54% íbúa á Kjalarnesi eru innflytjendur og er það hlutfall langhæst allra byggðarkjarna á landinu. Ef litið er á sveitarfélög er hlutfall innflytjenda mest í Mýrdalshreppi, en 28% íbúa þar eru innflytjendur. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu um dreifingu innflytjenda eftir póstnúmerum.
[links]Innflytjandi er einstaklingur sem er fæddur erlendis og á foreldra sem einnig eru fæddir erlendis, svo og báðir afar hans og báðar ömmur. Athygli vekur að dreifing þeirra er mjög breytileg eftir sveitarfélögum. Í Skorradalshreppi eru engir skráðir innflytjendur á meðan þeir eru 17.497 í Reykjavík. Hlutfall innflytjenda er hins vegar hæst í Mýrdalshreppi. Þar eru þeir 157 af 561 íbúa, eða 28%.

Mynd hér að ofan sýnir tíu sveitarfélög með hæsta hlutfall innflytjenda af íbúafjölda auk Reykjavíkur, en dreifingin hefur breyst töluvert frá því í fyrra. Innflytjendum fjölgaði mest í Reykjavík, eða um 1.526 manns. Í Reykjanesbæ fjölgaði innflytjendum næst mest, eða um rúman þriðjung og eru nú orðnir 3.159. Ekkert sveitarfélag mátti þola umtalsverða lækkun á þessu hlutfalli, en mest var hún í Tálknafjarðarhreppi þar sem innflytjendum fækkaði um 19 manns.[adspot]
Langhæsta hlutfallið á Kjalarnesi
Innan Reykjavíkur er einnig mikill munur milli hverfa, en langhæsta hlutfall innflytjenda er á Kjalarnesi. Þar eru þeir 245 af 463, eða 53% íbúa. Ekki er ljóst hvað útskýrir misræmið, en hælisleitendur sem gista á Arnarholti á vegum Útlendingastofnunnar eru ekki teknir með í útreikningum þar sem þeir hafa ekki lögheimili hér á landi.
Efra-Breiðholt hefur þó að geyma stærsta fjölda innflytjenda í Reykjavík, en þar eru þeir 2.628 talsins og 29% íbúa hverfisins. Lægsta hlutfall innflytjenda er þó í Staðahverfi og Vestur-Grafarholti, þar sem þeir eru 3% hverfisbúanna. Sömu sögu er að segja um hverfi Reykjavíkur og hin sveitarfélögin, ekkert þeirra mátti þola neina marktæka fækkun innflytjenda. Mest var fækkunin í Austurbæ, en þar fækkaði þeim um 4.

Eins og kom fram í frétt Kjarnans í gær hafa aldrei verið fleiri innflytjendur á Íslandi, en þeir eru orðnir 10,6% af mannfjöldanum. Búist er við því að hlutfall þeirra muni halda áfram að vaxa og að þeir verði fjórðungur þjóðarinnar eftir hálfa öld.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir