Innri endurskoðandi borgarinnar vinnur að heildarúttekt vegna Panamaskjalanna

Innri end­ur­skoð­andi Reykja­vík­ur­borgar vinnur nú að skoðun á siða­reglum, reglum um hag­muna­tengsla­skrán­ingu og auka­störfum borg­ar­full­trúa í kjöl­far Panama­skjal­anna. Einnig verður upp­lýs­inga­gjöf í inn­herj­a­skrán­ingu skoðuð. Enginn tímara­mmi er á verk­efn­inu.

Sveinbjörg Birna ætlar ekki að snúa aftur úr leyfi fyrr en innri endurskoðun er lokið. Júlíus Vífill sagði af sér sem borgarfulltrúi í kjölfar Panamaskjalanna.
Svein­björg Birna ætlar ekki að snúa aftur úr leyfi fyrr en innri end­ur­skoðun er lokið. Júlíus Vífill sagði af sér sem borg­ar­full­trúi í kjöl­far Panama­skjal­anna.

Innri end­ur­skoð­andi Reykja­vík­ur­borgar formar nú heild­stæða úttekt á fylgni við siða­reglur borg­ar­full­trúa og reglur um skrán­ingu á fjár­hags­legum hags­munum borg­ar­full­trúa og trún­að­ar­störfum utan borg­ar­stjórnar . Hallur Sím­on­ar­son, innri end­ur­skoð­andi borg­ar­innar, segir að nú sé verið að greina umfang verk­efn­is­ins.

„Verk­efnið er þannig vaxið að Innri end­ur­skoðun Reykja­vík­ur­borgar mun horfa á það í heild sinni og kanna hlítni við þessar reglur sem borg­ar­stjórn setti sér fyrir um átta árum. Við munum þannig leggja upp úr því að fara yfir þetta allt sem heild,” segir Hallur í sam­tali við Kjarnann.

For­sætis­nefnd borg­ar­stjórnar ákvað þann 5. apríl síð­ast­lið­inn að fela innri end­ur­skoð­anda að athuga hvort borg­ar­full­trú­arnir Júlíus Vífill Ingv­ars­son og Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir hafi brotið reglur um skrán­ingu á fjár­hags­legum hags­munum borg­ar­full­trúa, hvort hafi fylgt trún­að­ar­störfum utan borg­ar­stjórnar og hvort siða­reglur borg­ar­full­trúa hafi verið brotnar. Þetta var gert í kjöl­far upp­ljóstrana Kast­ljóss og Reykja­vik Media um tengsl Júlíusar og Svein­bjargar við aflands­fé­lög, en hvor­ugur borg­ar­full­trú­anna höfðu greint frá þeim í hags­muna­skrán­ingu borg­ar­full­trúa. Þau komu bæði fyrir í Panama­skjöl­unum, en Júlíus sagði af sér sem borg­ar­full­trúi eftir að Kastljós og Reykja­vik Media fjöll­uðu um málið og Svein­björg fór í leyfi.

Upplýsingagjöf kjörinna fulltrúa yfirfarin

Hallur segir að kjarn­inn í skoð­un­inni séu siða­reglur og reglur á skrán­ingu á fjár­hags­legum hags­munum borg­ar­full­trúa og auka­störfum borg­ar­full­trúa, en jafn­framt þurfi, í sam­starfi við reglu­vörð borg­ar­innar, að yfir­fara upp­lýs­inga­gjöf kjör­inna full­trúa varð­andi inn­herj­a­skrá Reykja­vík­ur­borgar sem útgef­anda á skipu­legum verð­bréfa­mark­aði.

„Þessar reglur eru fók­us­inn hjá okkur. Það er verið að skoða regl­urnar, hvort skerpa þurfi á þeim með ein­hverjum hætti og skoða hvernig kjörnum full­trúum hefur gengið að fylgja þeim.” segir hann. „Þetta er vænt­an­lega svipað og Alþingi stendur frammi fyrir en því hefur verið beint til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar að skoða þessar reglur hjá rík­inu.“ Hann vill engan tímara­mma setja á verk­efnið að svo stöddu.

Fram kemur í Panama­skjöl­unum að Svein­björg er með tengsl við tvö aflands­fé­lög, annað skráð á Tortóla og hitt á Panama. Hún sagð­ist í kjöl­far fregna af tengslum hennar styðja að farið væri í rann­sókn­ar­vinnu af innri end­ur­skoð­anda.

Miklir eftirmálar

Júlíus Vífill stofn­aði aflands­fé­lag í Panama árið 2014. Það mál vatt tölu­vert upp á sig, en fyrst sagði Júlíus að um hefði verið að ræða fyr­ir­tæki utan um eft­ir­launa­sjóð sinn. Systkini hans stigu þó fram í kjöl­farið og sögðu að um væri að ræða líf­eyr­is­sjóð for­eldra þeirra og sök­uðu hann um að fela hann fyrir þeim. Júlíus sak­aði systk­ini sín á móti um að hafa dregið að sér fé.

Einnig var fjallað um mál­efni Þor­bjargar Helgu Vig­fús­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og tengsl hennar og eig­in­manns hennar, Hall­bjarnar Karlss­sonar, við aflands­fé­lög. Þau eru skráð fyrir félag­inu Ravenna Partners á Tortóla. Allt hlutafé Ravenna var skráð á þau hjónin í ágúst 2005. Félagið var alla tíð eigna­laust. Þor­björg Helga var kjörin í borg­ar­stjórn 2006 og sat sem borg­ar­full­trúi til árs­ins 2014. Hún skráði tengslin ekki í hags­muna­skrá.

Í bókun for­sætis­nefndar 5. apríl segir að „í ljósi frétta af aflands­fé­lögum í eigu borg­ar­full­trúa sem fluttar hafa verið að und­an­förnu telur for­sætis­nefnd brýnt að til þess bærir aðilar kanni málin til hlítar. Því er þess farið á leit við innri end­ur­skoðun og reglu­vörð borg­ar­innar að kannað verði hvort borg­ar­full­trú­arnir Júlíus Vífill Ingv­ars­son og Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir hafi farið á svig við gild­andi lög og reglur um skyldur og hæfi borg­ar­full­trúa, hvort reglum um skrán­ingu á fjár­hags­legum hags­munum borg­ar­full­trúa og trún­að­ar­störfum utan borg­ar­stjórnar hafi verið fylgt og hvort siða­reglur borg­ar­full­trúa hafi verið brotnar. Að sama skapi er óskað eftir því að siða­nefnd Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga taki málið til skoð­unar í sam­ræmi við hlut­verk nefnd­ar­innar og 29. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

panamapapers

Erlent

Mossack Fonseca lokar skrif­stofum

Panamíska lög­fræði­fyr­ir­tækið Mossack Fonseca ætlar að loka úti­búum sínm á bresku eyj­unum Jersey, Mön og á Gíbraltar. Við­skipta­vinum á svæð­inu verður áfram sinnt, þó að skrif­stofum sé lokað. Fyr­ir­tækið greindi frá þessu á Twitter í gær­kvöldi. Ósátt við fjöl­miðlaum­fjöllun Þar sendir Mossack Fonseca einnig frá sér yfir­lýs­ingu vegna fjöl­miðlaum­fjöll­unar und­an­farnar vikur. Þar segir að nýlegar fréttir hafi birt óná­kvæma mynd...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár