Mossack Fonseca lokar skrifstofum eftir Panamaskjölin

Mótmæli við höfuðstöðvar Mossack Fonseca í Panama.
Mótmæli við höf­uð­stöðvar Mossack Fonseca í Panama. Mynd: EPA

Panamíska lög­fræði­fyr­ir­tækið Mossack Fonseca ætlar að loka úti­búum sínm á bresku eyj­unum Jersey, Mön og á Gíbraltar. Við­skipta­vinum á svæð­inu verður áfram sinnt, þó að skrif­stofum sé lokað. Fyr­ir­tækið greindi frá þessu á Twitter í gær­kvöldi.

Ósátt við fjölmiðlaumfjöllun

Þar sendir Mossack Fonseca einnig frá sér yfir­lýs­ingu vegna fjöl­miðlaum­fjöll­unar und­an­farnar vikur. Þar segir að nýlegar fréttir hafi birt óná­kvæma mynd af þjón­ust­unni sem fyr­ir­tækið veiti, þrátt fyrir að starfs­menn þess hafi reynt að leið­rétta það eftir bestu getu.

Fyr­ir­tækið segir á Twitter að það haldi áfram að veita við­skipta­vinum sínum þjón­ustu þrátt fyrir að skrif­stofum þeirra verði lokað. Ákvörð­unin sé tekin með miklum trega eftir rúm­lega tutt­ugu ára veru á stöð­unum. Fyr­ir­tækið ætli að sam­eina þjón­ustu­skrif­stofur sínar og sé það gert með mik­illi sorg.

Höf­uð­stöðvar Mossack Fonseca eru í Panama og má segja að fyr­ir­tækið hafi orðið heims­frægt í byrjun apríl þegar meira en 11 milljón skjölum var lekið þaðan um aflands­fé­lög fólks um allan heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

panamapapers

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár