Gagnagrunnur Panamaskjala opnaður

Gagna­grunnur Panama­skjala hefur verið opn­aður á vef alþjóða­sam­taka rann­sókn­ar­blaða­manna, ICIJ.

Gagna­grunnur, sem unn­inn er upp úr Panama-skjöl­unum svoköll­uðu, hefur verið opn­aður. Alþjóða­sam­tök rann­sókn­ar­blaða­manna, ICIJ, opn­uðu grunn­inn klukkan sex í dag. Þar er hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um yfir 200 þús­und aflands­fé­lög.

Nöfn Íslend­inga er að finna í gagna­grunn­inum, en fjallað hefur verið ítar­lega um við­skipta nokk­urra þeirra, í umfjöllun Reykja­vík Media, Kast­ljóss RÚV, Stund­ar­innar og hér á vef Kjarnans.

Gagna­grunn­ur­inn er aðgengi­legur á heima­síðu ICIJ, alþjóða­sam­taka blaða­manna, og á vef Reykja­vik Media.

Gögnin, sem liggja að baki, koma sem kunn­ugt er frá panömsku lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca, en þeim var leikið til ICIJ.

Fólkið sem teng­ist þessum félögum kemur frá yfir 200 löndum.

Inn í gagna­grunn­inum er þó ekki hægt að nálg­ast skjöl, eða rekja hvaða við­skipti búa að baki félaga­eign í gagna­grunn­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

panamapapers

Erlent

Mossack Fonseca lokar skrif­stofum

Panamíska lög­fræði­fyr­ir­tækið Mossack Fonseca ætlar að loka úti­búum sínm á bresku eyj­unum Jersey, Mön og á Gíbraltar. Við­skipta­vinum á svæð­inu verður áfram sinnt, þó að skrif­stofum sé lokað. Fyr­ir­tækið greindi frá þessu á Twitter í gær­kvöldi. Ósátt við fjöl­miðlaum­fjöllun Þar sendir Mossack Fonseca einnig frá sér yfir­lýs­ingu vegna fjöl­miðlaum­fjöll­unar und­an­farnar vikur. Þar segir að nýlegar fréttir hafi birt óná­kvæma mynd...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár