Sveinbjörg Birna snýr aftur til starfa í borarstjórn

Svein­björgu Birnu Svein­björns­dóttur bar ekki að skrá tengsl sín við aflands­fé­lög í hags­muna­skrá borg­ar­full­trúa. Henni bar þó að skrá tengslin hjá skrif­stofu borg­ar­stjórnar, sem hún gerði ekki. Þetta segir úttekt innri end­ur­skoð­anda borg­ar­innar.

Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir, odd­viti Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina hjá Reykja­vík­ur­borg, ætlar að snúa aftur til vinnu bráð­lega. Innri end­ur­skoð­andi og reglu­vörður hefur skilað áliti sínu og þar kemur fram að Svein­björgu hafi ekki borið að skrá aflands­fé­lög sem hún tengd­ist á skrá um fjár­hags­lega hags­muni borg­ar­full­trúa eða inn­herj­a­skrá. Félögin voru afskráð á árinu 2009 til 2010 en nafn Svein­bjargar Birnu kom fyrir í Panama­skjöl­unum. Í til­kynn­ingu frá henni segir að á árunum 2009 til 2010 hafi hún verið með lög­heim­ili og skatta­legt heim­il­is­festi í Luxembourg.

Bar að tilkynna um tengsl sem hún gerði ekki

Í til­kynn­ing­unni segir að á árinu 2014 hafi hún í sam­ræmi við ákvæði laga um verð­bréfa­við­skipti til­kynnt reglu­verði um þrjú nánar til­tekin einka­hluta­fé­lög sem fjár­hags­lega tengda aðila. „Aftur á móti hafi mér jafn­framt borið að til­kynna um tengsl mín við umrædd félög á skrá þeirri sem skrif­stofa borg­ar­stjórnar heldur um fjár­hags­lega hags­muni,“ segir Svein­björg.

Þá kemur einnig fram í úttekt­inni, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni, að hún hafi ekki brotið sveit­ar­stjórnar- eða stjórn­sýslu­lög.

Í ljósi nið­ur­stöð­unnar seg­ist Svein­björg ætla að snúa aftur til fyrri starfa í borg­ar­stjórn.

Umfangsmikil úttekt

Innri end­ur­skoð­andi Reykja­vík­ur­borgar var feng­inn til að gera heild­stæða úttekt á fylgni við siða­reglur borg­ar­full­trúa og reglur um skrán­ingu á fjár­hags­legum hags­munum borg­ar­full­trúa og trún­að­ar­störfum utan borg­ar­stjórnar eftir að í ljós kom að tveir starf­andi borg­ar­full­trúar, þau Svein­björg og Júlíus Vífill Ingv­ars­son, komu fram í Panama­skjöl­unum. Þau höfðu ekki skráð tengsl sín við aflands­fé­lög í hags­muna­skrá borg­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

panamapapers

Erlent

Mossack Fonseca lokar skrif­stofum

Panamíska lög­fræði­fyr­ir­tækið Mossack Fonseca ætlar að loka úti­búum sínm á bresku eyj­unum Jersey, Mön og á Gíbraltar. Við­skipta­vinum á svæð­inu verður áfram sinnt, þó að skrif­stofum sé lokað. Fyr­ir­tækið greindi frá þessu á Twitter í gær­kvöldi. Ósátt við fjöl­miðlaum­fjöllun Þar sendir Mossack Fonseca einnig frá sér yfir­lýs­ingu vegna fjöl­miðlaum­fjöll­unar und­an­farnar vikur. Þar segir að nýlegar fréttir hafi birt óná­kvæma mynd...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár