Innflytjendur tíu prósent landsmanna og 16 prósent Suðurnesjabúa

Fyrstu og ann­arrar kyn­slóðar inn­flytj­endur hafa aldrei verið hærraa hlut­fall af mann­fjöld­anum hér, eða 10,8 pró­sent. Samkvæmt mann­fjölda­spá verða inn­flytj­endur og afkom­endur þeirra fjórð­ungur lands­manna árið 2065.

Inn­flyt­endur á Íslandi voru 31.812 tals­ins í upp­hafi þessa árs. Þeim fjölg­aði úr 29.192 á árinu. Frá árinu 2012 hefur inn­flytj­endum fjölgað úr því að vera átta pró­sent af þeim mann­fjölda sem býr á Íslandi og upp í 9,6 pró­sent. Hæst er hlut­fall inn­flytj­enda á Suð­ur­nesj­unum, en þar eru 16 pró­sent þeirra sem þar búa inn­flytj­endur. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.

Þar kemur einnig fram að annarri kyn­slóð inn­flytj­enda hefur líka fjölgað hratt á und­an­förnum árum og sam­an­lagt hlut­fall þeirra sem eru af fyrstu eða annarri kyn­slóð inn­flytj­enda hefur aldrei verið hærra, eða 10,8 pró­sent af mann­fjöld­anum. Önnur kyn­slóð inn­flytj­enda telur nú 4.158 manns.

Þá hefur ein­stak­lingum með erlendan bak­grunn, aðrir en inn­flytj­endur, líka fjölgað. Þeir eru nú 6,7 pró­sent mann­fjöld­ans.

16 prósent íbúa á Suðurnesjum

Sem fyrr eru Pól­verjar lang­fjöl­menn­asti hóp­ur­inn sem hér býr. Alls eru þeir 37,7 pró­sent allra inn­flytj­enda og í upp­hafi árs voru íslensku Pól­verjarnir 11.988 tals­ins.Þar á eftir koma inn­flytj­endur frá Litháen og Fil­ipps­eyjum.

Flestir fyrstu og ann­arrar kyn­slóðar inn­flytj­endur búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða 23.707 manns. Það eru 65,9 pró­sent allra inn­flytj­enda á land­inu. Hlutfall inn­flytj­enda af heildar­í­búa­fjölda á lands­svæði er hins vegar hæst á Suð­ur­nesj­unum þar sem 16 pró­sent íbúa eru inn­flytj­endur af fyrstu eða annarri kyn­slóð. Á Vest­fjörðum er hlut­fallið 14,1 pró­sent en lægst er hlut­fallið á Norð­ur­landi vestra þar sem ein­ungis 5,1 pró­sent mann­fjöld­ans eru inn­flytj­endur eða börn þeirra.

Innflytjendum mun að óbreyttu fjölga mikið

Hag­stofan birti í lok júní nýja mann­fjölda­spá sem nær til árs­ins 2065. Í mið­spá stofn­un­ar­innar var gert ráð fyrir að Íslend­ingar væru orðnir 442 þús­und í lok spá­tíma­bils­ins, en þeir voru 332 þús­und í upp­hafi þessa árs.

Sam­kvæmt spánni munu fleiri flytja til lands­ins en frá því næstu hálfu öld­ina. Þar sagði: „­Fjöldi aðfluttra verður meiri en brott­­fluttra á hverju ári, fyrst og fremst vegna erlendra inn­­flytj­enda. Íslenskir rík­­is­­borg­­arar sem flytja frá land­inu munu halda áfram að vera fleiri en þeir sem flytja til lands­ins.“

Aðfluttir umfram brott­flutta á árinu 2015 voru 1.447 tals­ins. Erlendum rík­is­borg­urum sem búa á Íslandi fjölg­aði á sama tíma um 2.460. Hag­stofan gerir ráð fyrir að þessi þróun muni halda áfram næstu 50 árin. Þ.e. að íslenskir rík­is­borg­arar sem leiti tæki­fær­anna í öðrum löndum frekar en hér verði 850 fleiri að með­al­tali á ári en þeir sem skila sér aftur heim eftir dvöl erlend­is. Á 50 árum eru þetta um 43 þús­und manns.Til lands­ins munu hins vegar koma um 1.600 fleiri útlend­ingar á ári en flytj­ast frá því. Á 50 árum gera það um 80 þús­und manns. Verði Íslend­ingar 442 þús­und tals­ins árið 2065, líkt og spá Hag­stof­unnar gerir ráð fyr­ir, ættu erlendir rík­is­borg­arar þá að verða um 107 þús­und tals­ins, eða um fjórð­ungur þjóð­ar­inn­ar.

Borga meira í skatt og taka minna til sín

Í ágúst greindi Kjarninn frá því að erlendir rík­is­borg­arar eru nú yfir tíu pró­sent þeirra sem greiða skatta á Íslandi. Rúm­lega annar hver nýr skatt­greið­andi hér­lendis á síð­ustu árum hefur komið erlendis frá og á árinu 2015 einu saman voru 74,4 pró­sent allra nýrra skatt­greið­enda erlendir rík­is­borg­ar­ar. Það þýðir að þrír af hverjum fjórum sem bætt­ist við skatt­grunn­skrá lands­ins í fyrra voru erlendir rík­is­borg­arar en einn af hverjum fjórum var íslenskur rík­is­borg­ari.

Á sama tíma voru greiðslur í félags­lega aðstoð þær lægstu sem þær hafa verið frá hruni. Í fyrra, þegar útlend­ingum sem fluttu til Íslands fjölg­aði meira en þeim hafði gert árum sam­an, dróg­ust slíkar greiðslur saman í fyrsta sinn í átta ár. Umfang greiðslu atvinnu­leys­is­bóta hefur enn fremur dreg­ist mjög saman sam­hliða fjölgun erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi. Árið 2011, þegar fjöldi þeirra náði lág­marki eftir hrun, greiddi íslenska ríkið 24,7 millj­arða króna í atvinnu­leys­is­bæt­ur. Í fyrra, þegar fjöldi erlendra rík­is­borg­ara náði hámarki eftir hrun, var sú upp­hæð 8,8 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagtölur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár