Innri endurskoðandi birtir niðurstöður vegna Panamaskjala og Júlíusar í ágúst

Búist er við nið­ur­stöðum úttektar innri end­ur­skoð­anda borg­ar­innar vegna Júlíusar Vífils Ingv­ars­sonar, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa, í ágúst. Áliti vegna Svein­bjargar Birnu Svein­björns­dóttur var skilað í gær. Hún snýr nú aftur til starfa í borg­ar­stjórn.

Júlíus Vífill Ingvarsson sagði af sér sem borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins eftir fjórtán ára starf þegar nafn hans kom upp í Panamaskjölunum.
Júlíus Vífill Ingv­ars­son sagði af sér sem borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins eftir fjórtán ára starf þegar nafn hans kom upp í Panama­skjöl­unum. Mynd: Skjáskot

Innri end­ur­skoð­andi og reglu­vörður Reykja­vík­ur­borgar skila áliti um Júlíus Vífil Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í ágúst. Hallur Sím­on­ar­son, innri end­ur­skoð­andi, og Gísli Hlíðberg Guð­munds­son reglu­vörður skil­uðu áliti vegna Svein­bjargar Birnu Svein­björns­dóttur til for­sætis­nefndar borg­ar­stjórnar í gær.

Ítarleg úttekt vegna Panamaskjalanna

Ástæða úttekt­ar­innar eru tengsl borg­ar­full­trú­anna við aflands­fé­lög, en nöfn þeirra beggja komu fram í Panama­skjöl­unum sem Kastljós og Reykja­vík Media fjöll­uðu um þann 3. apríl síð­ast­lið­inn. For­sætis­nefnd borg­ar­stjórnar fór fram á að farið yrði yfir það hvort þau höfðu fylgt settum reglum varð­and hags­muna­skrán­ingu.

Júl­íus Víf­ill stofn­aði aflands­fé­lag í Panama árið 2014. Það mál vatt tölu­vert upp á sig, en fyrst sagði Júl­íus að um hefði verið að ræða fyr­ir­tæki utan um eft­ir­launa­sjóð sinn. Systk­ini hans stigu þó fram í kjöl­farið og sögðu að um væri að ræða líf­eyr­is­sjóð for­eldra þeirra og sök­uðu hann um að fela hann fyrir þeim. Júl­íus sak­aði systk­ini sín á móti um að hafa dregið að sér fé.

Skráði ekki þrjú íslensk félög

Nið­ur­staða í máli Svein­bjargar Birnu er í meg­in­at­riðum sú að hún hafi ekki gerst brot­leg þegar hún skráði ekki tvö aflands­fé­lög sem hún tengd­ist, 7CALLINVEST INC. og ICE 1 CORP INC., þar sem búið var að afskrá félögin. Henni bar hins vegar að skrá tvö íslensk félög, ImmoIce ehf og Lög­mönnum Hamra­borg 12, þar sem hún situr í stjórn beggja og er fram­kvæmda­stjóri ImmoIce ehf. og stofn­andi Tailor Made Iceland ehf sem hét áður P10 ehf.

Hún skráði félögin þrjú sem fjár­hags­lega tengda aðila á árinu 2014 í sam­ræmi við ákvæði laga um verð­bréfa­við­skipti þegar hún var skráð sem frum­inn­herji hjá Reykja­vík­ur­borg eftir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2014. Skoðunin leiddi í ljós að ekk­ert sem bendir til þess að Svein­björg Birna hafi gerst sek um inn­herja­svik.

Fór ekki á svig við lög

Meg­in­nið­ur­staðan er sú að Svein­björg fór ekki á svig við stjórn­sýslu­lög eða lög um verð­bréfa­við­skipti og leið­bein­ingar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins þar um. Hins vegar var ekki farið að ákvæðum reglna um skrán­ingu á fjár­hags­legum hags­munum borg­ar­full­trúa og trún­að­ar­störfum utan borg­ar­stjórnar, varð­andi félögin sem hún á hlut í hér á landi.

Svein­björg sendi frá sér yfir­lýs­ingu í dag þar sem hún hugð­ist snúa aftur til starfa, en hún tók sér leyfi frá störfum á meðan úttektin stóð yfir. Júlíus Vífill sagði hins vegar af sér og eins og áður segir er búist er við nið­ur­stöðum í máli hans í ágúst.

Nafn Þor­bjargar Helgu Vig­fús­dóttur, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, kom einnig fram í Panama­skjöl­unum, en ekki þótti ástæða til að skoða hennar þátt frekar þar sem tölu­vert er síðan hún hætti sem borg­ar­full­trúi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár