ÁTVR: Ríkið í ríkinu

Und­arn­farna daga hefur rekstur rík­is­ins á Áfengis- og tóbaks­verslun rík­is­ins (ÁTVR) verið í sviðs­ljós­inu, eftir að grein­ing­ar­fyr­ir­tækið CleverData birti skýrslu fyrir Vinbudin.com um rekst­ur­inn. Til­gangur skýrsl­unar var að gefa skýrari mynd af rekstri ÁTVR út frá kostn­að­ar­grein­ingu og yfir­liti opin­berra upp­lýs­inga. Nið­ur­stöð­urnar sýndu að ekki var eig­in­legur hagn­aður af starf­semi ÁTVR.

ÁTVR hefur hafnað þess­ari nið­ur­stöðu og segir að hún eigi sér ekki stoð í raun­veru­leik­anum.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um þessa stöðu sum­arið 2014 og byggði röð frétta­skýr­inga á opin­berum gögnum um fjár­mál ÁTVR. Í ljósi þeirrar umræðu sem sprottið hefur upp und­an­farna daga verða þær skýr­ingar end­ur­birtar með upp­færslum.

Löng saga


Íslenska ríkið hefur rekið einka­sölu áfengis hér­lendis frá árinu 1922. Ef núver­andi fyr­ir­komu­lagi verður haldið áfram mun það því eiga 100 ára afmæli eftir átta ár. Svo gæti hins vegar farið að fyr­ir­komu­lag­inu verði breytt. Vil­hjálmur Árnason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lagði síð­ast­liðið haust fram frum­varp um að leyfa sölu áfengis í versl­unum.

Verði frum­varpið að lögum mun það breyta starf­semi ÁTVR gríð­ar­lega. Árið 2013 voru tekjur fyr­ir­tæk­is­ins vegna áfeng­is­sölu 22,8 millj­arðar króna.

Umræðan um þessi mál hefur að mestu snú­ist um það að með sölu léttra áfengra drykkja í versl­anir muni aðgengi aukast með nei­kvæðum áhrifum á drykkju, sér­stak­lega ung­menna, hagn­aður muni fær­ast frá rík­is­sjóði til einka­fyr­ir­tækja og að vöru­úr­val muni minnka.

En minna virð­ist hafa farið fyrir umræðu um hvort það sé eðli­legt að ríki reki risa­vaxið smá­sölu­veldi sem er með ein­okun á einni lög­regri vöru.

Risafyrirtæki á íslenskum smásölumarkaði


ÁTVR er nefni­lega ekk­ert smá­fyr­ir­tæki. Það rekur 48 versl­anir út um allt land. Árið 1986, þremur árum áður en bjór­inn var leyfður aftur með lögum, voru þær 13 tals­ins. Fjöldi þeirra hefur því nær þre­fald­ast síðan þá. Til sam­an­burðar eru þjón­ustu­stöðvar og elds­neyt­is­af­greiðslur N1, sem er með stærsta net slíkra á meðal íslenskra elds­neyt­is­sala, 95 tals­ins. Semsagt ein vín­búð á hverjar tvær elds­neyt­is­af­greiðslur N1. Bónus, stærsti mat­vöru­selj­andi lands­ins, rekur 29 versl­anir um land allt. Það eru 19 færri en vín­búðir ÁTVR.

Vín­búð­unum hefur ekki bara fjölgað. Þær hafa aukið þjón­ustu sína veru­lega, meðal ann­ars með því að vera opnar miklu oftar og lengur en áður var. Margar þeirra eru nú opnar til 20:00 á virkum dögum og til klukkan 18:00 á laug­ar­dögum. Aðgengi hefur því auk­ist gríð­ar­lega á und­an­förnum árum og ára­tugum.

[caption id="attachment_8956" align="alignnone" width="3000"] ÁTVR er smá­sölurisi. Alls eru versl­anir fyr­ir­tæk­is­ins 48 tals­ins á land­inu öllu.[/caption]

Þetta hefur gerst þrátt fyrir að sér­stak­lega sé tekið fram í lögum um verslun með áfengi og tóbak frá árinu 2011 að eitt þriggja mark­miða lag­anna sé að „tak­marka og stýra aðgengi að áfengi og tóbaki og draga þannig úr skað­legum áhrifum áfengis- og tóbaksneyslu“.

Þessi auknu umsvif hafa skilað því að ÁTVR er smá­sölurisi á íslenska mark­aðnum í öllum sam­an­burði. Rekstar­tekjur stofn­un­ar­innar voru 27,4 millj­arðar króna á árinu 2013. Til að setja þetta í sam­hengi þá voru tekjur trygg­inga­fé­lag­anna Sjóvá og Trygg­inga­mið­stöðv­ar­innar sam­an­lagt um 28 millj­arðar króna á árinu 2013, eða lítið eitt meiri en tekjur ÁTVR.

Tekjur ÁTVR hafa vaxið mjög sam­hliða auk­inni áfeng­is­neyslu þjóð­ar­innar (seldum áfeng­is­lítrum hjá ÁTVR hefur fjölgað úr 12,4 millj­ónum árið 1999 í 18,7 millj­ónir árið 2013). Rekstr­ar­tekjur ÁTVR voru í heild 11,8 millj­arðar króna árið 1999 og þar af komu um sjö millj­arðar króna af áfeng­is­sölu. Árið 2013 skil­aði áfeng­is­salan 18,2 millj­örðum króna. Hinir rúmu níu millj­arð­arnir sem skil­uðu sér í kass­ann voru vegna sölu tóbaks.

Peningarnir fara hvort sem er í ríkissjóð


En hvað verður um allar þessar tekjur? Þorri þeirra rennur í rík­is­sjóð í formi áfeng­is­gjalds, magn­gjalds tóbaks og virð­is­auka­skatts, enda álögur á áfengi á Íslandi þær hæstu í Evrópu að Noregi und­an­skildu.

Af þeim 21,5 millj­örðum króna sem runnu í rík­is­sjóð af brúttó­sölu ÁTVR á árinu 2013 var allt nema einn millj­arður króna vegna þess­arra gjalda og myndi því skila sér í rík­is­sjóð óháð því hver sölu­að­ili áfengis og tóbaks væri. Til við­bótar greiðir ÁTVR rík­is­sjóði arð upp á rúman millj­arð króna vegna frammi­stöðu rekstr­arsins á árinu.

Þrátt fyrir þessu miklu umsvif stofn­un­ar­innar, og ÁTVR er skil­greind sem stofnun í lögum, þá er engin stjórn yfir fyr­ir­tæk­inu. Slík hefur ekki verið til staðar í nokkur ár heldur heyrir stofn­unin beint undir fjár­mála­ráð­herra. Yfir­stjórn fyr­ir­tæk­is­ins, sem sam­anstendur af Ívari J. Arndal for­stjóra og fram­kvæmda­stjórum, tekur þess í stað ákvarð­anir tengdar rekstri ÁTVR. Fyr­ir­tækið sker sig þannig frá öðrum stórum fyr­ir­tækjum í opin­berri eigu, eins og til dæmis orku­fyr­ir­tækjum, þar sem eig­and­inn kemur ekki að beinni stjórn þess. Það er nokk­urs­konar ríki í rík­inu.

Neytendur ánægðir með ÁTVR


Þótt mis­mun­andi mein­ingar séu um það á meðal þjóð­ar­innar að afnema ein­okun ÁTVR á áfeng­is­sölu þá er ljóst að það ríkir mikil ánægja með starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins og þá þjón­ustu sem það býður upp á. ÁTVR hlaut til dæmis hæstu ein­kunn allra þeirra 21 fyr­ir­tækis sem tóku þátt í Ánægju­vog­inni, mæl­ingu á ánægju við­skipta­vina þeirra. Eitt af því sem skiptir þar miklu máli er breytt vöru­úr­val.

ÁTVR hefur enda verið að auka vöru­fram­boð sitt jafnt og þétt. Í lok árs 2013 voru 2.037 vöru­teg­undir fáan­legar hjá ÁTVR, annað hvort í versl­unum fyr­ir­tæk­is­ins eða hægt að panta þær sér­stak­lega. Þetta er gríð­ar­leg aukn­ing frá því sem áður var. Þegar fyrsta sjálfs­af­greiðslu­verslun ÁTVR var opnuð í Kringl­unni árið 1986, áður hafði áfengi ein­ungis verið afgreitt „yfir borðið“, bauð fyr­ir­tækið upp á 550 teg­undir. Þetta var áður en bjór­inn var leyfður en breytir því ekki að fjór­földun í vöru­fram­boði á þeim tíma sem lið­inn er síðan þá er tölu­verður.

Heimsendaspár um lyftingu bjórbanns rættust ekki


Fram til árs­ins 1989 var bannað að kaupa bjór á Íslandi. Þegar frum­varp um að afnema það bann var lagt fram á Alþingi komu fram mörg sömu rök og sett eru fram í umræð­unum í dag, þegar rætt er um að færa verslun með bjór og létt­vín inn í mat­vöru­versl­anir. Í BA-rit­gerð Guðjóns Ólafs­sonar í félags- og fjöl­miðla­fræði frá árinu 2012, sem ber nafnið „Baráttan um bjór­inn“, er fjallað ítar­lega um afnám bjór­banns­ins og afleið­ingar þess.

[caption id="attachment_13420" align="alignnone" width="4256"] Stein­grímur J. Sig­fús­son var ekk­ert sér­stak­lega hlynntur aflétt­ingu bjór­banns­ins.[/caption]

Þar er meðal ann­ars vitnað í ræður þing­manna þess tíma. Einn þeirra sem var mjög á móti aflétt­ingu bjór­banns­ins var Stein­grímur J. Sig­fús­son, þá þing­maður Alþýðu­banda­lags­ins en situr í dag sem þing­maður Vinstri grænna. Hann flutti ræðu í neðri deild þings­ins árið 1988. Í henni sagði: „Ég ótt­ast að áfengt öl, sér­stak­lega létt­ara ölið, getið orðið fyrsta sporið inn á braut vímu­efn­anna, t.d. fyrir ung­ling­ana, geti leitt til þess að aldur áfeng­is­neysl­unnar fær­ist niður og þetta verði svo lágur þrösk­uldur að stíga yfir að mati gæslu­manna, for­eldr­anna og ann­arra slíkra aðila, að á því verði ekki tekið jafn­al­var­lega og ef um aðrar teg­undir vímu­gjafa, sterkara áfengi, væri að ræða“.

Geir Gunn­ars­son, sam­flokks­maður Stein­gríms, sagði í sömu umræðum að hann teldi „einnig að þau gögn, sem fyrir liggja, bendi jafn­framt til þess að sú við­bót­ar­neysla gæti komið fram í auk­inni hvers­dags­drykkju, jafn­vel vinnu­staða­drykkju í ein­hverjum mæli“.

Bjór í staðinn fyrir kaffi


Aðal­heiður Bjarn­freða­dóttir, þáver­andi þing­kona Borg­ara­flokks­ins, ótt­að­ist um að bjór kæmi í stað kaffi­drykkju. Í ræðu hennar sagði: „Ég er viss um að bjór­inn verður ákaf­lega mik­ill pen­inga­þjófur því að þegar hann verður leyfður eða ef hann verður leyfður verður keppst við að hafa hann í ísskápnum. Þá verður boð­inn bjór í stað­inn fyrir kaffi. Við erum orðin allt of fínt fólk til að vera að bjóða þennan gamla þjóð­ar­drykk okkar. Það verður boð­inn bjór í stað­inn fyrir kaffi. Og hann verður miklu, miklu meiri freist­ing fyrir ung­ling­ana, mér liggur við að segja börnin, en sterka vínið þó að það geti verið nógu slæmt á heim­ilum“.

Guðrún Helga­dóttir, þing­maður Alþýðu­banda­lags­ins, var mikil tals­kona þess að bjór­inn yrði leyfður. Í ræðu hennar sagði meðal ann­ars: „„Heild­ar­neysla áfengis segir nákvæm­lega ekki neitt um drykkjusiði þjóð­ar­innar. Þeir verða ekki í lagi fyrr en þjóð­inni hefur lærst að fara með áfenga drykki eins og siðað fólk. Von okkar sem teljum æski­legra að fólk neyti léttra áfengra drykkja en sterkra er sú að einn góðan veð­ur­dag renni upp sú stund að það verði heldur litið niður á fólk sem sést á almanna­færi áber­andi drukkið. Það eru nefni­lega engir mannasiðir.“

Síðar í umræð­unni sagði Guðrún: „Sú er óbif­an­lega skoðun mín að gott og heil­brigt þjóð­fé­lag eigi að byggj­ast á því að sér­hver heil­brigður ein­stak­lingur beri ábyrgð á eigin lífi, að hann verði að axla þá ábyrgð að velja og hafna. Þann bikar hvorki vil ég né tel rétt að taka frá öðru fólki“.

Dró verulega úr ölvunarakstri


Segja má að efa­semd­ar­fólkið sem vildi ekki sjá bjór­inn leyfðan hafi að ein­hverju leyti haft rétt fyrir sér, en að mörgu leyti mjög rangt. Neysla áfengis hefur vissu­lega auk­ist töl­ur­vert eftir að bjór­inn var leyfður en neysla á sterku áfengi hefur að sama skapi dreg­ist saman. Fólk virð­ist því drekka meira en minna ein­vörð­ungu til þess að verða mjög ölvað.

Í rit­gerð Guðjóns er vitnað í rann­sókn rann­sókn Þórodds Bjarna­sonar frá árinu 2007 um neyslu 15 og 16 ára ung­menna sem sýndi að mark­tækt hefði dregið úr ung­linga­drykkju á milli áranna 1995 og 2007. Íslenskir ung­lingar drekka auk þess sjaldnar áfengi en jafn­aldrar þeirra í Evrópu.

Guðjón fjallar einnig um áhrif aflétt­ingu bjór­banns­ins á ölv­un­arakstur í rit­gerð sinni. Nið­ur­staða þeirrar skoð­unar er sú að ölv­un­arakstur hafi farið minnk­andi eftir aflétt­ingu þess og fari í raun minnk­andi með hverju árinu sem líður. Á tíma­bil­inu 1970 til 1980 voru að með­al­tai 1.411 ein­stak­lingar á hverja 100 þús­und íbúa teknir ölv­aðir undir stýri. Á þeim ára­tug hélst ölv­un­arakstur í hendur við aukna áfeng­is­neyslu.

Á árunum 2000-2010 voru þeir mun færri, eða 638 að með­al­tali á ári. Og þeim fór fækk­andi eftir því sem á leið. Árið 2010 voru þeir ein­ungis 407. Á þessu tíma­bili hefur áfeng­is­neysla því auk­ist en dregið hefur úr ölv­un­arakstri.

Frétta­skýr­ingin er upp­færð útgáfa af annarri slíkri sem birt­ist í app-útgáfu Kjarnans í ágúst 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár