,4 millj­arðar króna eftir, sem er hærri upp­hæð en ÁTVR greiddi rík­inu í arð í fyrra. Því má ætla að þorri þess hagn­aðar sem ÁTVR sýnir árlega sé vegna sölu á tóbaki, ekki vegna áfengis, þ.e. að sala áfengis sé ekki arð­bær.

ÁTVR upp­lýsir því ekki beint hver kostn­aður vegna tóbaks­söl­unnar er. Í árs­skýrslu fyr­ir­tæk­is­ins sést hins vegar að 5,5 millj­arðar króna af „vöru­notkun“ eru vegna tóbaks­gjalds og því eru 2,2 millj­arðar króna vegna ann­ars kostn­aðar.

Uppi­staðan í tóbaks­sölu ÁTVR er reyk­tó­bak, og aðal­lega sígar­ettur. Rúmlega 93 pró­sent af tóbaks­söl­unni eru vegna þess.

Fjórföldun á veltu vegna „Rudda“

En ÁTVR fram­leiðir líka tóbak, nef­tó­bak, og hefur gert árum saman. Árið 1996 var fín­kornað munn- og nef­tó­bak bannað með lögum á Íslandi. Það þýðir að nef­tó­bakið sem ÁTVR fram­leiðir hefur verið í nán­ast ein­ok­un­ar­stöðu á mark­aðnum síðan lögin voru sett.

Samhliða hefur neysla á munn­tó­baki auk­ist tölu­vert og þeir sem neyta þess kaupa ann­að­hvort smygl­varn­ing á svörtum mark­aði, þar sem er mikið fram­boð, eða nota nef­tó­bakið sem ÁTVR fram­leiðir, hinn svo­kall­aða „Rudda“, sem munn­tó­bak. Þessi aukna neysla hefur skilað auknum tekjum í vasa hins opin­bera svo um munar, bæði vegna hækk­unar á tóbaks­gjaldi og stór­auk­innar eft­ir­spurnar. Tóbaks­gjald á nef­tó­bak hækk­aði til að mynda um 100 pró­sent 1. jan­úar 2013.

Frétta­skýr­ingin byggir á annarri slíkri sem birt­ist fyrst í app-útgáfu Kjarnans í ágúst 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár