Panamaskjalagrunnurinn opnar í dag

Gagna­grunnur Panama­skjal­anna verður opn­aður í dag. Fjöldi rann­sókn­ar­blaða­manna unnu úr þeim 11,5 milljón skjölum sem lekið var frá panamísku lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca til að gera þau aðgengi­leg. Nöfn 200.000 félaga verða í grunn­inum.

Blaðamenn Süddeutche Zeitung deildu þessari mynd með grein sem bar titilinn „A Storm is Coming“, daginn sem fyrsti Kastljóssþátturinn var frumsýndur fyrir meira en mánuði síðan.
Blaða­menn Süddeutche Zeitung deildu þess­ari mynd með grein sem bar tit­il­inn „A Storm is Coming“, dag­inn sem fyrsti Kast­ljóss­þátt­ur­inn var frum­sýndur fyrir meira en mán­uði síðan. Mynd: Süddeutche Zeitung

Gagna­grunnur unn­inn upp í Panama­skjöl­unum verður opn­aður í dag klukkan 18 að íslenskum tíma. Slóðina verður að finna á: https://offshoreleaks.icij.org. Það eru Alþjóða­sam­tök rann­sókn­ar­blaða­manna, ICIJ, sem standa að birt­ing­unni sem inni­heldur rúm­lega 200 þús­und aflands­fé­lög sem koma fyrir í Pana­ma­gögn­unum.

Hægt verður að leita í gagna­grunn­inum og gera sér betur grein fyrir umfangi þess­ara félaga. Í ein­hverjum til­fellum er hægt að fá upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur aflands­fé­lag­anna, er fram kemur á vef Reykja­vik Media. Þá verða einnig birtar upp­lýs­ingar um 100 þús­und félög sem komu fyrir í öðru aflandsleka sem ICIJ rann­sak­aði árið 2013.

Fjöldi rann­sókn­ar­blaða­manna hefur farið í gegn um þann mikla fjölda gagna sem lekið var frá panamísku lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca og metið hvað varði almenn­ing og hvað ekki. Um er að ræða stærsta gagna­leka í sög­unni, sem telur um 11,5 milljón skjöl; banka­reikn­inga, tölvu­pósta, bréf, umslög, samn­inga, vega­bréfs­ljós­rit, síma­númer, heim­il­is­föng og fleiri gögn. Slíkar upp­lýs­ingar verða ekki birtar í gegna­grunn­inum.

Samtökin hala áfram rann­sóknum á gögn­unum með sam­starfsmiðlum sínum næstu vikur og mán­uði.

Margt gerst á mánuði

Það er nú meira en mán­uður síðan fyrstu upp­lýs­ing­arnar birt­ust úr lek­anum. Þýska blaðið Süddeutche Zeitung birti grein sem bar tit­il­inn A Storm is Coming dag­inn sem fyrsti Kast­ljós­þátt­ur­inn var frum­sýndur, sunnu­dag­inn 3. apríl síð­ast­lið­inn. Í grein­inni er farið ítar­lega yfir þær íslensku stjórn­mála­teng­ingar sem fund­ust í Panama­skjöl­unum; að nöfn for­sæt­is­ráð­herra, fjár­mála­ráð­herra og inn­an­rík­is­ráð­herra hafi öll tengst aflands­fé­lögum í gegn um Mossack Fonseca.

En það voru ekki bara ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar sem höfðu tengst aflands­fé­lögum í skatta­skjólum. Nöfn þriggja borg­ar­full­trúa, tveggja starf­andi, komu líka fram í þætt­inum þetta kvöld: Júlíus Vífill Ingv­ars­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði af sér nokkrum dögum síðar, og Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir, odd­viti borg­ar­stjórn­ar­flokks Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina, fór í leyfi. Þorbjörg Helga Vig­fús­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks, kom einnig fram í skjöl­unum.

Kjarninn og Stundin, í sam­starfi við Reykjvik Media, fjöll­uðu einnig um tengsl Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og Ingi­bjargar Pálma­dóttur við aflands­fé­lög. Kastljós tók annan snún­ing á skjöl­unum og afhjúpaði þar fram­kvæmda­stjóra Fram­sókn­ar­flokks­ins, Hrólf Ölvisson, sem sagði af sér stuttu síðar, fyrr­ver­andi gjald­kera Sam­fylk­ing­ar­innar, Vilhjálm Þor­steins­son, sem sagði sig úr stjórn Kjarnans í kjöl­farið og hafði áður sagt af sér sem gjald­keri, tvo fram­kvæmda­stjóra líf­eyr­is­sjóða, Kára Arnór Kárason og Kristján Örn Sig­urðs­son, sem báðir sögðu af sér, og svo Helga S. Guð­munds­son og Finn Ing­ólfs­son.

Þá er skemmst frá því að segja að greint var frá því skömmu síðar for­seta­frúin Dorrit Moussaieff hefði einnig rík tengsl við aflands­fé­lög, en Ólafur Ragnar Grímsson hafði áður harð­neitað því. Dorrit útskýrði það í kjöl­farið að hún ræddi fjár­mál sín ekki við Ólaf.

Reykja­vik Media hefur óskað eftir aðstoð almenn­ings vegna næstu frétta - sem fjalla um sjáv­ar­út­veg­inn á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

panamapapers

Erlent

Mossack Fonseca lokar skrif­stofum

Panamíska lög­fræði­fyr­ir­tækið Mossack Fonseca ætlar að loka úti­búum sínm á bresku eyj­unum Jersey, Mön og á Gíbraltar. Við­skipta­vinum á svæð­inu verður áfram sinnt, þó að skrif­stofum sé lokað. Fyr­ir­tækið greindi frá þessu á Twitter í gær­kvöldi. Ósátt við fjöl­miðlaum­fjöllun Þar sendir Mossack Fonseca einnig frá sér yfir­lýs­ingu vegna fjöl­miðlaum­fjöll­unar und­an­farnar vikur. Þar segir að nýlegar fréttir hafi birt óná­kvæma mynd...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár