Aflandsfélag í eigu fjölskyldu Dorritar í Panamaskjölum

Skart­gripa­fyr­ir­tæki Moussaieff fjöl­skyld­unnar átti félag sem skráð var á Bresku Jóm­frú­areyj­unum og kemur fyrir í gögnum frá Mossack Fonseca. Hvorki for­seti Íslands né Dorrit segj­ast hafa heyrt um félagið áður og að móðir hennar muni ekki eftir því.

Félag í eigu fjöl­skyldu Dorritar Moussaieff, eig­in­konu Ólafs Ragnars Gríms­sonar, for­seta Íslands, átti félag skráð á Bresku Jóm­frú­areyj­unum frá árinu 1999 til árs­ins 2005. Félagið, sem heitir Lasca Finance Limited, er að finna í gögnum frá panamísku lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca. Árið 2005 seldi fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið Moussaieff Jewellers Ltd. tíu pró­senta hlut sinn í Lasca Finance til hinna tveggja eig­enda þess. Þeir voru S. Moussaieff og „Mrs." Moussaieff. Þetta kemur fram í gögnum sem Kjarninn og Reykja­vik Grapevine hafa undir höndum.

Ólafur Ragnar fór í við­tal til frétta­kon­unar Christiane Amanpour, á banda­rísku sjón­varps­stöð­inni CNN, síð­ast­lið­inn föstu­dag. Amanpour spurði Ólaf Ragnar um Panama­skjölin og hreint út hvort hann eða fjöl­skylda hans væri tengd aflands­fé­lögum:
„Átt þú ein­hverja aflands­reikn­inga? Á eig­in­kona þín ein­hverja aflands­reikn­inga? Á eitt­hvað eftir að koma í ljós varð­andi þig og fjöl­skyldu þína?” spurði hún. Ólafur var afdrátt­ar­laus í svörum: „Nei, nei, nei, nei, nei. Það verður ekki þannig.”

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til emb­ættis for­seta Íslands vegna Lasca Finance. Í svari þess segir: „Hvorki for­seti né Dorrit vita neitt um þetta félag né hafa heyrt af því áður. Faðir Dorritar er lát­inn og móðir hennar, sem er 86 ára, man ekki eftir neinu slíku félagi."

Með skráð heimilisfesti á Bresku Jómfrúareyjunum

Fyr­ir­tæki Moussaieff fjöl­skyld­unnar heitir Moussaieff Jewellers Limited. Í árs­reikn­ingum félags­ins frá árunum 1999 til 2005 kemur fram að fyr­ir­tæki Moussaieff-fjöl­skyld­unnar ætti hlut í félagi sem heitir Lasca Finance Limited, sem sett var á fót árið 1999. Eigendur fyr­ir­tæk­is­ins voru S. Moussaieff og A. Moussaieff, sem áttu ráð­andi hlut og Moussaieff Jewellers Limited sem átti tíu pró­sent.

Lasca Finance er með heim­il­is­festi á Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Í skjölum sem Kjarninn hefur undir höndum kemur fram að félagið var á þeim tíma í umsjón panamísku lög­fræði­stof­unnar Mossack Fonseca og greiddi árgjald fyrir þá þjón­ustu. Í árs­reikn­ingum Moussaieff Jewellers Limited, sem skilað var til fyr­ir­tækja­skráar í Bret­landi, kemur fram að Lasca Finance fái greitt umtals­verðar fjár­hæðir í vexti á hverju ári (e. inter­est receivable), sem gefur til kynna að Lasca hafi lánað ein­hverjum fé. Sam­an­lögð fjár­hæð þeirra vaxta sem Lasca átti að fá greitt frá árinu 2000 til 2005 er tæp­lega sjö millj­ónir punda. Á gengi dags­ins í dag er sú upp­hæð jafn­virði 1.262 millj­ónum íslenskra króna.

Á árinu 2005 seldi Moussaieff Jewellers Ltd. tíu pró­sent hlut sinn í Lasca Finance. Samkvæmt árs­reikn­ingi Moussaieff Jewellers Limited voru kaup­end­urnir S. Moussaieff og „Mrs." Moussaieff. Kaup­verðið var 375 þús­und pund, eða 68 millj­ónir íslenskra króna. Eftir þann tíma er félagið ekki lengur skráð í bókum Moussaieff Jewellers Limited.

Dorrit færði lögheimili sitt

Schlomo Moussaieff lést 1. júlí 2015, þá níræður, en eig­in­kona hans Alisa er enn á lífi. Hún er 86 ára gömul og er skráður eig­andi Moussaieff Jewellers Limited. Hjónin eiga þrjár dætur, Dorrit, Tamöru og Sharon.

Dorrit og Ólafur Ragnar giftu sig þann 14. maí 2003. Ólafur hafði þá verið for­seti Íslands í sjö ár. Á heima­síðu for­seta­emb­ætt­is­ins segir að Dorrit hafi um „ára­bil feng­ist við skart­gripa­við­skipti með áherslu á sjald­gæfa steina og einnig stundað ýmis önnur við­skipti."

Tæpum níu árum síðar, þann 27. des­em­ber 2012, flutti Dorrit lög­heim­ili sitt frá Bessa­stöðum til Bret­lands. Sá gjörn­ingur vakti mikla athygli og umræður á Íslandi þar sem íslensk lög gera ráð fyrir því að hjón eigi að hafa lög­heim­ili í sama landi. Eftir að Frétta­blaðið greindi frá þessu í júní 2013 sendi Dorrit frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hún sagði meðal ann­ars:

„Þegar horfur voru á að eig­in­maður minn yrði ekki lengur for­seti gerði ég ráð­staf­anir til að geta sinnt meira fyrri störfum mínum í London, einkum í ljósi þess að for­eldrar mínir, sem stjórnað hafa fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu, eru nú háaldr­aðir.“ Færslan á lög­heim­ili hafi verið gerð á grund­velli skatta­laga og í sam­ræmi við ráð­gjöf sér­fræð­inga.

Í nýj­ársávarpi sínu 2012 til­kynnti Ólafur Ragnar að hann ætl­aði ekki að bjóða sig fram aftur til emb­ættis for­seta Íslands. Honum snérist síðar hugur og sigr­aði í kosn­ingum það sumar, nokkrum mán­uðum áður að Dorrit færði lög­heim­ili sitt.

Ólafur Ragnar til­kynnti í síð­asta nýj­ársávarpi að hann ætl­aði ekki að bjóða sig aftur fram til for­seta. Hann hefur gegnt emb­ætt­inu frá árinu 1996. Í síð­ustu viku boð­aði hann skyndi­lega til blaða­manna­fundar og greindi frá því að honum hafi aftur snú­ist hugur og ætli að sækj­ast eftir því að sitja sem for­seti í fjögur ár til við­bótar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár