Sveinbjörg snýr ekki aftur fyrr en að yfirferð lokinni

Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins og flug­vall­ar­vina í Reykja­vík, ætlar ekki að snúa aftur til starfa fyrr en yfir­ferð innri end­ur­skoð­unar Reykja­vík­ur­borgar, um hags­muna­skrá­ingu borg­ar­full­trúa, er lokið en for­sætis­nefnd Reykja­vík­ur­borgar sam­þykkti til­lögu um að fela innri end­ur­skoðun og siða­nefnd Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, að taka til skoð­unar hags­muna­skrán­ingu borg­ar­full­trúa. „Ég styð slíka til­lögu og mun aðstoða fram­an­greinda aðila við þá vinnu í hví­vetna,“ segir Svein­björg Birna í yfir­lýs­ingu.

Í frétta­skýr­ing­ar­þætt­inum Kast­ljósi sl. sunnu­dag var fjallað um félög sem voru stofnuð meðan Svein­björg Birna var búsett í Lux­em­borg, áður en hún hóf afskipti af stjórn­málum á Íslandi. „Af því til­efni sendi ég reglu­verði Reykja­vík­ur­borgar og for­seta borg­ar­stjórnar bréf þar sem ég fór yfir þau við­skipti sem fjallað er um í þætt­inum og bauðst til að veita frek­ari skýr­ingar teldi reglu­vörður þörf á því,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Svein­björg Birna snýr aftur úr fæð­ing­ar­or­lofi 13. júní, en mun ekki hefja störf á nýjan leik fyrr en skoðun á hags­muna­skrán­ing­unni er lokið. „Ég hef tekið þessa ákvörðun til að borg­ar­full­trúar Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina geti áfram veitt meiri­hluta borg­ar­stjórnar nauð­syn­legt aðhald. Fjár­hags­staða borg­ar­innar er sem kunn­ugt er slæm og við­var­andi tap á rekstri borg­ar­innar á sama tíma og dregið er úr þjón­ustu. Í mínum huga er þýð­ing­ar­mest að kjörnir full­trúar ein­beiti sér að leysa slík mál, frekar en að eyða dýr­mætum tíma í þref um skrán­ingu mína á hags­muna­skrá,“ segir í yfir­lýs­ingu Svein­bjargar Birnu.

Svein­björg átti hlut­deild í aflands­fé­lagi sem var í fast­eigna­þró­un­ar­verk­efni í Panama. Áheima­síðu Reykja­vik Media kemur fram að Svein­björg sé skráð fyrir tveimur félögum í umsjá panamísku lög­fræði­stof­unar Mossack Fonseca; 7Callinvest sem skráð er á Tortóla og Ice 1 Corp sem var skráð á Panama. Sjálf hefur hún í störfum sínum í borg­ar­stjórn ítrekað lýst sig and­víga því að Reykja­vík­ur­borg eða fyr­ir­tæki á hennar vegum eigi aðild að fyr­ir­tækjum á aflandseyjum. 

Júlíus Vífill Ingv­ars­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var til umfjöll­unar vegna vörslu­sjóðs sem hann á í Panama. Júlíus gaf út yfir­lýs­ingu vegna máls­ins í vik­unni þar sem hann sagði að sjóð­ur­inn hafi verið stofn­aður í sviss­neskum banka til að mynda eft­ir­launa­sjóð­inn sinn, en að honum hafi verið ráð­lagt að skrá stofnun hans í Panama. Sjóð­ur­inn lúti svip­uðu reglu­verki og sjálfs­eigna­stofnun. Aflands­fé­lagið heitir Silwood Foundation. Hann hefur nú sagt af sér sem borg­ar­full­trúi.

Þá var fjallað í þætt­inum um mál­efni Þor­bjargar Helgu Vig­fús­dóttur, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og eig­in­manns hennar, Hall­bjarnar Karls­sonar verk­fræð­ings. Þorbjörg og Hall­björn eru skráð fyrir félag­inu Ravenna Partners á Tortóla. Allt hlutafé Ravenna var skráð á þau hjónin í ágúst 2005. Félagið var alla tíð eigna­laust. Þorbjörg Helga var kjörin í borg­ar­stjórn 2006 og sat sem borg­ar­full­trúi til árs­ins 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár