Framkvæmdastjórar tveggja lífeyrissjóða tengjast aflandsfélögum

Nöfn fram­kvæmda­stjóra tveggja líf­eyr­is­sjóða er að finna í Panama­skjöl­unum. Hvor um sig tengj­ast tveimur aflands­fé­lögum. Kastljós fjall­aði um málið í kvöld.

Kristján Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins, og Kári Arnór Kárason, fráfarandi framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs.
Kristján Örn Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­aða líf­eyr­is­sjóðs­ins, og Kári Arnór Kárason, frá­far­andi fram­kvæmda­stjóri Stapa líf­eyr­is­sjóðs.

Félög í eigu tveggja fram­kvæmda­stjóra íslenskra líf­eyr­is­sjóða er að finna í skjölum panamísku lög­fræði­stof­unnar Mossack Fonseca. Kastljós fjall­aði um Panama­skjölin í kvöld í sam­starfi við Reykja­vik Media.

Um er að ræða Kára Arnór Kárason, nú fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Stapa - líf­eyr­is­sjóðs, og fram­kvæmda­stjóra Sam­ein­aða líf­eyr­is­sjóðs­ins, Kristján Örn Sig­urðs­son. Kári Arnór sagði starfi sínu lausu eftir að Kastljós spurði hann spurn­inga vegna Panama­skjal­anna.

Hvorki Kári Arnór né Kristján Örn til­kynntu stjórnum sjóð­anna sem þeir stýrðu um við­skipti sín.

Útvortis og Hola

Fram kom í umfjöllun Kast­ljóss að Kári Arnór hafi stýrt líf­eyr­is­sjóði í 23 ár. Fyrst stýrði hann Líf­eyr­is­sjóði Norð­lend­inga, sem sam­ein­að­ist svo Líf­eyr­is­sjóði Aust­ur­lands 2007, undir merkjum Stapa - líf­eyr­is­sjóðs.

Samkvæmt gögnum frá Mossack Fonseca er Kári Arnór eig­andi og pró­kúru­hafi félags­ins Utvortis limited sem skráð var á Tortóla í lok árs 2004. Margeir Pét­urs­son, þáver­andi eig­andi og stjórn­andi MP-fjár­fest­inga­banka, hafði milli­göngu um stofnun aflands­fé­lags Kára. Hann var í sam­skiptum við Mossack Fonseca og bað stof­una um að stofna félag á Jóm­frú­areyjum fyrir Kára Arnór, eig­anda þess. Félagið skuli heita Útvortis Limited með 50 þús­und doll­ara í hlutafé. Það fé á að skrá í félagið Glímu ehf., sem er íslenskt. MP-banki sá um Útvortis Limited hér á landi og sá um sam­skipti við Mossack Fonseca. Kári sagð­ist í sam­tali við Kastljós hafa gefið félagið upp á skatt­fram­töl­unum til árs­ins 2007. Ekki er gerð grein fyrir Útvortis í árs­reikn­ingum Glímu, en hann var umsvifa­mik­ill fjár­festir á þessum árum hér á landi.

Kári hefur líka setið fyrir hönd Stapa í stjórn verð­bréfa­fyr­ir­tæk­is­ins Íslenskra verð­bréfa, á Akureyri. Íslensk verð­bréf hétu áður Kaupþing Norð­ur­lands til árs­ins 2000, en á þeim tíma sat Kári einnig í stjórn þess, er fram kom í Kast­ljósi.

Kári tengd­ist líka öðru aflands­fé­lagi, Hola Holding. Það var stofnað í Lúx­emburg árið 1999 af Kaup­þingi. Magnús Guð­munds­son, sem afplánar nú dóm vegna Al-thani máls­ins, var skráður stjórn­andi félags­ins. Kára Arnóri voru veitt full yfir­ráð yfir Hola Holding nokkrum dögum eftir stofnun félags­ins. Hlutafé þess nam um þremur millj­ónum íslenskra króna, eign­irnar um 14 millj­ónir, en skuldir 11 millj­ónir króna. Tveimur árum síðar voru eign­irnar um 50 millj­ónir en skuldir þess tæpar 70 millj­ónir.

Mistök að fylgja ekki lögum

Kári sagð­ist við Kastljós enga fjár­muni hafa lagt inn í félagið og þátt­taka hans í því hafi ekki tengst beint störfum hans fyrir líf­eyr­is­sjóð­inn. Því hafi hann ekki gefið það upp á skatt­fram­tölum. En samt sem áður voru lög í gildi þar sem segir að fram­kvæmda­stjóra líf­eyr­is­sjóðs sé óheim­ilt að taka þátt í atvinnu­rekstri nema að fengnu leyfi stjórnar. Eign­ar­hlutur í fyr­ir­tæki telst þátt­taka í atvinnu­rekstri nema um sé að ræða óveru­legan hlut sem ekki veitir bein áhrif á stjórn þess. Holu Holding var slitið í des­em­ber 2002. Kári segir við Kastljós að þetta hafi verið mis­tök.

Enn skráður fyrir félagi í Panamaskjölunum

Eins og áður segir greindi Kastljós einnig frá aflands­fé­lagi Krist­jáns Arnar Sig­urðs­sonar, fram­kvæmda­stjóra Sam­ein­aða líf­eyr­is­sjóðs­ins, sem hann hefur stýrt frá árinu 2005. Hann er tengdur tveimur félögum sem er að finna í Panama­skjöl­unum; Mika Assett og Fulcas Inc. Mika var stofnað af Lands­bank­anum í Lúx­emburg árið 2007. Kristján Örn var með umboð og pró­kúru í félag­inu, sem er skráð á Panama. Fram kom í Kast­ljósi að svo virð­ist sem það hafi verið flutt frá Lands­bank­anum yfir til Nordea-bank­ans við hrun Lands­bank­ans og svo verið lagt niður að beiðni Nordea árið 2014. Prókúra og stjórn Krist­jáns Arnar á félag­inu var þá gild til árs­loka 2010.

Kristján Örn sagði við Kastljós að Mika hafi verið stofnað árið 2008 til að ávaxta fjár­muni en ekki til að borga lægri skatta. Hann hafi þó ákveðið að hætta við að nota það. Hann sagð­ist ekki muna hversu mikið hann borg­aði fyrir upp­setn­ing­una á Mika. Hann við­ur­kenndi að hann hafi ekki látið stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins vita.

Fulcas Inc. var stofnað af Nordea árið 2009. Kristján Örn var líka skráður pró­kúru­hafi þess og þar með raun­veru­legur eig­andi í jan­úar 2009. Fulcas Inc er enn starf­andi. Kristján Örn sagð­ist í svari sínu til Kast­ljóss að um hafi verið að ræða ein­stök við­skipti og nauð­syn­legt hafi verið að stofna félagið til að geta farið í þau við­skipti. En ekk­ert varð af þeim við­skiptum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár