Félag Vilhjálms í Panamaskjölunum – Fer úr stjórn Kjarnans

Vilhjálmur Þorsteinsson.
Vil­hjálmur Þor­steins­son. Mynd: VILHJALMUR THORSTEINSSON

Vil­hjálmur Þor­steins­son, fjár­festir, fyrrum gjald­keri Sam­fylk­ing­ar­innar og hlut­hafi í Kjarn­anum átti félag sem skráð var til heim­ilis á Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Félagið, sem hét M-Trade, var stofnað árið 2001 en form­lega afskráð árið 2012. Það fjár­festi m.a. í afleiðu­við­skiptum og var í eigna­stýr­ingu hjá Kaup­þingi í Lúx­em­borg. Nafn félags­ins M-Trade kemur fyrir í skjölum sem lekið hefur verið frá panamísku lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca. Nafn Vil­hjálms sjálfs er þó ekki í skjöl­unum. Vil­hjálmur átti einnig annað dótt­ur­fé­lag á árunum 2009 til 2011 sem skráð var til heim­ilis á Guernsey. Það félag hafði sama til­gang og M-Trade hafði áður, að stunda önnur við­skipti en með hluta­bréf, skulda­bréf eða fast­eignir.

Vil­hjálmur upp­lýsti stjórn Kjarnans um þetta um liðna helgi þar sem framundan er umfjöllun Kastljós þar sem m.a. verður fjallað um félög tengd honum. Í ljósi þess­ara upp­lýs­inga hefur Vil­hjálmur vikið úr stjórn Kjarnans.

Sagði af sér sem gjaldkeri Samfylkingarinnar

Í lok mars síð­ast­lið­ins, eftir að opin­berað hafði verið að eig­in­kona Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hefði átt aflands­fé­lagið Wintris og verið kröfu­hafi í bú föllnu bank­anna var tölu­verð umfjöllun í fjöl­miðlum um aðra þátt­tak­endur í stjórn­málum sem áttu eignir erlendis. Einn þeirra var Vil­hjálmur, sem þá var gjald­keri Sam­fylk­ing­ar­innar.

Vef­mið­ill­inn Eyjan birti frétt þann 30. mars þar sem því var haldið fram að nafn Vil­hjálms væri í gögnum ICIJ. Hann neit­aði því stað­fast­lega.

[adspot]

Í pistli sem Vil­hjálmur birti dag­inn eftir, þann 31. mars, á blogg­svæði Eyjunnar sagð­ist hann eiga félag í Lúx­em­borg, Meson Holding, og að það félag ætti dótt­ur­fé­lag á Kýpur. Vil­hjálmur sagði starf­semi beggja félaga vera full­kom­lega lög­lega og að ætið hafi allir skattar og gjöld verið greiddir vegna þeirra. Þrátt fyrir þetta teldi hann að það mætti „aug­ljóst vera að svona flókið eign­ar­halds- og fjár­fest­inga­dæmi hjá gjald­kera Sam­fylk­ing­ar­innar – jafn­að­ar­manna­flokks Íslands er lítt til þess fallið að fók­usera umræð­una sem nú stendur yfir um aflands­fé­lög og skatta­skjól á það sem máli skipt­ir: ­rík­is­stjórn­ina og stjórn­ar­meiri­hlut­ann í land­inu. Ég hef því ákveðið að segja af mér emb­ætti gjald­kera Sam­fylk­ing­ar­innar, og styð stjórn­ar­and­stöð­una ein­dregið í því að kalla fram ábyrgð rík­is­stjórn­ar­flokk­anna á sínu fólki.“

Fer úr stjórn Kjarnans

Vil­hjálmur minnt­ist ekki á félagið M-Trade í umræddum pistli. Það félag var stofnað í gegnum Mossack Fonseca árið 2001 en var aflagt árið 2012. Þótt nafn Vil­hjálms sé ekki í þeim gögnum sem lekið hefur verið frá lög­manns­stof­unni þá er nafn M-Trade þar hins vegar. Vil­hjálmur segir að eftir fall Kaup­þings í októ­ber 2008 hafi Meson Holding flutt allar sínar eignir úr eigna­stýr­ingu þar og þar með hafi félagið verið úr sög­unni hvað hann varðar. Í kjöl­farið hafi Meson Holding leitað fyrir sér með banka­við­skipti og eigna­stýr­ingu á öðrum stöðum og árið 2009 hafi það hafið við­skipti við alþjóð­legan banka sem hafi stofnað dótt­ur­fé­lag fyrir Meson Holding á Guernsey. Það félag, Jacinth, starf­aði til júní 2011. Síðan þá seg­ist Vil­hjálmur ekki hafa átt nein félög á aflands­svæðum.

Vil­hjálmur segir að það hefði verið skyn­sam­legra og hrein­skipt­ara af sér að hafa greint frá eign sinni á þessum félögum þegar hann birti blogg­pistil á Eyjunni í lok mars síð­ast­lið­inn.

Vil­hjálmur hefur verið hlut­hafi í Kjarn­anum frá haust­mán­uðum 2014, á 15,98 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu, og hefur setið í stjórn þess. Hann á þann hlut í gegnum félag sitt Mið­eind ehf. og það félag er í eigu Meson Hold­ing A.S., sem skráð er í Lúx­em­borg. Í ljósi upp­lýs­inga um aflands­fé­laga­eign Vil­hjálms hefur verið ákveðið að Vil­hjálmur víki úr stjórn og tók sú úrsögn gildi í dag.

Eig­endur Kjarn­ans eru:

  • HG80 ehf. (í eigu Hjálm­ars Gísla­son­ar) 16,55%
  • Mið­eind ehf. (í eigu Vil­hjálms Þor­steins­son­ar) 15,98%
  • Magnús Hall­dórs­son 13,79%
  • Þórður Snær Júl­í­us­son 12,20%
  • Birna Anna Björns­dóttir 9,39%
  • Hjalti Harð­ar­son 9,25%
  • Milo ehf. (Í eigu Gumma Haf­steins­sonar og Eddu Haf­steins­dótt­ur) 5,69%
  • Fagri­skógur ehf. (í eigu Stefán Hrafn­kels­son­ar) 5,69%
  • Ágúst Ólafur Ágústs­son 5,69%
  • Birgir Þór Harð­ar­son 2,9%
  • Jónas Reynir Gunn­ars­son 2,9%
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár