Systkini Júlíusar Vífils leita að týndum sjóðum foreldra sinna

Erf­ingjar Ingvars Helga­sonar og Sigríðar Guð­munds­dóttur, systk­ini og frænd­fólk Júlíusar Vífils Ingv­ars­sonar, ætla að fá erlent rann­sókn­ar­fyr­ir­tæki til að leita að týndum sjóðum for­eldra sinna erlendis. Um þetta verður fjallað í Kast­ljósi í kvöld.

Upp­lýs­ingar úr Panama­skjöl­unum um Júlíus Vífil settu málið í nýtt sam­hengi fyrir systk­inum hans. Guðrún Ingv­ars­dóttir, systir hans, segir í Kast­ljósi að þetta hafi verið líf­eyr­is­sjóður for­eldra þeirra sem hann hafi verið að „díla með“.

Eftir að Ingvar Helgason, sem átti sam­nefnt fyr­ir­tæki ásamt konu sinni, féll frá hefur verið leitað að sjóðum sem hann segir að hafi verið til erlendis. Eftir að Sigríður lést í haust hafa staðið deilur vegna skipta dán­ar­bús hjón­anna. Deil­urnar snúa að stærstu leyti að eignum sem meiri­hluti erf­ingja þeirra telur að vanti í dán­ar­búið. Það er vara­sjóður Ingvars sem hann mun hafa safnað á reikn­inga í erlendum banka af umboðs­launum frá erlendum fram­leið­endum sem hann átti í við­skiptum við. Ætt­in­gj­arnir töldu að þetta hefðu verið nokkur hund­ruð millj­ónir þegar hann lést árið 1999, sem ætti að vera vel á annan millj­arð króna í dag.

Greint var frá því í Kast­ljósi í byrjun apríl að Júlíus Vífill ætti vörslu­sjóð í Panama. Hann gaf út yfir­lýs­ingu vegna máls­ins þar sem hann sagði að sjóð­ur­inn hafi verið stofn­aður í sviss­neskum banka til að mynda eft­ir­launa­sjóð­inn sinn, en að honum hafi verið ráð­lagt að skrá stofnun hans í Panama. Sjóð­ur­inn lúti svip­uðu reglu­verki og sjálfs­eigna­stofn­un. Aflands­fé­lagið heitir Silwood Founda­tion.

Tveimur dögum eftir Kast­ljós­þátt­inn sagði Júlíus Vífill af sér sem borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann kvaddi sér hljóðs á borg­ar­stjórn­ar­fundi og sagði að ekki væri um félag að ræða heldur sjóð, sem m.a. færi ekki með fast­eign og ekki mætti veð­setja eignir hans. Þrátt fyrir þetta ætl­aði hann að segja af sér emb­ætti. Í kjöl­farið þakk­aði hann öllum fyrir gott sam­starf, sér­stak­lega starfs­fólki borg­ar­innar og borg­ar­full­trú­um. Þá hafði for­sætis­nefnd Reykja­vík­ur­borgar sam­þykkt að kanna til hlítar aflands­fé­laga­eign borg­ar­full­trúa. Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins, var skráð fyrir tveimur félögum, einu á Tortóla og hinu í Panama.

Hefði ekki fengið undanþágu

Júl­íus Víf­ill Ingv­ars­son, ­fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefði ekki fengið und­an­þág­u frá fjár­magns­höftum til að safna í eft­ir­launa­sjóð sinn sem vistaður er í aflands­fé­lag­i í Panama ef hann hefði óskað eftir slíkri hjá Seðla­bank­an­um. Inn­lendum aðil­u­m er óheim­ilt að flytja fjár­muni af reikn­ingum sínum hjá fjár­mála­fyr­ir­tæki hér á landi yfir á reikn­ing í sinni eigu hjá fjár­mála­fyr­ir­tæki erlendis í þeim til­gangi einum að halda sparn­aði erlend­is. Þetta kemur fram í svörum Seðla­banka Ís­lands við fyr­ir­spurn Frétta­blaðs­ins um málið.

Þar er þó einnig bent á að inn­lendur aðili geti átt fjár­muni erlendis sem séu ekki háðir skila­skyld­u hingað til lands. Það eigi til að mynda við fjár­muni sem hafi verið í eig­u við­kom­andi áður en fjár­magns­höft voru inn­leidd hér á landi þann 28. nóv­em­ber 2008. Í svari Seðla­bank­ans seg­ir: „Í slíkum til­vikum getur inn­lendur aðili flutt þá fjár­muni á milli tveggja banka­reikn­inga í sinni eigu erlendis þar sem það telst ekki fjár­magns­hreyf­ing á milli landa í skiln­ingi laga um gjald­eyr­is­mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár