Áhrifamenn innan Framsóknar með umsvifamikil viðskipti í Panamafélögum

Félög í eigu Finns Ing­ólfs­sonar, Helga S. Guð­munds­sonar og Hrólfs Ölv­is­sonar á meðal þeirra sem fram koma í Panama­skjöl­unum. Félag Finns og Helga í Panama keyptu hluta­bréf í Lands­bank­anum með láni frá bank­anum.

Félög í eigu Finns Ing­ólfs­sonar, Helga S. Guð­munds­sonar og Hrólfs Ölv­is­sonar eru á meðal þeirra sem finn­ast í Panama­skjöl­unum sem lekið hafa frá Mossack Fonseca, lög­fræði­stofu í Panama. Félag Finns og Helga, sem skráð var í Panama, keypti meðal ann­ars hlut í Lands­bank­anum á árinu 2007 með láni frá bank­anum sjálfum. Menn­irnir þrír hafa allir verið áhrifa­menn innan Fram­sókn­ar­flokks­ins á und­an­förnum ára­tugum og Hrólfur er í dag fram­kvæmda­stjóri flokks­ins. Þetta er meðal þess sem fram kom í Kast­ljósi kvölds­ins þar sem fjallað var um aflands­fé­lög mann­anna þriggja.

Umfjöllun Kast­ljóss er unnin í sam­starfi við Reykja­vík Media uppúr gögnum frá Mossack Fonseca sem þýska blaðið Süddeutsche Zeitung komst yfir og deildi með alþjóð­legum sam­tökum rann­sókn­ar­blaða­manna, ICIJ, Reykja­vík Media og 109 öðrum fjöl­miðlum víðs­vegar um heim.

Keypti í BM Vallá

Hrólfur Ölvisson hefur árum saman gegnt ýmsum trún­að­ar­störfum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn og verið fram­kvæmda­stjóri flokks­ins frá árinu 2010. Hann sat meðal ann­ars í banka­ráði Bún­að­ar­bank­ans skömmu áður en að sá banki var einka­væddur og í stjórnum ýmissa opin­berra fyr­ir­tækja eða stofn­ana fyrir hönd Fram­sókn­ar­flokks­ins í áraraðir. Hrólfur var til að mynda stjórn­ar­for­maður Vinnu­mála­stofn­unar frá árinu 1998 til 2008. Samhliða öllum þessum trún­að­ar­störfum var Hrólfur mjög virkur í við­skiptum, og er enn.

Í umfjöllun Kast­ljóss í kvöld kom fram að Hrólfur hefði árið 2003 stofnað félagið Chamile Mar­ket­ing á Tortóla í Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Um upp­setn­ingu og umsjón félags­ins sá panamíska lög­fræði­stofan Mossack Fonseca. Hrólfur var með pró­kúru í félag­inu og var ásamt við­skipta­fé­lögum sínum eig­andi þess.

Á þessum tíma var Hrólfur einn þriggja eig­enda félags­ins Eldberg ehf. í gegnum annað félag, Jarð­efna­iðnað ehf. Rekstur fyr­ir­tækj­anna snérist um að safna og flytja út vikur­efni. Í Kast­ljósi kom fram að Tortóla­fé­lagið hafi verið notað til að fela fjár­fest­ingu íslensku félag­anna tveggja í danska félag­inu Scancore ApS. Það var gert með því að Eldberg lán­aði félag­inu 12 millj­ónir króna vaxta­laust til að kaupa hlut í Scancore. Í lána­samn­ingi milli Eldbergs og Chamile Mar­ket­ing vegna fjár­fest­ing­ar­innar, sem birtur var í Kast­ljósi í kvöld, sagði að til­gangur láns­ins væri „að tryggja að nafn Eldbergs eða móð­ur­fé­lags þess verði ekki skráð í tengslum við fjár­fest­ingar Chamile Mar­ket­ing.” Í íslenskum skatta­lögum eru ákvæði sem tak­marka lán sem þessi.

Kastljós greindi einnig frá því að á síð­ustu árum, eftir að Hrólfur tók við sem fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins, hafi hann tekið þátt í kaupum þriggja stórra fyr­ir­tækja. Árið 2012 keypti hann í félagi við aðra fjár­festa hlut Arion banka í BM Vallá sem síðan var sam­einað Björgun og Sem­ents­verk­smiðj­unni. Víglundur Þor­steins­son, fyrrum eig­andi BM Vallár, hefur ítrekað ásakað þáver­andi stjórn­völd um marg­háttuð lög­brot sem leitt hafi til þess að hann hafi misst fyr­ir­tækið sitt og undir þann mál­flutn­ing hafa sumir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins tekið. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, sagði ásak­anir Vig­lundar slá­andi og að það þyrfti að rann­saka þær. Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, hefur einnig gagn­rýnt „Víg­lund­ar­málið“ mjög.

Í sam­tali við Kastljós sagði Hrólfur að hann hefði ekki séð ástæðu til að kynna þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins um þessi tengsl sín, en hann situr í stjórn BM Vallár. Hann hafi hins vegar gert Sigmundi Davíð, for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, grein fyrir tengsl­unum.

Panamafélagið keypti í Landsbankanum með láni frá Landsbankanum

Í Kast­ljósi var einnig greint frá því að Hrólfur hefði stofnað aflands­fé­lagið Selco Finance í Panama árið 2003. Skömmu eftir stofnun þess gerði Selco samn­ing við banda­rískt trygg­inga­fé­lag sem sér­hæfði sig í heil­brigð­is­trygg­ingum um að fá umboð fyrir trygg­ing­unum á Íslandi. Tæpu ári síðar kynnti Finnur Ing­ólfs­son, þá for­stjórí Vátrygg­inga­fé­lags Íslands (VÍS), um að félagið hefði gert sams­konar samn­ing við banda­ríska trygg­inga­fé­lagið. Í þeirri yfir­lýs­ingu var ekk­ert minnst á panamíska félagið sem Hrólfur hafði stofnað. VÍS keypti Selco af Hrólfi á þessum tíma og sagði í Kast­ljósi að kaup­verðið hefði verið um 20 millj­ónir króna. Hrólfur sagð­ist þó ekki hafa fengið neitt í sinn hlut vegna þessa. Selco var slitið árið 2010.

Finnur Ing­ólfs­son, sem var vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, þing­maður við­skipta­ráð­herra og síðar Seðla­banka­stjóri, átti einnig ýmis konar per­sónu­leg við­skipti í gegnum aflands­fé­lög. Þau átti hann ásamt félaga sínum, Helga S. Guð­munds­syni, sem Finnur skip­aði meðal ann­ars for­mann banka­ráðs Lands­banka Íslands á meðan að hann var ráð­herra banka­mála. Síðar, árið 2003, var Helgi skip­aður í banka­ráð Seðla­banka Íslands, þar sem hann sat til árs­ins 2008. Helgi, sem nú er lát­inn, var meðal ann­ars for­maður banka­ráðs Seðla­banka Íslands frá árinu 2006 og fram á árið 2007. Hann var auk þess áhrifa­maður í S-hópnum svo­kall­aða, sem keypti hlut íslenska rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum í banka­einka­væð­ing­unni árið 2002. VÍS, sem Finnur stýrði á þeim tíma, var einnig hluti af S-hópnum.

Í gögnum Mossack Fonseca kemur meðal ann­ars fram að Finnur og Helgi hafi eign­ast félag í Panama í byrjun febr­úar 2007, á meðan að Helgi var enn for­maður banka­ráðs Seðla­banka Íslands. Félagið hét Adair SA. Í Kast­ljósi kom fram að til­gangur félags­ins væri að kaupa og eiga hluta­bréf í Lands­bank­anum, sem Lands­bank­inn hafði lánað fyrir. Finnur sagði í skrif­legu svari til Kast­ljóss að til­gangur félags­ins hefði verið fjár­fest­ingar. Það hefði tapað miklu og því hefðu aldrei orðið til tekjur í félag­inu. Ef þær hefðu orðið þá hefði félagið greitt skatt í Panama en eig­endur þess fjár­magnstekju­skatt á Íslandi ef þeir hefðu fengið eitt­hvað út úr því.

Kastljós greindi einnig frá til­urð félags­ins Lozanne Inc. í Panama, sem skráð var í eigu Finns. Engar frek­ari upp­lýs­ingar fund­ust um félagið og Finnur kann­að­ist ekki við það þegar leitað var upp­lýs­inga hjá honum um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár