Þögn og afsagnir eftir Panamaskell gærkvöldsins

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur ekki tjáð sig um Kast­ljós­þátt gær­kvölds­ins. Ekki hefur náðst í fram­kvæmda­stjóra flokks­ins eða fram­kvæmda­stjóra Sam­ein­aða líf­eyr­is­sjóðs­ins í morgun. Vil­hjálmur Þor­steins­son sagði af sér aftur vegna Panama­skjal­anna.

Hrólfur Ölvisson, Helgi S. Guðmundsson, Finnur Ingólfsson, Kári Arnór Kárason, Kristján Örn Sigurðsson, Vilhjálmur Þorsteinsson, Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
Hrólfur Ölvisson, Helgi S. Guð­munds­son, Finnur Ing­ólfs­son, Kári Arnór Kárason, Kristján Örn Sig­urðs­son, Vil­hjálmur Þor­steins­son, Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.

Þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins hitt­ist í hádeg­inu í dag til að ræða meðal ann­ars umfjöllun Kast­ljóss um við­skiptafléttu Hrólfs Ölv­is­sonar, fram­kvæmda­stjóra flokks­ins, sem sýnd var á RÚV í gær. Í þætt­inum var einnig fjallað um umfangs­mikil við­skipti Finns Ing­ólfs­sonar, fyrr­ver­andi Seðla­banka­stjóra og ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Helga S. Guð­munds­sonar, fyrr­ver­andi for­manns banka­ráðs Seðla­bank­ans.

Framsókn þegir

Ráð­herrar Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa ekki viljað tjá sig við fjöl­miðla um málið í morgun, en þau báð­ust öll undan við­tali við RÚV og 365 fyrir rík­is­stjórn­ar­fund. Ekki var að sjá á dag­skrá rík­is­stjórn­ar­innar að málin hafi verið rædd. Kjarninn hefur ekki náð í Hrólf Ölvisson í morgun, en þær upp­lýs­ingar feng­ust á skrif­stofu Fram­sókn­ar­flokks­ins að hann yrði upp­tek­inn á fundum í allan dag.

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra sagði við RÚV í gær­kvöldi að hann meti málið svo að allt hafi verið uppi á borðum varð­andi við­skipta­hætti Hrólfs. Það sé þó eðli­legt að flokk­ur­inn ræði saman um fram­haldið.

Hætti tvisvar vegna skjalanna

Aflands­fé­lag Vil­hjálms Þor­steins­sonar, fyrr­ver­andi gjald­kera Sam­fylk­ing­ar­innar og hlut­hafa í Kjarn­anum, voru einnig til umfjöll­unar í Kast­ljósi. Vil­hjálmur hafði áður harð­neitað því að eiga aflands­fé­lag og þvertók fyrir að nafn hans væri í Panama­skjöl­unum. Hann upp­lýsti svo um það, eftir eft­ir­grennslan Kast­ljóss um helg­ina, að hann hafi átt félag sem væri í skjöl­unum. Hann sagði sig úr stjórn Kjarnans í kjöl­farið. Hann hafði áður sagt af sér sem gjald­keri Sam­fylk­ing­ar­innar eftir að umræður fóru af stað um félag hans í Lúx­em­borg.

Annar hættur - hinn ekki

Stjórn­endur tveggja líf­eyr­is­sjóða fengu líka pláss í Kast­ljósi í gær. Kári Arnór Kárason, stjórn­andi Stapa líf­eyr­is­sjóðs, átti tvö aflands­fé­lög og hann sagði af sér um helg­ina vegna umfjöll­un­ar­innar.

Hinn stjórn­and­inn, Kristján Örn Sig­urðs­son, starfar enn sem fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­aða líf­eyr­is­sjóðs­ins. Hann var líka skráður fyrir tveimur aflands­fé­lögum og er annað þeirra enn starf­andi. Kjarninn hefur ekki náð í Kristján Örn í morgun. Mbl.is greinir frá því að lög­fræð­ingur muni fara yfir mál hans á stjórn­ar­fundi á morgun.

Hvorki Kristján Örn né Kári Arnór greindu stjórnum þeirra líf­eyr­is­sjóða sem þeir stýrðu frá þessum við­skipta­hags­munum sínum. Lög gera þó ráð fyrir að fram­kvæmda­stjóra líf­eyr­is­sjóðs sé óheim­ilt að taka þátt í atvinnu­rekstri nema að fengnu leyfi stjórn­ar. Eign­ar­hlutur í fyr­ir­tæki telst þátt­taka í atvinnu­rekstri nema um sé að ræða óveru­legan hlut sem ekki veitir bein áhrif á stjórn þess. Stjórn­ar­for­maður Sam­ein­aða líf­eyr­is­sjóðs­ins, Jón Bjarni Gunn­ars­son, segir við mbl.is að það sé ekki víst að Kristján hafi gerst brot­legur með þögn sinni um málið.

Bessastaðatengingin

Fyrr í gær sögðu Kjarninn og Reykja­vik Grapevine frá því að félag tengt Ólafi Ragnari Gríms­syni, for­seta Íslands, og eig­in­konu hans, Dorrit Moussaeiff, sé að finna í Panama­skjöl­unum. For­set­inn hafði áður neitað því stað­fast­lega að nokkuð ætti eftir að koma í ljós sem mundi tengja hann við lek­ann eða aflands­fé­lög yfir höfuð. Félagið, Lasca Finance Limited, var ­skráð á Bresku Jóm­frú­areyj­unum frá árinu 1999 til árs­ins 2005.

Í svari emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans í gær stóð: „Hvorki for­seti né Dor­rit vita neitt um þetta félag né hafa heyrt af því áður. Faðir Dor­ritar er lát­inn og móðir henn­ar, sem er 86 ára, man ekki eftir neinu slíku félag­i."

For­set­inn sagði í svari sínu til mbl.is í dag að hann hafi ekki mótað sér afstöðu til þess hvort upp­lýs­ing­arnar komi til með að hafa áhrif á fram­boð hans eða hvort hann ætli að gera upp­lýs­ingar úr skatta­skýrslum sínum og konu sinnar opin­berar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár