Í landi þar sem spilling er daglegt brauð

Panama-skjölin títt­nefndu hafa síð­ustu vik­urnar valdið miklu fjaðrafoki á Íslandi og víða ann­ars­staðar. Aðra sögu er þó að segja frá Rúss­landi. Ómar Þor­geirs­son, sagn- og mark­aðs­fræð­ingur búsettur í Moskvu, hefur fylgst með gangi mála í Rúss­landi.

Í rúss­nesku sam­hengi virð­ist úrvinnsla gagn­anna úr Panama-lek­anum fyrst og fremst ætla að ein­blína á meint tengsl Vla­dimírs Pútíns Rúss­lands­for­seta við gríð­ar­lega fjár­muni falda í aflands­fé­lögum í skatta­skjólum. Nafn Pútíns kemur reyndar hvergi fram í skjöl­unum en nánir vinir Rúss­lands­for­seta eru þar nafn­greindir og sterk­lega bendl­aðir við vafa­sama við­skipta­hætti, skatta­laga­brot, fals­anir og pen­inga­þvott.

Í kjöl­far ásakan­anna hefur verið fróð­legt að fylgj­ast með fram­vindu máls­ins síð­ustu þrjár vik­urnar en óhætt er að full­yrða að umfjöll­unin um Panama-skjölin hafi raunar aldrei kom­ist á neitt skrið í Rúss­landi. Margar ástæður geta mögu­lega legið þar að baki.

Dræmar undirtektir almennings

Blaða­menn Novaya Gazeta dag­blaðs­ins fóru fyrir rann­sókn­inni á Panama-skjöl­unum tengdum Rúss­landi, fyrir hönd ICIJ-sam­tak­anna. En þann 3. apríl byrj­aði rúss­neska dag­blaðið svo að dæla út fréttum um alla spill­ing­una. Ásamt vinum og vanda­mönnum Pútíns voru sér­stak­lega margir rúss­neskir stjórn­mála­menn tengdir við aflands­fé­lög í Panama í umfjöllun dag­blaðs­ins og spill­ingin eins og rauður þráður í gegnum meira og minna allt stjórn­kerfið í Rúss­landi. Rúss­nesku fjöl­miðl­arnir RBC og Radio Svoboda birtu einnig ítar­legar umfjall­anir um Panama-skjölin og hugs­an­leg tengsl Pútíns.

Rúss­neskir fjöl­miðlar hlið­hollir Rúss­lands­for­seta tóku aftur á móti annan pól í hæð­ina. Fyrst um sinn var þar lítið sem ekk­ert fjallað um Panama-skjölin. Síðar snéru Kremlar-miðlar vörn í sókn og fundu skjöl­unum allt til for­áttu. Dmitry Peskov, tals­maður Pútíns, tal­aði um “Pútín-fóbíu” og “upp­lýs­inga­árás” í við­tölum við hina rík­is­reknu TASS-frétta­stofu. Á meðan RT-frétta­stofan gagn­rýndi harð­lega fram­setn­ingu frétta vest­rænna fjöl­miðla um Panama-skjölin sem höfðu Pútín ávallt í for­grunni. “Göbbels lét birta áróð­urs­greinar sem voru minna hlut­drægar en þetta,” sagði meðal ann­ars í umfjöll­un­inni.

En í ljósi þess hve sterka stöðu Kremlar-miðlar hafa á fjöl­miðla­mark­aði í Rúss­landi má leiða líkur að því að stór meiri­hluti Rússa hafi fengið upp­lýs­ingar um Panama-skjölin frá þeim en ekki frá minni og óháð­ari fjöl­miðlum á borð við Novaya Gazeta og Radio Svoboda. Enda voru engin fjöl­menn mót­mæli í Rúss­landi, líkt og voru á Íslandi. Radio Svoboda tók einmitt saman mynd­band þar sem við­brögð almenn­ings í Moskvu ann­ars vegar og Reykja­vík hins vegar eru borin saman í kjöl­far upp­ljóstr­anna Panama-skjal­anna.

Kerfisbundin spilling

Rússar hafa reyndar marga fjör­una sopið þegar kemur að spill­ingu í gegnum tíð­ina en and­stæð­ingar Pútíns hafa þó haldið því fram að undir hans stjórn hafi spill­ingin orðið kerf­is­bundn­ari. Fyrrum stjórn­ar­and­stæð­ing­ur­inn Boris Nemtsov, sem myrtur var í febr­úar í fyrra, var einn helsti gagn­rýn­andi Pútíns en hann kom meðal ann­ars að gerð nokk­urra skýrslna sem mið­uðu að því að upp­ljóstra um spill­ingu í stjórn­ar­tíð hans.

Í skýrslu Nemtsovs frá árinu 2011, sem ber ein­fald­lega heitið “Pútín. Spilling”, er því haldið fram að ástandið hvað varðar spill­ingu Rúss­landi sé orðið miklu verra heldur en á árunum eftir fall Sov­ét­ríkj­anna. “Spilling er hætt að vera vanda­mál, spill­ingin er þess í stað orðin að kerfi,” segir meðal ann­ars í skýrsl­unni.

Í árlegri skýrslu Transparency International sam­tak­anna fyrir árið 2015 vermir Rússland 119. sæti af 167 á lista þar sem lönd eru mæld eftir stöðu spill­ingar. Á botn­inum á list­anum eru Norður-Kórea og Sómalía en aðeins Aserbaídsjan, Kasakstan og Úkraína eru þar talin spillt­ari en Rússland af löndum Evrópu sam­kvæmt skýrsl­unni.

Pútín stendur keikur

Röskum fjórum dögum eftir fyrstu upp­ljóstr­anir Panama-skjal­anna tjáði Rúss­lands­for­seti sig loks opin­ber­lega um inni­hald skjal­anna og fram­setn­ingu frétta um þau. Pútín svar­aði þá spurn­ingum blaða­manna á ráð­stefnu í Pét­urs­borg og sagði aug­ljóst að stjórn­völd vest­an­hafs stæðu á bak­við Panama-lek­ann. Pútín harm­aði frétta­flutn­ing byggðan á skjöl­unum og tal­aði um árás á Rússland frekar en árás á hann sjálfan. “And­stæð­ingar okkar eru umfram allt með áhyggjur af sam­stöðu og styrk rúss­nesku þjóð­ar­innar. Þess vegna reyna þeir að ráð­ast á okkur innan frá, til að gera okkur hlýðn­ari,” sagði Pútín meðal ann­ars á ráð­stefn­unni.

Enn fremur í hinum árlega sjón­varps­við­burði, “Bein lína með Vladimír Pútín”, sem hald­inn var 14. apríl svar­aði Rúss­lands­for­seti spurn­ingu um Panama-skjölin. Pútín var spurður af hverju hann svar­aði ekki róg­burði vest­rænna fjöl­miðla varð­andi aflands­fé­lög í Panama af meiri hörku? Pútín sagði upp­lýs­ingar Panama-skjal­anna um aflands­fé­lög ekki vera rangar sem slíkar. Hann ítrek­aði hins vegar að þessar “ögr­anir snú­ist ekki um ein­stak­linga nefnda í skjöl­unum heldur varði þetta þjóð­ina í heild sinni og hún muni ekki láta kúga sig.” Pútín svar­aði alls 80 spurn­ingum, af um þremur millj­ónum spurn­inga sem bár­ust þætt­inum, á tæpum fjórum klukku­tímum en við­burð­ur­inn nýtur mik­illa vin­sælda í Rúss­landi.

Samkvæmt skoð­ana­könnun Levada-Center, sem er sjálf­stæð og óháð stofnun sem fram­kvæmir reglu­legar skoð­ana­kann­anir og rann­sóknir á rúss­nesku sam­fé­lagi, voru 82% aðspurðra ánægðir með störf Pútíns í mars síð­ast­liðnum. Ef mið er tekið að umræð­unni um Panama-skjölin í Rúss­landi verður að telj­ast ólík­legt að mikil breyt­ing verði á vin­sældum Rúss­lands­for­seta þegar sams­konar könnun verður gerð fyrir apríl, þrátt fyrir upp­ljóstr­anir síð­ustu vikna.

Vont en það venst

Spill­ingin í Rúss­landi hvorki hófst né hætti með til­komu Vla­dimírs Pútíns fram á sjón­ar­svið rúss­neskra stjórn­mála. Hvort spill­ingin hafi hins vegar auk­ist í stjórn­ar­tíð Pútíns er erfitt að full­yrða um. Hvernig sem því líður þá virð­ast Rússar nú til dags í það minnsta vera komnir með aukið ónæmi fyrir spill­ingu, í víðum skiln­ingi þess orðs. Það er engu lík­ara en að Rússar telji eðli­legt að við­skipti teygi sig oft inn á grá svæði og að póli­tík sé í eðli sínu óheið­ar­leg. Spill­ing­una er að finna víða í sam­fé­lag­inu og Rússar eru með­vit­aðir um hana.

Veik og óskipu­lögð stjórn­ar­and­staða og bág staða óháðra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja á fjöl­miðla­mark­aði gera það að verkum að frjáls og gagn­rýnin umræða á opin­berum vett­vangi er vart til staðar í Rúss­landi. Í slíku póli­tísku lands­lagi hafa utan­að­kom­andi “ógnir” eins og Panama-skjölin því lít­inn högg­þunga gegn nán­ast ósnert­an­legum Rúss­lands­for­seta. Eins und­ar­lega og það kann að hljóma. Í núver­andi árferði, þar sem gjáin á milli aust­urs­ins og vest­urs­ins virð­ist ekki ætla að verða brúuð í bráð og við­skipta­þving­anir als­ráð­andi, er raunar enn lík­legra að rúss­neska þjóðin þjappi sér að baki Pútín gegn slíkum ásök­unum. Frekar en að fjöl­menna á torgum og kalla eftir því að hann skuli víkja úr emb­ætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

panamapapers

Erlent

Mossack Fonseca lokar skrif­stofum

Panamíska lög­fræði­fyr­ir­tækið Mossack Fonseca ætlar að loka úti­búum sínm á bresku eyj­unum Jersey, Mön og á Gíbraltar. Við­skipta­vinum á svæð­inu verður áfram sinnt, þó að skrif­stofum sé lokað. Fyr­ir­tækið greindi frá þessu á Twitter í gær­kvöldi. Ósátt við fjöl­miðlaum­fjöllun Þar sendir Mossack Fonseca einnig frá sér yfir­lýs­ingu vegna fjöl­miðlaum­fjöll­unar und­an­farnar vikur. Þar segir að nýlegar fréttir hafi birt óná­kvæma mynd...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár